Fréttamaður

Árni Sæberg

Árni er viðskiptafréttamaður á fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Einum til sleppt úr haldi

Einum til viðbótar hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi í tengslum við umfangsmikið mansalsmál. Rannsóknarhagsmunir eru ekki lengur taldir fyrir hendi.

Brýnt að undið verði ofan af kaupunum

Þingmaður Viðreisnar segir brýnt að undið verði ofan af kaupum Landsbanks á TM tryggingum. Ekki gangi upp að banki sem er nánast að fullu í eigu ríkisins taki sér það vald, án þess að spyrja kóng eða prest, að að kaupa tryggingafélaga og færa þannig út kvíarnar inn á nýjan markað. Þingmaður Samfylkingar segir fjármálaráðherra hafa brugðist skyldum sínum.

Skólaliði grunaður um að mynda börn í búnings­klefa

Mál starfsmanns Laugarnesskóla í Reykjavík, sem handtekinn var um miðjan október síðastliðinn, er komið á borð ákærusviðs. Hann starfaði sem skólaliði við skólann og er grunaður um kynferðisbrot með því að taka myndir í búningsklefa ungra drengja.

Tapaði ríf­lega hálfum milljarði dala annað árið í röð

Tap Alvotech á árinu 2023 nam 551,7 milljónum dollara eða 2,43 dollara tapi á hlut, samanborið við 513,6 milljóna dollara tap á árinu 2022, sem nemur 2,6 dollara tapi á hlut. 551,7 milljónir dollara eru tæplega 75 milljarðar króna á gengi dagsins.

Hjálpaði manni að losa bílinn og réðst á hann

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Svo virðist sem upp úr hafi soðið á bílastæði eftir að maðurinn hjálpaði öðrum að losa bíl sem hann hafði fest í snjó.

Dregur fram­boðið til baka vegna fárra undir­skrifta

Tómas Logi Hallgrímsson björgunarsveitarmaður hefur hefur ákveðið að draga framboð sitt til embættis forseta Íslands til baka. Hann var meðal þeirra fyrstu til að boða framboð en hefur aðeins fengið tíu prósent tilskilinna meðmæla. Þá lýsir hann yfir stuðningi við framboð Baldurs Þórhallssonar.

Máttu ekki leggja fé­lagið niður á fundi sem var boðaður með plaggi í glugga

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ógilt afdrifaríkar ákvarðanir sem teknar voru á aðalfundi félagasamtakanna Menningartengsla Íslands og Rússlands (MÍR) í júní árið 2022. Dómurinn taldi að brotið hefði verið gegn jafnræði félagsmanna með því að boða til aðalfundarins með því að hengja tilkynningu í glugga húsnæðis félagsins.

Ráðist á nemanda Valhúsaskóla í Haga­skóla

Lögregla hefur líkamsárás á sameiginlegu skólaballi Valhúsaskóla og Hagaskóla, sem haldið var í síðarnefnda skólanum í gærkvöldi, til rannsóknar. Óttast var að nemandi við Valhúsaskóla hefði handleggsbrotnað eftir árásina en við nánari skoðun reyndist það ekki rétt.

Vill festa stuðning við Úkraínu í sessi

Utanríkisráðherra kynnti þingsályktunartillögu um stefnu um stuðning við Úkraínu til fimm ára á Alþingi í dag. Markmið stefnunnar er að festa umfangsmikinn stuðning Íslands við Úkraínu í varnarstríði sínu gegn innrásarliði Rússlands í sessi til langframa.

Sjá meira