Kvöldfréttir Stöðvar 2 Öllum sóttvarnatakmörkunum verður aflétt á miðnætti annað kvöld. Forsætisráðherra segir þjóðina vera að endurheimta eðlilegt líf eftir faraldurinn en sóttvarnalæknir minnir enn á að þetta sé ekki alveg búið. 23.2.2022 18:00
Blaðamennirnir grunaðir um dreifingu á kynferðislegu efni Greinagerð Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra vegna rannsóknar á blaðamönnum vegna umfjöllunar um hina svokölluðu Skæruliðadeild Samherja var lögð fram fyrir dómi í dag en þar kemur fram að lögregla rannsaki kynferðisbrot gegn Páli Steingrímssyni, skipstjóra Samherja. Blaðamennirnir fjórir eru grunaðir um dreifingu á kynferðislegu efni og brot á friðhelgi. 23.2.2022 17:39
Morðingjar Arbery eiga yfir höfði sér annan lífstíðardóm Þrír hvítir karlmenn, sem voru sakfelldir fyrir morðið á hinum 25 ára Ahmaud Arbery í Georgíu, hafa nú verið sakfelldir fyrir hatursglæp en kviðdómur í Brunswick komst að þeirri niðurstöðu að mennirnir höfðu brotið alríkislög með því að meina Arbery um að ganga um almenningsgötu vegna litarhafts hans. 23.2.2022 00:17
Hafa handsamað gíslatökumanninn í Hollandi Vopnaður karlmaður tók fólk í gíslingu í Apple-verslun í miðborg Amsterdam fyrr í kvöld. Aðgerðir lögreglu stóðu yfir í nokkrar klukkustundir áður en maðurinn var handsamaður. Gíslarnir eru komnir í öruggt skjól. 22.2.2022 21:55
Bareigendur til í slaginn um helgina og taka afléttingum fagnandi Að óbreyttu verður tilkynnt um afléttingar á öllum takmörkunum innanlands og á landamærunum í síðasta lagi á föstudag. Bareigendur eru farnir að búa sig undir mikil skemmtanahöld um helgina. 22.2.2022 21:00
Gagnrýna ummæli formannsins: „Að afsaka kennara sem beita börn ofbeldi er óásættanlegt“ Landssamtök foreldra lýsa yfir vonbrigðum með málflutning formanns Félags grunnskólakennara í máli kennara í Dalvík sem hlaut nýverið bætur vegna ólögmætrar uppsagnar. Samtökin segja formanninn hafa tekið afstöðu með einhliða frásögn kennarans og varpa ábyrgðinni á foreldra barnsins. 22.2.2022 20:03
Stutt í næstu lægð eftir sannkallað aftakaveður Óvenju sterkar vindhviður mældust í aftakaveðrinu sem gekk yfir í nótt og slógu í hátt í sjötíu metra á sekúndu á hálendinu, sem er með því hærra sem sést hefur. Víðtækar samgöngu- og rafmagnstruflanir urðu, þök rifnuðu af húsum og uppblásið íþróttahús í Hveragerði jafnaðist við jörðu. Veðurfræðingur segir að næsta lægð, sem væntanleg er á föstudag, líti ekki sérstaklega vel út. 22.2.2022 19:38
Erum enn á lægðarbrautinni: „Við getum ekki hrósað happi alveg strax“ Gera má ráð fyrir áframhaldandi lægðargang næstu daga. Rauðar viðvaranir tóku gildi í gær á suðvesturhorni landsins, í annað sinn í þessum mánuði og í þriðja sinn frá því að litakóðunarkerfi Veðurstofunnar var tekið í notkun árið 2017. 22.2.2022 17:57
Björguðu bílum í svakalegum vatnselg á Miklubraut: „Þeir voru bara ekki með nógu stór stígvél strákarnir“ Mikill vatnselgur er nú víða á götum á höfuðborgarsvæðinu. Björgunarsveitargarparnir Magnús Stefán Sigurðsson og Gunnar Ingi Sverrisson voru til að mynda að reyna að losa stíflur á Miklubrautinni og hjálpa ökumönnum í vandræðum þegar fréttastofa náði tali af þeim. Þeir létu vatnselginn lítið á sig fá en biðla til fólks að fara varlega. 22.2.2022 00:53
Ferðalangar sátu fastir í fimm klukkustundir: „Við vorum hrædd“ Björgunarsveitir vinna enn að því að ferja fólk af heiðinni þar sem fjölmargir bílar sitja fastir vegna veðurs en þó nokkrir útlendingar voru á meðal þeirra sem festust. 22.2.2022 00:13