Evrópa er að segja að hún verði að fara íslensku leiðina í orkumálum Ný skýrsla um samkeppnishæfni Evrópu, sem leiddi meðal annars í ljós að sveiflukennt orkuverð er ein helsta ástæða efnahagsvanda álfunnar, undirstrikar að „íslenska leiðin“ með áherslu á langtímasamninga við stórnotendur er forsenda fjárfestinga og öflugs atvinnulífs, að mati forstjóra Landsvirkjunar. Hann telur að umræða um að grípa mögulega inn í tvíhliða samninga milli Landsvirkjunar og stórra viðskiptavina í tengslum við heimildir til endursölu, með því að kippa þeim úr sambandi eða breyta með lagasetningu, endurspegla „ótrúlega skammsýni og algjört þekkingarleysi.“ 29.10.2024 15:33
Verðbólguhjöðnun í kortunum sem gæti opnað á stóra vaxtalækkun í nóvember Nokkuð skiptar skoðanir eru á meðal greinenda og hagfræðinga hversu hratt verðbólgan mun halda áfram að ganga niður þegar mælingin fyrir október verður kunngjörð síðar í vikunni, sú síðasta áður en peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næsta mánuði. Gangi bjartsýnustu spár eftir um að árstaktur verðbólgunnar muni lækka niður í fimm prósent ætti það að auka líkur á að Seðlabankinn telji forsendur til að íhuga að minnsta kosti 50 punkta vaxtalækkun. 28.10.2024 18:00
Telur æskilegt að lífeyrissjóðir beiti sér líkt og aðrir fjárfestar í skráðum félögum Seðlabankinn er þeirrar skoðunar að það sé „æskilegt“ að lífeyrissjóðir, sem eru langsamlega stærstu fjárfestarnir á innlendum verðbréfamarkaði, beiti áhrifum sínum sem hluthafar í skráðum félögum í Kauphöllinni líkt og aðrir fjárfestar. Bankinn brýnir hins vegar fyrir lífeyrissjóðunum mikilvægi þess að stjórnarmenn séu sjálfstæðir í störfum sínum og eigi að gæta að hagsmunum sjóðsfélaga við að „hámarka ávöxtun eigna.“ 27.10.2024 13:42
Skattahvatar „mikilvægasta tólið“ hjá ríkinu til að styðja við hugverkaiðnað Fjármálaráðherra hefur að stórum hluta dregið til baka upphafleg áform um verulega lækkun á endurgreiðsluhlutfalli og hámarki á frádráttárbærum kostnaði í tengslum við rannsóknir og þróun nýsköpunarfyrirtækja sem hefði, að mati hagsmunasamtaka í hugverkaiðnaði, valdið því að fyrirtæki myndu færa þróunarstarfsemi sína úr landi. Samtök iðnaðarins segja breytingarnar frá frumvarpsdrögum „jákvæðar“ en vilja sjá meira gert sem snýr að skattahvötum. 26.10.2024 12:53
Unbroken sótti hálfan milljarð og stefnir að skráningu innan fárra ára Íslenska sjávarlíftæknifélagið Unbroken, sem er meðal annars að stórum hluta í eigu Útgerðarfélags Reykjavíkur, hefur klárað hlutafjáraukningu upp á samtals hálfan milljarð króna í því skyni að efla alþjóðlega markaðssetningu á hinu „byltingarkennda“ fæðubótarefni. Virði félagsins í viðskiptunum er um 7,5 milljarðar en Unbroken fæðubótarefnið er núna selt til tuga landa. 25.10.2024 09:39
Seðlabankinn vill skoða að heimila lífeyrissjóðum að lána verðbréf Hægt væri að auka skilvirkni og dýpt verðbréfamarkaða hér á landi með því að veita íslenskum lífeyrissjóðum, langsamlega stærstu fjárfestunum á markaði, frekari heimildir til afleiðuviðskipta og jafnframt leyfa þeim að lána hlutabréf eða skuldabréf sín, að sögn Seðlabankans. Vegna stærðar sinnar getur hegðun lífeyrissjóða heft „veruleg áhrif“ á verðmyndun á markaði og því sé jákvætt fyrir fjármálastöðuga að skoða leiðir sem gætu aukið þátttöku annarra fjárfesta. 24.10.2024 10:25
Afkoma Icelandair var vel undir spám greinenda og gengið lækkaði skarpt Minni eftirspurn á markaðnum til Íslands og lægri meðalfargjöld á flugi yfir Atlantshafið veldur því að rekstrarhagnaður Icelandair af farþegafluginu hefur skroppið saman um tæplega níutíu prósent á fyrstu níu mánuðum ársins. Uppgjör Icelandair fyrir þriðja fjórðung var nokkuð undir væntingum greinenda og fjárfesta en félagið sér fram á verulega bætta afkomu á næsta fjórðungi miðað við sama tíma í fyrra og horfurnar fyrir 2025 séu góðar samhliða því að sumir keppinautar eru að draga saman seglin. 23.10.2024 18:16
Búast við að klára samrunann við Marel í árslok nú þegar styttist í samþykki ESB Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur nú gefið til kynna að hún sé reiðubúin að taka á móti formlegi tilkynningu vegna samruna John Bean Technologies (JBT) og Marel en stjórnendur bandaríska félagsins telja að yfirlýst áform um að klára viðskiptin undir árslok eigi að ganga eftir. Hlutabréfaverð JBT hefur rokið upp eftir að afkoman á þriðja ársfjórðungi var yfir væntingum greinenda en félagið skilaði mettekjum og framlegðin batnaði sömuleiðis verulega. 23.10.2024 13:40
Aðaleigandi Geo Salmo fer fyrir ellefu milljarða fjárfestingafélagi Fjárfestingafélagið Bull Hill Capital, sem hagnaðist verulega fyrir fáeinum árum þegar erlendir fjárfestar keyptu Advania og síðar gagnavershluta fyrirtækisins, ræður yfir samtals um ellefu milljarða króna eignasafni hér á landi og er nánast skuldlaust. Miðað við bókfært virði á litlum eftirstandandi hlut þess í Advania var upplýsingatæknifyrirtækið, sem hefur stækkað hratt undanfarin ár, verðmetið á nærri 300 milljarða um síðustu áramót. 22.10.2024 18:04
Hluturinn í Controlant er „stærsta óvissan“ í eignasafni Sjóvá Ef Sjóvá hefði vitað um þau viðbótarréttindi sem fjárfestar fengu við útboð Controlant í árslok 2023, sem ver þá fyrir umtalsverðri gengislækkun í yfirstandandi hlutafjáraukningu, þá hefði tryggingafélagið ekki bókfært virði hlutarins hjá sér miðað við gengið 105 krónur á hlut, segir forstöðumaður fjárfestinga. Stjórnendur Sjóvá merkja aukna samkeppni í tryggingarstarfseminni eftir að einn af keppinautum félagsins, VÍS, sameinaðist Fossum fjárfestingabanka. 22.10.2024 14:03