Fylliefni hættuleg í röngum höndum og ástandið óásættanlegt Ástandið á fylliefnamarkaðnum er óásættanlegt og frelsið allt of mikið að sögn yfirlæknis hjá Embætti landlæknis. Fylliefni geti verið hættuleg í röngum höndum. 27.9.2023 19:30
Tekur á móti minnst einum á mánuði vegna mistaka við varafyllingu Lýtalæknir segir minnst einn á mánuði leita til sín vegna mistaka við varafyllingu. Fagstéttir lýsa yfir þungum áhyggjum af því að heilbrigðisráðuneytið hafi ekki sett reglur um notkun fylliefna þrátt fyrir að bent hafi verið á alvarlega, og í sumum tilfellum hættulega stöðu í áraraðir. 27.9.2023 12:01
Í lífshættu eftir fegrunarmeðferð: Sagt að leita ekki til læknis Á Íslandi eru efni notuð á ólögmætan hátt við fegrunarmeðferðir og ekkert eftirlit er með ófaglærðu fólki sem starfar oft í skjóli villandi starfsheita. Í Kompás er rætt við lækni sem segir markaðinn stjórnlausan og Díönu sem lenti í lífshættu eftir meðferð sem byggði á alvarlegri vanþekkingu. 26.9.2023 07:00
Stjórnlausar fegrunarmeðferðir: Sprauta lyfi sem einungis læknar mega nota Efni til að leysa upp varafyllingar eru notuð á ólögmætan hátt á snyrtistofum hér á landi. Læknir segir markaðinn með fylliefni stjórnlausan og óttast að illa geti farið. 25.9.2023 21:01
„Það er í raun ótrúlegt að ég skyldi sleppa lifandi frá þessu“ Þrátt fyrir að hafa fengið minnst sextán stunguáverka í ofsafenginni hnífaárás nemanda síns í Noregi segist Ingunn ekki bera kala til hans. Rétt viðbrögð samstarfsfólks og hennar sjálfrar hafi bjargað lífi hennar. 24.9.2023 19:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum ræðum við við Ingunni Björnsdóttur sem var stungin sextán sinnum af nemanda sínum í ofsafenginni hnífaárás í Noregi fyrir mánuði síðan. Hún segir skjót viðbrögð hafa bjargað lífi sínu og ber engan kala til árásarmannsins. 24.9.2023 18:01
Veiðiréttareigendur borgi ekki einu sinni virðisaukaskatt Stofnandi fiskeldisfyrirtækisins Arnarlax sér tækifæri til að bæta framkvæmdina sem er á sjókvíeldi í dag en mikill styr hefur undanfarið staðið um greinina. Framkvæmdastjóri Landsambands veiðifélaga líkir mistökum Artic Fish við slysið í Tsjernobyl og segir að íslenska laxastofninum verði útrýmt í boði stjórnvalda verði ekkert gert. 24.9.2023 15:14
Sú yngsta í hollinu er níutíu ára Fjórar vinkonur á tíræðisaldri sem spila golf nánast daglega segja félagsskap og hreyfingu skipta miklu máli á efri árum. Þær segja aldrei of seint að prufa eitthvað nýtt og ætla að spila ævina út. 13.9.2023 19:34
Eins og gott hjónabandspróf Parið Rut og Kristján Torfi tefldi fjárhag sínum í tvísýnu þegar þau ákváðu að kaupa trillu og gera út á handfæraveiðum. Þau vilja að ungt fólk hafi tækifæri til að stunda smábátaútgerð og segja tímann á sjó fínasta sambandspróf. 12.9.2023 21:00
Skilur ekkert í yfirlýsingum um aðhald í ríkisfjármálum Formaður Miðflokksins gefur lítið fyrir yfirlýsingar fjármálaráðherra um aðhald í ríkisfjármálum þegar fjárlagafrumvarpið var kynnt. Þingmaður Viðreisnar segir lítið nýtt í frumvarpinu. 12.9.2023 12:31