Ye biðst afsökunar á gyðingaandúð á hebresku Umdeildi rapparinn og fatahönnuðurinn Ye, áður Kanye West, hefur beðið gyðingasamfélagið afsökunar vegna hatursfullra ummæla sem hann hefur síðastliðið ár látið falla um gyðinga. Hann segist nú vonast eftir fyrirgefningu og sjá eftir ummælum sínum. 26.12.2023 15:36
Navalní heilsast vel og sendir hátíðarkveðjur Alexei Navalní leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Rússlandi segist við góða heilsu eftir að hafa fundist í fanganýlendu í Síberíu eftir margra daga leit. Hann sendi fylgjendum sínum hátíðarkveðjur í tilkynningu á X í morgun. 26.12.2023 13:57
Lögregla leitar byssumannanna og annarra sem gætu tengst árásinni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú tveggja manna sem réðust inn í íbúð í Hafnarfirði og hleyptu af skotum á aðfangadagskvöld. Þá leitar lögregla að öðrum sem gætu tengst málinu. 26.12.2023 12:14
Einn handtekinn vegna skotárásarinnar á aðfangadagskvöld Einn var handtekinn í gær vegna skotárásarinnar sem gerð var á aðfangadagskvöld þegar tveir menn réðust inn í íbúð í Hafnarfirði og hleyptu af skotum. 26.12.2023 11:46
Grunaður um morð á fjórum börnum og barnsmóður á jóladag Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn nærri París í nótt eftir að lík fjögurra barna hans og móður þeirra fundust í íbúð skömmu frá höfuðborginni í gær. Lögreglan í Frakklandi rannsakar málið sem morð. 26.12.2023 11:00
Sjö vistaðir í fangaklefa í nótt Sjö manns voru vistaðir í fangaklefa í gærkvöldi og nótt að því er kemur fram í dagbók lögreglunnar. Ýmist fyrir slagsmál, innbrot, eða akstur undir áhrifum fíkniefna. 26.12.2023 09:33
Columbus segir Trump hafa heimtað hlutverkið í Home Alone Chris Columbus, leikstjóri fyrstu tveggja Home Alone bíómyndanna, segir Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem fór með aukahlutverk í myndinni, hafa heimtað að fá að koma fram í myndinni gegn því að tekið yrði upp á Plaza hótelinu, sem var þá í hans eigu. 25.12.2023 16:56
Íslenskt fyrirtæki á lista Financial Times yfir framúrskarandi fyrirtæki Íslenska tæknifyrirtækið Treble Technologies, sem sérhæfir sig í hljóðhermun, er á lista Financial Times yfir þau fyrirtæki sem þóttu skara fram úr á árinu. 25.12.2023 15:58
Mótmælendur reyndu að brjótast inn í ráðhús Belgrad Lögreglumenn í Belgrad, höfuðborg Serbíu, beittu í gær táragasi á mótmælendur sem mótmælt hafa ríkisstjórninni eftir að niðurstöður þingkosninga voru birtar í síðustu viku. Stjórnarandstöðufólk segir að um kosningasvik sé að ræða. 25.12.2023 13:33
Sex ára dreng flogið á vitlausan áfangastað Sex ára bandarískum dreng, sem ferðast átti frá Pennsylvania-ríki til Fort Myers í Flórída með flugfélaginu Spirit Airlines í gær, var komið fyrir í flugvél til Orlandó borgar af fylgdarmanni flugfélagsins. 25.12.2023 11:19