Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Kona, sem hefur sætt gæsluvarðhaldi óslitið frá því að sonur hennar fannst látinn á heimili þeirra á Nýbýlavegi í lok janúar, sætir ákæru fyrir að bana drengnum með kodda. 3.5.2024 12:12
Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða Landsbankanum 300 þúsund króna kortareikning, sem var til kominn vegna úttekta í brasilísku ríal. Þá þarf hann að greiða bankanum 400 þúsund krónur í málskostnað. 3.5.2024 11:44
Svona var Pallborðið með Höllu Hrund, Katrínu og Baldri Baldur Þórhallsson, Halla Hrund Logadóttir og Katrín Jakobsdóttir verða gestir Pallborðsins í dag, sem verður sýnt í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14. 3.5.2024 10:11
Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Leigjendur sem þegið hafa sértækan húsnæðisstuðning vegna atburðanna í Grindavík greiða að meðaltali 13 til 22 þúsund krónum hærri leigu í hverjum mánuði en aðrir leigjendur í sambærilegu húsnæði. Á Suðurlandi er greiða Grindvíkingar að meðallagi 32 prósent hærri leigu en aðrir. 3.5.2024 10:10
Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Arnar Már Magnússon hefur verið gerður að aðstoðarforstjóra flugfélagsins Play. Arnar Már hefur verið framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Play og mun áfram sinna þeirri stöðu meðfram nýju hlutverki. 2.5.2024 16:50
Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Hæstiréttur hefur sýknað Sjóvá af öllum kröfum konu á sjötugsaldri, sem hlaut varanlega örorku eftir fall úr biluðum hárgreiðslustól. Hæstiréttur taldi slysið óhappatilvik og ekki hafa verið valdið af saknæmri háttsemi hárgreiðslustofunnar. 2.5.2024 16:13
Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Afkoma samstæðu Reykjavíkurborgar var neikvæð um 3,4 milljarða króna í fyrra samanborið við sex milljarða króna hagnað árið 2022. Afkoma A-hluta batnar þó um tæplega ellefu milljarða á milli ára. 2.5.2024 14:47
Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Atli Þór Fanndal, sem hefur undanfarin ár verið framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International, hefur verið ráðinn samskiptastjóri Pírata. „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn,“ segir hann. 2.5.2024 13:33
Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Friðrik Jónsson, sendifulltrúi og fyrrverandi formaður BHM, tekur við stöðu sendiherra Íslands í Póllandi þann 1. ágúst næstkomandi. 2.5.2024 11:10
Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Aðaldagskrá Iceland Innovation Week var birt í morgun. Þátttakendur frá meðal annars Google, Microsoft, Snapchat, NATO Innovation Fund og UN World Food Programme eru væntanlegir til landsins á hátíðina, sem fer fram dagana 13-17. maí. 2.5.2024 11:02