Ólafur segist ekki hafa farið á bak við stjórn Neytendasamtakanna Segir það svik við sína kjósendur að halda ekki áfram. 20.5.2017 18:30
Hefur verið rætt um að efna til hugmyndasamkeppni um framtíð Hegningarhússins Halldóra Vífilsdóttir, forstjóri framkvæmdarsýslu ríkisins, segir að hugmyndir séu nú uppi um að efna til hugmyndasamkeppni um framtíð hússins. Fyrst verði þó ráðist í viðhald á húsinu og hefjast þær framkvæmdir á þessu ári. 20.5.2017 14:21
Segir umræðu um rafrettur ekki byggja á staðreyndum Talsverður ágreiningur hefur verið um gagnsemi rafretta og mögulega skaðsemi þeirra. 13.5.2017 20:32
Hafa stöðvað 60 sendingar af Melatónín það sem af er ári Embætti landlæknis benti nýlega á að lyfið hafi áhrif á ýmis kerfi í líkama fólks og eru sérstakar áhyggjur af lyfjagjöf til barna og yngra fólks þegar langtímaáhrif eru ekki kunn. 10.5.2017 20:21
Segja mikilvægt að íslensk yfirvöld láti í sér heyra vegna stöðunnar í Téténíu Formaður Samtakanna 78 segir mikilvægt að yfirvöld á Íslandi láti í sér heyra vegna ofbeldis sem samkynhneigðir menn eru beittir í sjálfsstjórnarlýðræðinu Téténíu. Hún segir að yfir standi útrýmingarherferð gegn mönnunum og að ástandið versni með deginum. 6.5.2017 14:07
Kennarar FÁ slegnir: „Fyrst og fremst ósátt við alla þessa óvissu og þessa leyndarhyggju“ Viðræður milli menntamálaráðuneytisins, Tækniskóla Íslands og Fjölbrautaskólans við Ármúla um sameiningu skólanna hafa staðið yfir frá því í febrúar. 5.5.2017 21:00
Nokkur hundruð manns á stofnfundi Sósíalistaflokksins: Gunnar Smári telur að umræðan um gjaldþrot Fréttatímans muni ekki skaða Sósíalistaflokkinn Nokkur hundruð manns mættu á stofnfund Sósíalistaflokks Íslands í Tjarnabíói í dag. Fjöldi fólks skráði sig þegar í stað í flokkinn, að sögn stofnanda hans. Hann telur að umræða um gjaldþrot Fréttatímans muni ekki koma til með að skaða flokkinn. 1.5.2017 20:00
Ráðuneytið vinnur að gerð reglugerðar um fylgdarlaus börn á flótta Dómsmálaráðherra segir reglurnar snúa að verklagi og málsmeðferð þessara mála. 19.4.2017 21:17
Upplifun fjölskyldunnar ekki með þeim hætti sem spítalinn vildi Landspítalinn sendir frá sér yfirlýsingu vegna mistakahrinu sem maður varð fyrir í framhaldi af skurðaðgerð. 17.4.2017 20:36
Fimm grunaðir um aðild að hnífstungunni á Akureyri Tveir karlar og ein kona hafa verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 21. apríl næstkomandi vegna hnífstunguárásar í Kjarnaskógi á Akureyri á föstudaginn langa. 17.4.2017 11:59