McCarthy enn í gíslingu uppreisnarmanna Fulltrúadeild Bandaríkjaþings er enn lömuð vegna uppreisnar hóps fjar-hægri þingmanna Repúblikanaflokksins. Einungis fimm dagar eru í að stöðva þarf rekstur ríkisins, finnist ekki samkomulag um fjárlagafrumvarp. 26.9.2023 10:04
GameTíví: Bankar rændir og dýrin slást Strákarnir Í GameTíví hafa í nógu að snúast í streymi kvöldsins. Framin verða bankarán, eða þeir munu allavega reyna að fremja bankarán, í leiknum Payday 3. 25.9.2023 19:31
Fjarlægðu flotgirðingu í Suður-Kínahafi Yfirvöld á Filippseyjum segjast hafa fjarlægt flotgirðingu sem Kínverjar komu fyrir við vinsælar fiskislóðir í Suður-Kínahafi. Kínverjar höfðu komið girðingunni fyrir til að koma í veg fyrir að sjómenn frá Filippseyjum kæmust að Scarborough-rifi. 25.9.2023 15:29
Kelly Clarkson kom götulistamanni á óvart Tónlistarkonan Kelly Clarkson kom götulistamanni í Las Vegas á óvart á dögunum. Clarkson var að eigin sögn að setja pening í fötu listakonunnar sem söng lög eftir Tinu Turner af mikilli ástríðu. 25.9.2023 13:57
Segjast hafa fellt yfirmann Svartahafsflota Rússa Yfirmenn sérsveita Úkraínuhers segja stjórnanda Svartahafsflota Rússa hafa fallið í stýriflaugaárás á höfuðstöðvar flotans í Sevastaopol á Krímskaga á föstudaginn. Þar að auki hafi 34 aðrir yfirmenn í rússneska hernum fallið og rúmlega hundrað hafi særst. 25.9.2023 12:10
Enn vandræði á fasteignamarkaði í Kína Vandræðum kínverska fjárfestingafélagsins Evergrande Group er ekki lokið enn. Forsvarsmönnum félagsins, sem er skuldsettasta fasteignafélag heimsins, gengur illa að endurskipuleggja lán þess og hefur það leitt til áhyggja meðal fjárfesta í Asíu. 25.9.2023 10:46
Frakkar hörfa frá Níger Emmanuel Macron, forseti Frakklands, tilkynnti í gær að sendiherra Frakklands í Níger og allir hermenn landsins þar myndu snúa aftur heim fyrir lok þessa árs. Tveir mánuðir eru síðan herinn tók völdin í Níger og fangelsaði forsetann Mohamed Bazoum. 25.9.2023 09:04
Biden lofar Selenskí nýjum eldflaugum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti Vólódómír Selenskí, forseta Úkraínu, í dag að hann ætlaði að senda langdrægar eldflaugar til Úkraínu. Úkraínumenn hafa lengi beðið um slíkar eldflaugar sem heita Army Tactical Missile System, eða ATACMS. 22.9.2023 16:57
Sótti fjáröflunarráðstefnur með auðjöfrum Clarence Thomas, dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna, tók að minnsta kosti tvisvar sinnum þátt í fjáröflunarráðstefnum auðugra bandarískra íhaldsmanna. Ráðstefnurnar voru haldnar af Koch-bræðrunum en Thomas hefur aldrei sagt frá þessu á hagsmunaskrám, eins og öðrum umdeildum lúxusferðum og viðskiptaflækjum sem hann hefur átt í gegnum árin. 22.9.2023 16:21
Fagnar afmæli sjö mánuðum eftir að banalegan hófst Þegar Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hóf líknandi meðferð í febrúar, bjuggust aðstandendur hans við því að hann myndi falla frá á næstu dögum. Carter er þó enn á lífi og stefnir á að halda upp á 99 ára afmæli sitt í næstu viku. 22.9.2023 13:32