Hæfðu höfuðstöðvar Svartahafsflota Rússa Að minnsta kosti ein eldflaug hæfði höfuðstöðvar Svartahafsflota Rússa í Sevastopol á Krímskaga í morgun. Leppstjóri Rússa í héraðinu, sem Rússar innlimuðu ólöglega árið 2014, birti myndir af höfuðstöðvunum sem eru mikið skemmdar. 22.9.2023 11:47
Hringdi í neyðarlínuna og sagðist ekki vita hvar orrustuþotan væri Flugmaður F-35 orrustuþotu sem týndist á dögunum í Bandaríkjunum, lenti í fallhlíf í bakgarði manns í Suður-Karólínu. Þegar eigandi hússins hringdi í neyðarlínuna virtist sú sem svaraði eiga erfitt með að átta sig á hvað væri að gerast, sem gæti ef til vill talist eðlilegt, en flugmaðurinn tilkynnti henni að hann hefði skotið sér úr orrustuþotu og vissi ekki hvar flugvélin væri. 22.9.2023 10:37
Nær því að leysa gamla ráðgátu um sólina Vísindamenn eru að nálgast svör við gamalli ráðgátu um sólina. Það hefur lengi vakið furðu að kóróna sólarinnar er heitari en yfirborð hennar. 21.9.2023 16:52
Þreyttir eftir harða bardaga: „Vinir okkar týna lífinu í skóginum, einn af öðrum“ Eftir þriggja mánaða baráttu tókst úkraínskum hermönnum að frelsa bæina Klistjívka og Andrjívka í austurhluta Úkraínu. Hermenn lýsa aðstæðum þar sem helvíti en þeim tókst að sigra Rússa og segjast hafa fellt og handsamað fjölmarga rússneska hermenn. 21.9.2023 16:01
Rupert Murdoch sest í helgan stein Ástralsk-bandaríski fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch hefur ákveðið að setjast í helgan stein og hætta sem formaður stjórna bæði Fox og News Corp. Murdoch, sem er 92 ára gamall, er mjög umdeildur vegna umsvifa hans á fjölmiðalmarkaði. 21.9.2023 13:44
Umfangsmiklar árásir á báða bóga Úkraínumenn gerðu í gærkvöldi umfangsmikla árás á flugstöð Rússa á Krímskaga. Á sama tíma skutu Rússar fjölmörgum eld- og stýriflaugum sem ætlað var að valda skemmdum á orkuinnviðum Úkraínu. 21.9.2023 12:16
Drengurinn fundinn á Akureyri Lögreglan á Norðurlandi eystra leitaði í morgun tólf ára drengs á Akureyri, með einhverfu. Drengurinn fannst í hádeginu. 21.9.2023 11:51
Frægir rithöfundar höfða mál vegna ChatGPT Hópur þekktra rithöfunda eins og George R.R. Martin, Jodi Picoult og John Grisham hefur höfðað mál gegn fyrirtækinu OpenAI og sakað það um þjófnað á höfundarréttarvörðu efni sem notað var við þróun ChatGPT gervigreindarinnar. Rithöfundarnir segja gervigreindina byggja á kerfisbundnum og umfangsmiklum þjófnað. 21.9.2023 10:47
Föruneyti Pingsins: Hefja langt ferðalag í nýjum þætti Föruneyti Pingsins, nýr þáttur frá GameTíví, göngu sína í kvöld. Þar munu fjórir spilarar takast á við skrímsli og drýsla í hlutverkaleiknum Baldur's Gate 3. 20.9.2023 19:31
Vill taka neitunarvaldið af Rússum Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallaði eftir því í dag að öryggisráði Sameinuðu þjóðanna yrði breytt á þann veg að hægt yrði að svipta ríki sem eiga fast sæti í ráðinu neitunarvaldi. Öryggisráðið og SÞ gætu ekkert gert vegna stríðsins þar sem árásaraðilinn, Rússland, væri með neitunarvald. 20.9.2023 16:59