Littler sá yngsti til að klára níu pílna legg og vann sitt fyrsta mót Hinn 16 ára gamli Luke Littler heldur áfram að skrifa pílusöguna. Hann vann í kvöld sitt fyrsta mót á vegum PDC-samtakana og varð einnig sá yngsti í sögunni til að klára níu pílna legg í sjónvörpuðum leik. 19.1.2024 23:00
Styrmir stigahæstur í sigri Styrmir Snær Þrastarson var stigahæsti maður vallarins er Belfius Mons vann góðan átta stiga útisigur gegn Kortrijk í hollensku og belgísku deildinni í körfubolta í kvöld, 72-80. 19.1.2024 22:24
Ótrúlegur endasprettur og Danir komnir langleiðina í undanúrslit Danir stigu stórt skref í átt að undanúrslitum Evrópumótsins í handbolta er liðið vann eins marks sigur gegn Svíum í kvöld, 28-27. 19.1.2024 21:14
Inter flaug í úrslit Inter tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum ítalska ofurbikarsins með öruggum 3-0 sigri gegn Lazio á King Saud University vellinum í Sádi-Arabíu. 19.1.2024 20:53
Sjáðu geggjað mark Bebe lengst utan af velli Bebe, fyrrverandi leikmaður Manchester United, skaut heldur betur upp kollinum á Afríkumótinu í fótbolta í dag. 19.1.2024 20:00
Ætlaði ekki að yfirgefa kvennaliðið en snýr sér nú að karlaliðinu Pálmi Rafn Pálmason er hættur sem þjálfari kvennaliðs KR í knattspyrnu. Hann snýr sér nú að karlaliðinu og hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari liðsins. 19.1.2024 19:33
Senegal tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum Senegal tryggði sér í kvöld sæti í 16-liða úrslitum Afríkumótsins í knattspyrnu er liðið vann 3-1 sigur gegn Kamerún. 19.1.2024 18:57
Norðmenn halda í vonina eftir nauðsynlegan sigur Noregur vann lífsnauðsynlegan þriggja marka sigur er liðið mætti Hollandi á EM í handbolta í kvöld. Lokatölur 35-32, og sigurinn þýðir að Norðmenn halda enn veika von um sæti í undanúrslitum. 19.1.2024 18:34
Lærisveinar Dags í undanúrslit og Barein tók skref í sömu átt Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í japanska landsliðinu eru komnir í undanúrslit Asíumótsins í handbolta eftir þriggja marka sigur gegn Sameinuðu arabísku furstadæmunum í dag, 29-26. 19.1.2024 17:50
Serbar láta þjálfarann fara eftir slakt gengi á EM Serbneska handknattleikssambandið hefur látið spænska þjálfarann Toni Gerona taka poka sinn eftir slakt gengi serbneska landsliðsins á EM í handbolta sem nú fer fram. 19.1.2024 17:31