Ásgeir seðlabankastjóri ársins að mati tímaritsins The Banker Að hækka stýrivexti þvert gegn ráðleggingum annarra hagfræðinga og seðlabanka krefst ekki aðeins hugrekkis heldur sömuleiðis ákveðni, eiginleikar sem Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri Íslands hefur yfir að bera, segir í umfjöllun The Banker. Alþjóðlega fjármálatímaritið, sem er gefið út af The Financial Times, hefur valið Ásgeir sem seðlabankastjóra ársins 2023. 4.1.2023 06:31
Ætti að vera „auðsótt“ fyrir markaðinn að ráða við útgáfuþörf ríkissjóðs Áætluð lánsfjárþörf ríkissjóðs á árinu 2023, sem hefur boðað útgáfu ríkisbréfa fyrir samtals um 140 milljarða, ætti ekki að valda miklum erfiðleikum fyrir innlendan skuldabréfamarkað, að sögn sérfræðinga, sem setja samt spurningamerki við litla áherslu á verðtryggða skuldabréfaútgáfu. Frekari sala á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka mun skipta höfuðmáli um hvort fjárþörf ríkissjóðs verði endurskoðuð til hækkunar eða lækkunar á árinu. 3.1.2023 16:03
Útlit fyrir að gjaldeyriskaup lífeyrissjóða hafi tvöfaldast að umfangi í fyrra Gjaldeyriskaup íslensku lífeyrissjóðanna jukust nokkuð hröðum skrefum á síðustu mánuðum ársins 2022 en samhliða því fór gengi krónunnar að gefa talsvert eftir. Útlit er fyrir að hrein gjaldeyriskaup sjóðanna í fyrra verði tvöfalt meiri borið saman við árið 2021 en svigrúm þeirra til að auka vægi fjárfestinga í erlendum gjaldmiðlum í eignasöfnum sínum hefur aukist talsvert eftir miklar verðlækkanir á alþjóðlegum mörkuðum. 3.1.2023 13:30
Héldu áfram að selja í verðbréfasjóðum þrátt fyrir hækkanir á mörkuðum Hreinar innlausnir fjárfesta í innlendum verðbréfasjóðum á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2022 nema samanlagt yfir 37 milljarðar króna á tímabili sem hefur einkennst af mikilli óvissu og hræringum á mörkuðum um allan heim. Ekkert lát var á útflæðinu í nóvember, meðal annars í hlutabréfasjóðum, sem hafa skroppið saman um 30 milljarða frá því í ársbyrjun 2022. 3.1.2023 07:00
Áformar að gefa út ríkisbréf fyrir 140 milljarða og skoðar erlenda fjármögnun Ríkissjóður, sem verður rekinn með um 120 milljarða króna halla á árinu 2023 samkvæmt fjárlagafrumvarpi, áformar að mæta fjárþörf sinni með útgáfu ríkisbréfa fyrir um 140 milljarða króna. Það er litlu lægri fjárhæð en heildarútgáfa ársins 2022 en í ársáætlun lánamála ríkissjóðs segir að til greina komi að gefa út skuldabréf erlendis eða ganga á gjaldeyrisinnstæður ríkisins í Seðlabankanum til að mæta að hluta lánsfjárþörfinni á þessu ári. 2.1.2023 13:35
LSR byggir upp stöðu í fjarskiptafélaginu Nova Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) er orðinn einn allra stærsti hluthafi Nova eftir að hafa sópað upp bréfum í fjarskiptafélaginu á síðustu dögum ársins 2022. Hlutabréfaverð Nova, sem hefur átt undir högg að sækja frá því að það var skráð á markað um mitt síðasta ár, hefur farið hækkandi undanfarnar vikur og ekki verið hærra frá því um miðjan september. 2.1.2023 09:03
Íslendingar selja sig út úr Edition hótelinu til sjóðs í Abú Dabí fyrir 23 milljarða Hópur íslenskra fjárfesta, að stórum hluta lífeyrissjóðir, hefur formlega gengið frá sölu á liðlega 70 prósenta hlut sínum í Reykjavík Edition-hótelinu í Austurhöfn til sjóðs í eigu fjárfestingarfélagsins ADQ í furstadæminu Abú Dabí. 31.12.2022 14:49
Ingibjörg og eigendur Eskju kaupa Hótel Selfoss Hið nýstofnaða eignarhaldsfélag JAE, sem er meðal annars í eigu Ingibjargar Pálmadóttur fjárfestis og eigenda útgerðarfyrirtækisins Eskju, hefur gengið frá kaupum á Hótel Selfoss. Áður hafði sama félag fyrr á árinu einnig eignast Hótel Vestmannaeyjar. 31.12.2022 10:34
LSR fyrsti af stóru lífeyrissjóðunum sem fjárfestir í Alvotech Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) var í hópi innlendra fjárfesta, ásamt meðal annars þremur öðrum lífeyrissjóðum, sem komu að fjármögnun á líftæknilyfjafyrirtækinu Alvotech fyrr í þessum mánuði með kaupum á skuldabréfum sem eru breytanleg í almenn hlutabréf að einu ári liðnu, samkvæmt heimildum Innherja. Á meðal þriggja langsamlega stærstu lífeyrissjóða landsins – LSR, LIVE og Gildis – er LSR fyrsti sjóðurinn sem kemur að fjármögnun á Alvotech en það er í dag orðið verðmætasta fyrirtækið í Kauphöllinni. 29.12.2022 10:31
Áforma að ganga inn í tilboð PT Capital og stækka stöðu sína í Arctic Adventures Fjárfestingafélagið PT Capital frá Alaska, sem er meðal annars stór hluthafi í Nova og Keahótelum, hefur gert tilboð í eignarhlut þriggja hluthafa í Arctic Adventures, samanlagt tæplega helmingshlut. Aðrir hluthafar í félaginu stefna hins vegar að því að nýta sér forkaupsrétt og ganga inn í tilboð PT Capital og þannig stækka umtalsvert við eignarhlut sinn í íslenska ferðaþjónustufyrirtækinu. 28.12.2022 16:00