Kólnun á húsnæðismarkaði dragi verðbólgu niður fyrir spár Hagfræðingur hjá Íslandsbanka segir að samdráttur í íbúðaverði á höfuðborgarsvæðinu geti orðið til þess að verðbólga hjaðni hraðar en spár gerðu ráð fyrir. Þó megi búast við því að Seðlabankinn hækki stýrivexti í næsta mánuði. 19.7.2023 11:54
Hitinn óbærilegur á gönguleiðinni hjá Sturlu Íslendingur sem gengur vinsæla gönguleið þvert yfir Spán segir hitann í dag hafa verið óbærilegan en hitabylgja gengur nú yfir stóran hluta Evrópu. Göngufólk á leiðinni leggi mun fyrr af stað til að forðast versta hitann, en sumir hafi þrátt fyrir það helst úr lestinni. 18.7.2023 21:00
Langir dagar hjá slökkviliðinu: Hraunið nái til Suðurstrandarvegar upp úr miðjum ágúst Niðurstöður HEC-RAS hermunar Verkís á rennsli hraunsins í gosinu við Litla-Hrút sýnir að hraunrennsli muni ná til Suðurstrandarvegar upp úr miðjum ágúst. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá rannsóknarstofu í eldfjallafræði og náttúruvá við Háskóla Íslands. Slökkviliðsmenn hafa undanfarna daga beitt tveimur aðferðum við að slökkva í gróðureldum á svæðinu og mæðir mikið á slökkviliðsfólki. 18.7.2023 19:31
Hitametin orðin of mörg til að telja upp Lamandi hitabylgja ríður nú yfir Evrópu. Veðurfræðingur segir loftlagsbreytingar valda fleiri bylgjum sem standi lengur en áður. Hitinn úti í heimi nú sé forsmekkurinn að því sem koma skal. 14.7.2023 22:37
„Þetta er mjög erfitt en okkur gengur vel“ Slökkviliðsmenn börðust við gróðurelda á gossvæðinu á Reykjanesi í allan dag meðal annars með aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. Ríkisstjórnin ákvað í morgun að styrkja Björgunarsveitina í Grindavik um tíu milljónir króna og verið er að athuga gerð á nýju bílastæði sem myndi stytta göngu að gosstöðvunum verulega. 14.7.2023 21:28
Tvö tonn af vatni í senn Slökkvistarf Landhelgisgæslunnar við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga hefur gengið vel að sögn stýrimanns. Notast er við skjólur sem rúma um tvö tonn af vatni. 14.7.2023 12:01
„Jörðin hérna gengur bara eins og alda á sjó“ Þegar jarðskjálftar sem eiga upptök sín nálægt Kleifarvatni ganga yfir í Seltúni í Krýsuvík, þá gengur jörðin hreinlega í bylgjum. Afleiðingarnar eru grjóthrun og tómar hillur. En það sem er ívið verra að sögn landvarðar, eru klósettmálin. 11.7.2023 07:00
Áætlanir til staðar ef rýma þarf hverfi vegna gass Rýmingaráætlanir eru til staðar ef grípa þarf til þess ráðs að rýma sveitarfélög nálægt eldgosinu við Litla-Hrút vegna slæmrar gasmengunar. Búið er að loka fyrir aðgang að eldstöðvunum vegna mengunarinnar sem er talin geta verið lífshættuleg. 11.7.2023 00:14
Sefur í bílnum þar til hann fær að sjá gosið Eldgos er enn hafið á Reykjanesskaga, þriðja árið í röð. Áhugi fólks á því að berja náttúruöflin augum virðist þó lítið hafa dvínað. Fréttastofa ræddi við fólk sem var mætt að Keilisafleggjaranum út af Reykjanesbraut í kvöld, en lögregla lokaði veginum fljótlega eftir að gos hófst. Einhverjir héldu þó í vonina um að svæðið yrði opnað síðar í kvöld. 10.7.2023 20:33
Gos hafið á Reykjanesi: „Mikil hætta á að fólk verði fyrir gaseitrun“ Eldgos er hafið við fjallið Litla-Hrút á Reykjanesi, skammt frá Meradölum þar sem hraun kom upp á síðasta ári. Mikinn reyk og gas leggur nú upp af Reykjanesi og er talið að sprungan sé um 1.500 metrar að lengd. Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar mun fylgjast vel með þróun mála og má sjá allt það nýjasta í vaktinni. 10.7.2023 16:48