Aðstoðardómarinn bað Bæjara afsökunar: „Þetta er hörmung“ Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Bayern München, segir að annar aðstoðardómarinn í leiknum gegn Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu hafi beðist afsökunar á að hafa lyft flaggi sínu of snemma þegar Bæjarar skoruðu undir lokin. Real vann leikinn, 2-1, og einvígið, 4-3 samanlagt. 8.5.2024 22:47
Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Færeyjar eru á barmi þess að komast á HM í handbolta í fyrsta sinn eftir stórsigur á Norður-Makedóníu, 34-27, í fyrri leik liðanna í umspili í kvöld. Færeyingar standa því afar vel að vígi fyrir seinni leikinn á laugardaginn. 8.5.2024 22:32
Joselu hetjan þegar Real Madrid fór í úrslit í enn eitt skiptið Joselu var hetja Real Madrid þegar liðið tryggði sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu með 2-1 endurkomusigri á Bayern München í kvöld. Madrídingar unnu einvígið, 4-3 samanlagt. 8.5.2024 20:55
Martin og Styrmir góðir en liðunum gekk misvel Martin Hermannsson átti góðan leik þegar Alba Berlin vann öruggan sigur á Bonn, 90-69, í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. 8.5.2024 19:48
Fiorentina aftur í úrslit Sambandsdeildarinnar Fiorentina er komið í úrslit Sambandsdeildar Evrópu, annað árið í röð. 8.5.2024 18:55
Gamli FH-ingurinn kom Fredrikstad áfram í bikarnum Júlíus Magnússon og félagar í Fredrikstad eru komnir í átta liða úrslit norsku bikarkeppninnar eftir sigur á Raufoss í dag, 2-3. 8.5.2024 18:11
Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla Birkir Már Sævarsson er eini uppaldi Valsmaðurinn sem er að spila í Bestu deild karla. 7.5.2024 16:09
Gaf leik því hún vildi ekki keppa við trans konu Þekktur pílukastari dró sig úr leik á móti í Danmörku þar sem hún vildi ekki spila við trans konu. 7.5.2024 15:02
„Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ Viðar Örn Kjartansson segir að fjarvera sín í leik KA og KR hafi verið blásin full mikið upp og segir málinu lokið. Hann segist enn eiga eitthvað í land til að komast í sitt besta form en er staðráðinn í að hjálpa KA-mönnum að komast á sigurbraut. 7.5.2024 14:18
Kosinn nýliði ársins með fullu húsi Franski körfuboltamaðurinn Victor Wembanyama hjá San Antonio Spurs var valinn nýliði ársins í NBA-deildinni með fullu húsi stiga. 7.5.2024 12:00