Fjögur fyrirtæki hafa sótt um leyfi til að stunda hvalveiðar Alls hafa fjögur fyrirtæki sótt um leyfi til að stunda hvalveiðar en samkvæmt svörum frá matvælaráðuneytinu liggur ekki fyrir hvenær afgreiðslu umsókna lýkur. 18.11.2024 06:45
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Fréttastofa hefur undir höndum upptökur sem sýna samtal huldumanns, sem sagðist vera svissneskur fjárfestir, við Gunnar Bergmann Jónsson, son Jóns Gunnarssonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Brot úr þessum upptökum voru sýnd í kvöldfréttum Stöðvar 2. 13.11.2024 19:40
Ríkislögreglustjóri beinir sjónum sínum að leynilegri upptöku Greiningardeild ríkislögreglustjóra hefur ákveðið að kanna mál sem snýr að leyniupptökum huldumanns á samtali sínu við Gunnar Bergmann, son Jóns Gunnarssonar, þingmanns og aðstoðarmanns forsætis- og matvælaráðherra. Lögregla hefur rætt við Gunnar í tengslum við athugun sína á málinu. 13.11.2024 16:24
Tilefni til að kanna hvort ráðherra hafi farið á svig við siðareglur Prófessor við Háskóla Íslands telur tilefni til að kannað verði hvort forsætisráðherra hafi farið á svig við siðareglur ráðherra þegar ákveðið var að Jón Gunnarsson fengi stöðu í Matvælaráðuneytinu. Það að rætt hafi verið á sama fundi að Jón tæki sæti á lista Sjálfstæðiflokksins og fengi stöðu í ráðuneytinu veki upp spurningar. 13.11.2024 14:48
Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn Forsætisráðherra segir ekkert hæft í fréttum byggðum á leynilegri upptöku um að Jón Gunnarsson hafi fengið stöðu í matvælaráðuneytinu gegn því að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Píratar vilja að málið verði rannsakað. 12.11.2024 20:00
„Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Bjarni Benediktsson segir Jón Gunnarsson ekki hafa tekið sæti á lista í skiptum fyrir stöðu í matvælaráðuneytinu. Bjarni segist hafa ákveðið í síðustu viku að Jón kæmi ekki að veitingu hvalveiðileyfis og segir hleranir bera merki þess að verið sé að reyna að hafa áhrif á alþingiskosningar. 12.11.2024 18:45
Segist ekki skulda dómsmálaráðherra skýringar Fyrrverandi félagsmálaráðherra segist ekki skulda dómsmálaráðherra neinar skýringar á afskiptum sínum í máli fjölfatlaðs palestínsks drengs og fjölskyldu sem átti að vísa úr landi í haust. Þá hafi engin formleg beiðni borist frá henni til félagsmálaráðuneytisins um skýringar á því hvers vegna hann skarst í leikinn þegar það átti að vísa drengnum úr landi. 12.11.2024 14:00
Fyrrverandi félagsmálaráðherra eigi eftir að svara í máli Yazans Dómsmálaráðherra segir að fyrrverandi félagsmálaráðherra hafi enn ekki svarað hvaða upplýsingar hann hafði sem kröfðust þess að stöðva ætti brottför fjölfatlaðs palestínsks drengs og fjölskyldu úr landi í haust. Hún er ósátt við niðurstöðu málsins. 11.11.2024 19:46
Pallborðið: Hvaða lausnir bjóða flokkarnir? Í kosningapallborði fréttastofunnar í dag er rætt við frambjóðendur þeirra flokka sem fengju einna flest þingsæti á Alþingi samkvæmt könnunum, sumir hafa verið að sækja á en fylgi annarra að dala. Þátturinn verður í beinni útsendingu og hefst klukkan 14. 11.11.2024 10:36
Ísland meðal Evrópulanda þar sem lyfjatengd andlát eru hlutfallslega flest Ísland er meðal þeirra landa sem er með hlutfallslega flest lyfjatengd andlát í Evrópu samkvæmt tölum frá Evrópusambandinu. Formaður samtaka um skaðaminnkun segir brýnt að stjórnvöld bregðist við. Lyfjafræðingar berjast fyrir því að fá að selja nefúða í lausasölu sem er mótefni við of stórum skammti ópíóðalyfja. 8.11.2024 20:01