Allar björgunarsveitir höfuðborgarsvæðisins kallaðar út vegna hvassviðris Allar björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu hafa verið kallaðar út vegna gríðarlegs fjölda tilkynninga um foktjón. Meðal þeirra verkefna björgunarsveita, sem eru orðin hundrað talsins, er hjólhýsi sem fauk á hliðina í Kórahverfinu. Flugvél Play neyddist til að lenda á Akureyri þar sem ekki tókst að lenda henni í Keflavík. 7.4.2023 16:16
Mótmælendur kveiktu í uppáhalds veitingastað Macron Hundruð þúsunda hafa mótmælt fyrirætlunum franskra stjórnvalda um að hækka eftirlaunaaldur úr 62 árum í 64 ár þar í landi. Í dag kveiktu mótmælendur í París í sóltjaldi veitingastaðar sem frægur er fyrir að hýsa teiti forsetans í landinu, Emmanuels Macrons. 6.4.2023 23:08
„Óformlegar viðræður“ um endurreisn Hringbrautar Sigmundur Ernir Rúnarsson, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins, segir að áhugi sé fyrir því meðal fjárfesta að endurreisa sjónvarpsstöðina Hringbraut. Greinilegur söknuður sé af stöðinni. 6.4.2023 22:05
Hamas beri ábyrgð á eldflaugaárásunum í Líbanon Ísraelsher sakar Hamas-samtökin um að standa að baki eldflaugaárás sem gerð var í suður Líbanon í dag á landsvæði í norður Ísrael. Loftvarnir hafi skotið niður flestar þeirra 34 flauga sem skotið var. 6.4.2023 21:18
Heildartjónið nemur 150 milljónum króna Náttúruhamfaratrygging Íslands metur tjónið af völdum snjóflóðsins sem féll í Neskaupstað á 150 milljónir króna. Hulda Ragnheiður Árnadóttir, forstjóri stofnunarinnar, segir aðallega um að ræða tjón á gólfefnum og timburverki. Bifreiðar eru almennt undanþegnar tryggingunni. 6.4.2023 20:06
Ómari gert að endurgreiða slasaðri konu 1,8 milljónir Lögmanninum Ómari R. Valdimarssyni hefur verið gert að endurgreiða slasaðri konu 1,8 milljónir króna vegna lögmannsþóknunar sem talin var margfalt hærri en almennt gerist. Alls fékk konan 9,6 milljónir greiddar frá tryggingafélagi og fékk Ómar greidda 3,1 milljón af þeirri upphæð. 6.4.2023 19:09
Dagskrá HönnunarMars í loftið: „Hvað nú?“ HönnunarMars breiðir úr sér um höfuðborgarsvæðið dagana 3. - 7. maí næstkomandi. Í ár ber hátíðin yfirskriftina Hvað nú? 5.4.2023 23:10
Þungir dómar í ljósi þess að mennirnir voru ekki höfuðpaurar Þungir dómar féllu í stóra kókaínmálinu svokallaða í héraðsdómi í dag. Afbrotafræðingur segir dómana þunga í ljósi þess að hinir sakfelldu hafi ekki verið höfuðpaurar. Huga verði að eftirspurnarhliðinni þar sem ljóst sé að refsistefnan sé ekki að bera tilætlaðan árangur. 5.4.2023 22:37
Leggjast alfarið gegn því að veita stað Óla Geirs áfengisleyfi Bæjarráð Reykjanesbæjar leggst alfarið gegn því að LUX, skemmtistað í eigu Óla Geirs verði veitt tímabundið áfengisleyfi. 5.4.2023 21:45
Fermingarferðin og 10 miða klippikort í uppnámi Tilkynning flugfélagsins Niceair um að hlé yrði gert á starfsemi er mikið áfall fyrir Norðlendinga. Sigurbjörn Árni Arnbjörnsson, skólameistari á Laugum og íþróttalýsandi, átti bókaða fermingarferð fyrir soninn og í framhaldinu ferð til Póllands á skólaráðstefnu sem nú er í uppnámi. 5.4.2023 21:15