Fresta frumsýningu Dune vegna verkfalls Forsvarsmenn Warner Bros hafa ákveðið að fresta frumsýningu kvikmyndarinnar Dune: Part Two um rúma fjóra mánuði vegna verkfalls leikara. Timothée Chalamet, Zendaya og aðrir leikarar geta annars ekki tekið þátt í að kynna myndina vegna verkfalls leikara. 24.8.2023 23:22
Deilt um gagnsóknina Bandarískir og úkraínskir herforingjar eru sagðir hafa deilt um framkvæmd gagnsóknar Úkraínumanna. Valerí Salúsjní, yfirmaður úkraínska hersins, segir hermenn sína nærri því að brjóta sér leið í gegnum varnir Rússa. 24.8.2023 22:33
Segja Prigozhin hafa verið ráðinn af dögum Bráðabirgðaniðurstaða leyniþjónustusamfélags Bandaríkjanna er að rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin, sem átti málaliðahópinn Wagner Group, hafi verið ráðinn af dögum. Heimildarmenn fjölmiðla vestanhafs eru þó ekki sammála um hvort að talið sé að einkaflugvél hans hafi verið skotin niður yfir Rússlandi í gær eða hvort sprengju hafi verið komið fyrir um borð í flugvélinni. 24.8.2023 19:46
Stuðningsmenn Trumps bíða við fangelsið í Fulton-sýslu Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, mun gefa sig fram við lögreglu í Fulton-sýslu í Georgíu í kvöld. Mikill fjöldi stuðningsmanna forsetans hefur þegar komið sér fyrir við fangelsið þar sem Trump ætlar að gefa sig fram á tólfta tímanum í kvöld. 24.8.2023 18:47
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 segjum við frá því ástandi sem hefur skapast á bráðamóttöku Landspítalans eftir að neyslurýminu Ylju var lokað. Hjúkrunarfræðingur segir heimsóknum á bráðamóttöku vegna sýkinga í kjölfar neyslu vímuefna í æð hafa fjölgað mikið frá því úrræðinu var lokað fyrir hálfu ári. Einn einstaklingur hafi á þeim tíma leitað hundrað sinnum á bráðamóttökuna. 24.8.2023 18:12
Segir dauða Prigozhin ekki koma á óvart Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir dauða Yevgeny Prigozhin, eiganda málaliðahópsins Wagner Group, ekki hafa komið sér á óvart. Hann segir lítið gerast í Rússlandi án aðkomu Vladimírs Pútín, forseta. 23.8.2023 23:31
Mistókst aftur að koma gervihnetti á braut um jörðu Geimvísindamönnum og verkfræðingum Norður-Kóreu mistókst aftur í dag að koma njósnagervihnetti á braut um jörðu. Gera á þriðju tilraunina í október, samkvæmt yfirvöldum í einræðisríkinu. 23.8.2023 22:08
Albert sagður neita sök Albert Guðmundsson, leikmaður Genoa á Ítalíu og íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, segist saklaus af meintu kynferðisbroti sem hann hefur verið kærður fyrir. Forsvarsmenn liðsins ætla að standa með honum. 23.8.2023 21:07
Fólk að bugast vegna aukinnar greiðslubyrði Veruleg fjölgun hefur orðið á því að fólk leitar til Hagsmunasamtaka heimilanna vegna greiðsluerfiðleika og fer þeim enn fjölgandi. Útlit er fyrir að fólk gæti farið að missa heimili sín vegna aukinnar greiðslubyrði. 23.8.2023 20:30
Flugvél Prigozhin sögð hafa verið skotin niður Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin, eigandi málaliðahópsins Wagner Group, er lést er einkaflugvél hans féll til jarðar í Rússlandi í dag. Fregnir hafa borist af því að flugvélin hafi verið skotin niður en það er óstaðfest. 23.8.2023 17:18
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn