Landris stöðugt og hraunbreiðan sex ferkílómetrar Landris í Svartsengi heldur áfram á stöðugum hraða. Flatarmál hraunbreiðunnar á svæðinu er nú 6,15 ferkílómetrar og rúmmál hennar 33,2 milljón rúmmetrar. 18.4.2024 21:11
Opna miðstöð fyrir palestínsk börn Skóla- og fjölskyldumiðstöð fyrir börn á leikskóla-, grunnskóla- og framhaldsskólaaldri verður komið á fót í kjölfar fjölskyldusameiningar fólks frá Palestínu. Þetta var samþykkt í borgarráði í dag og stefnt er að formlegri opnun mánudaginn 22.apríl. 18.4.2024 20:24
Greiðir 2000 krónur á dag í vexti á meðan beðið er eftir Þórkötlu Grindvíkingar og stuðningsmenn þeirra söfnuðust saman á Austurvelli í dag til þess að mótmæla vinnubrögðum Fasteignafélagsins Þórkötlu. Krafan er einföld, þeir vilja fá greitt strax. 18.4.2024 19:04
Myndskeið úr Hamraborg og maður sem heyrir liti með loftneti Þjófarnir í Hamraborgarmálinu voru rúmar þrjátíu sekúndur að brjótast inn í peningaflutningabíl Öryggismiðstöðvarinnar, færa peningatöskur yfir í eigin bíl og bruna í burtu með tuttugu til þrjátíu milljónir króna í fórum sínum. Þetta sýnir myndband sem komið er í dreifingu og barst fréttastofu. Við fjöllum um málið í fréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. 18.4.2024 18:21
Enn ekkert að frétta af félagi sem þúsundir Íslendinga eiga kröfu á Seðlabanki Íslands hefur vakið athygli á því að slitastjóri hefur ekki enn verið skipaður yfir slóvakíska vátryggingafélaginu Novis, sem var svipt starfsleyfi fyrir tíu mánuðum. Sex til sjö þúsund Íslendingar hafa keypt tryggingarafurðir Novis og mikil óvissa ríkir um stöðu þeirra. 18.4.2024 18:08
Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Hæstaréttarlögmaður segir frumvarp um húsaleigulög, sem ætlað er auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda, geta leitt til þess að húseigendur vilji síður leigja út eignir sínar. Þannig myndi framboð minnka og leiguverð hækka. 18.4.2024 09:31
Grindvíkingar boða til mótmæla gegn Þórkötlu Boðað hefur verið til mótmæla á Austuvelli klukkan 17 á morgun, þar sem vinnubrögðum Fasteignafélagsins Þórkötlu verður mótmælt. Borið hefur á mikilli óánægju meðal Grindvíkinga, sem vilja fá eignir sínar keyptar upp sem fyrst. 17.4.2024 19:39
Stungumaður þarf að dúsa inni fram að dómi Tvítugur karlmaður þarf að sæta gæsluvarðhaldi fram að dómsuppsögu í máli hans í Landsrétti. Hann var dæmdur í tveggja ára fangelsi í héraði en ákæruvaldið vill þyngri dóm. 17.4.2024 18:37
Sagði upp til að annast einhverfa dóttur, vantraust á þingi og bílastæðagjöld Einstæð móðir einhverfrar stúlku brann út og þurfti að segja upp vinnunni til þess að geta annast dóttur sína. Hún segir stjórnvöld verða að gera betur fyrir einhverf börn og foreldra þeirra, álagið sé ómanneskjulegt. Rætt verður við hana í kvöldfréttum Stöðvar 2. 17.4.2024 18:21
Vantrauststillagan felld Alþingismenn tókust um vantrauststillögu þingflokka Flokks fólksins og Pírata á ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar í kvöld. Tillagan var felld að loknum löngum umræðum. Greiddu allir viðstaddir þingmenn stjórnarflokkanna atkvæði gegn tillögunni og allir viðstaddir þingmenn stjórnarandstöðunnar með. 17.4.2024 18:13