Lagði sig á hringtorgi í Kópavogi í nístingskulda Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu í gærkvöldi eða nótt um ölvaðan einstakling sem hafði ákveðið að leggja sig á hringtorgi í Kópavogi. Hiti var undir frostmarki á höfuðborgarsvæðinu í nótt, en þar hefur jafnframt snjóað talsvert undanfarið. Lögreglan ók manninum heim til sín. 27.1.2024 08:03
Skjálfti við Bláfjöll fannst á höfuðborgarsvæðinu Klukkan um hálfsexleytið í morgun var skjálfti sem mældist 3,1 að stærð fimm kílómetrum norðvestur af Bláfjallaskála. Hann fannst um höfuðborgarsvæðið. 27.1.2024 07:34
Ákærður fyrir að leggja átta manns í lífshættu í ábataskyni Maður hefur verið ákærður fyrir láta útbúa búseturými í atvinnuhúsnæði án tilskilinna leyfa og án nauðsynlegra brunavarnaráðstafanna. Fram kemur í ákæru að maðurinn hafi leigt húsnæðið og leigt það út til annarra, en í að minnsta kosti átta menn bjuggu í því. Með því huga ekki að brunavörnum er hann sagður hafa stefnt lífi mannanna í hættu. 27.1.2024 07:00
Segist ekki vanhæf vegna „harla óvenjulegs“ tölvupósts Ómars Sigríður Hjaltested, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, þarf ekki víkja úr sæti úr dómsmáli líkt og Ómar R. Valdimarsson lögmaður krafðist. Hann vildi að Sigríður tæki mögulegt vanhæfi sitt til skoðunar vegna fyrri samskipta þeirra á milli, sem tengjast sakamáli sem hefur verið kennt við skemmtistaðinn Bankastræti Club. 26.1.2024 16:35
Íslendingur handtekinn fyrir að ljúga um árás á Tenerife Íslenskur ferðamaður á Tenerife hefur verið handtekinn grunaður um ljúga til um árás sem hann sagðist hafa orðið fyrir og reyna svíkja út fé vegna þess. Um er að ræða karlmann sem er 66 ára gamall, en handtakan fór fram á hóteli mannsins á suðurhluta eyjunnar. 26.1.2024 13:33
Ekki fallist á að fordómar gegn múslimum hafi verið ástæðan Lögreglustjórinn á Suðurnesjum braut ekki lög með því að endurnýja ekki ráðningu manns í starf landamæravarðar á Keflavíkurflugvelli sem taldi sig vera mismunað vegna trúar sinnar. Þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar jafnréttismála. 26.1.2024 08:57
Fullt hús á Fullu húsi Fyrsta kvikmynd Sigurjóns Kjartanssonar í fullri lengd, Fullt hús, verður frumsýnd á morgun föstudag, en forsýning myndarinnar fór fram í Laugarásbíói í gærkvöldi. 25.1.2024 16:15
Melanie er látin Bandaríska söngkonan Melanie Safka, sem er betur þekkt sem einungis Melanie, er látin 76 ára að aldri. Hún er hvað þekktust fyrir að hafa sungið lögin Brand New Key, What Have They Done to My Song Ma, og Lay Down (Candles in the Rain), sem og ábreiðu á Rolling Stones-slagaranum Ruby Tuesday. 25.1.2024 10:22
Vilhjálmur „ofboðslega svekktur og sorgmæddur“ yfir viðræðuslitunum Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, telur að fyrirkomulagið sem verkalýðshreyfingin viðhafði í samningaviðræðum við Samtök atvinnulífsins sé reynt til þrautar. 25.1.2024 09:02
Tjaldið tekið niður Tjaldbúðir palestínskra mótmælenda verða að öllu óbreyttu teknar niður af Austurvelli í dag eftir tæplega mánaðarviðveru. Yfirvöld hafa beðið mótmælendurna um að fjarlægja búðirnar, og segjast þeir ætla að verða við því. 24.1.2024 14:00