Fréttamaður

Heimir Már Pétursson

Heimir Már er fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis.

Nýjustu greinar eftir höfund

Vonir bundnar við vopna­hlé á Gaza á mánu­dag

Vonir eru bundnar við að vopnahlé komist á í átökunum á Gaza á mánudag. Fjöldi manns hefur fallið í loftárásum Ísraels á Rafahborg undanfarinn sólahring og gífurlegur skortur er á öllum lífsnauðsynjum.

Bönkunum hugnast ekki greiðslu­miðlun for­sætis­ráð­herra

Samtök fjármálafyrirtækja telja hægt að ná fram markmiðum stjórnvalda um öryggi og hagkvæmni í kortaviðskiptum án þess að stofnuð verði sértök íslensk greiðslumiðlun undir hatti Seðlabankans eins og lagt er til í frumvarpi forsætisráðherra.

Drög að sátt lögð fyrir ríkis­stjórn á næstu dögum

Fulltrúar Starfsgreinasambandsins, Samiðnar og Eflingar hafa fundað með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í allan dag. Reiknað er með að heildarpakki kjarasamninga verði lagður fyrir ríkisstjórn um eða upp úr miðri viku og ríkisstjórnin kynni þá þær aðgerðir sem hún er reiðubúin að grípa til í skiptum fyrir sátt á vinnumarkaði.

Tíðinda að vænta í kjara­við­ræðum um miðja vikuna

Vonir eru bundnar við að niðurstaða fáist í kjaraviðræður um eða upp úr miðri þessari viku. Brotthvarf VR og Landssambands verslunarmanna úr breiðfylkingu stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins hefur hins vegar flækt stöðuna.

Vonar að frum­varp um húsakaup fljúgi í gegn

Frumvarp um uppkaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík kemur til fyrstu umræðu á Alþingi í dag og vonar fjármálaráðherra að það geti orðið að lögum fyrir lok næstu viku. Heimild er til undanþágu frá skilyrði um lögheimili eigenda húsnæðis í bænum en almennt er miðað við uppkaup húsnæðis fólks með lögheimili í Grindavík hinn 10. nóvember.

Verkfallsað­gerðir breið­fylkingarinnar yrðu sam­ræmdar

Forysta stéttarfélaga innan breiðfylkingarinnar segir aðgerðir félaganna verða samræmdar komi til þess að boðað verði til verkfalla. Ljóst sé að fyrirvari Samtaka atvinnulífsins um sjálfstæði Seðlabankans standist ekki og vonandi verði hægt að ganga til samninga á ný sem fyrst.

Hvetja til aukinnar hernaðar­upp­byggingar Evrópu

Forsætisráðherra Póllands og kanslari Þýskalands hvetja til tafarlausrar og aukinnar hernaðaruppbyggingar og samvinnu Evrópuríkja til að bregðast við útþenslustefnu Rússa. Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkt loks aukna aðstoð við Úkraínu í gærkvöldi.

Sjá meira