Auglýsa aðstoð við styrkumsóknir í útvarpinu „Á þitt fyrirtæki rétt á viðspyrnustyrk? Accountant.“ Svo hljóðar auglýsing sem glymur um ljósvakann um þessar mundir og ábyrgðaraðilinn er Accountant ehf. 25.5.2021 16:02
Uppsagnir hjá Arion banka Tæplega 20 starfsmönnum Arion banka var sagt upp í dag vegna hagræðingar og þjónustubreytinga á höfuðborgarsvæðinu. 25.5.2021 13:51
Lést af völdum Covid-19 um helgina Sjúklingur lést af völdum Covid-19 á Landspítalanum um helgina, laugardaginn 22. maí. Hinn látni var á sextugsaldri og var lagður inn fyrir um mánuði síðan. 30 hafa hér með látist af völdum veirunnar hér á landi. 25.5.2021 11:48
„Mjög sterk og ákveðin sýkna“ Bjarnfreður Ólafsson, lögmaður Sigur Rósar, segir kærkomið og löngu tímabært að meðlimir hljómsveitarinnar hafi verið sýknaðir fyrir dómstólum af ásökunum um skattalagabrot. 25.5.2021 11:06
Útilokað að Daði og Gagnamagnið stígi á svið Daði Freyr Pétursson útilokaði í viðtali eftir Eurovision í kvöld að hann og Gagnamagnið stigju á svið í Rotterdam á laugardaginn. Sama upptaka og var spiluð áðan verður spiluð aftur á laugardaginn, nánar tiltekið í fyrri hálfleik keppninnar. 20.5.2021 23:33
Segja BBC hafa stuðlað að andláti Díönu prinsessu Vilhjálmur prins og Harry bróðir hans hafa fordæmt Breska ríkisútvarpið harðlega fyrir framgöngu stofnunarinnar í tengslum við viðtal sem tekið var við Díönu prinsessu móður þeirra árið 1995. 20.5.2021 23:15
Hagatorg verði almenningsgarður í þágu skóla Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur segir að kallað verði eftir hugmyndum um þróun á hringtorginu risavaxna Hagatorgi í Vesturbæ. Þær hugmyndir eiga að tengjast Hagatorgi sem „almenningsgarðs eða almenningsrýmis.“ 20.5.2021 22:54
Finnar gerðu skýrar kröfur til Íslendinga Finnar létu sitt ekki eftir liggja í umdeildum skilaboðum í kynningarglugga sínum við lok atkvæðagreiðslunnar í Eurovision í kvöld. Þegar kom að þeim drógu þeir skyndilega upp skilti þar sem á stóð: „Play Jaja Ding Dong.“ 20.5.2021 22:21
Daði og Gagnamagnið komust áfram Ísland er á meðal þeirra þjóða sem komast áfram í lokakeppni Eurovision. Þetta varð ljóst rétt í þessu þegar úrslit atkvæðagreiðslunnar voru kynnt. 10 þjóðir komust áfram af 16 keppendum. 20.5.2021 21:00
„Besti endir á Eurovision-atriði frá upphafi“ Daði og Gagnamagnið stigu á svið með æfingamyndbandinu í Eurovision fyrir stundu. Fagnaðarlætin voru brjáluð og fyrir þá sem ekki vissu að um væri að ræða myndband var ekki margt sem gaf til kynna að svo væri. 20.5.2021 19:49