Fréttir

Fréttamynd

Barði mann í höfuð með röri

Ríkissaksóknari hefur ákært tvítugan mann fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Manninum er gefið að sök að hafa slegið annan mann með járn- eða álröri í höfuðið.

Innlent
Fréttamynd

Nóg komið af áhættusækni

„Mín skoðun er að það verði svo sem engin ragnarök þótt Icesave verði hafnað eins og sumir vilja halda fram,“ segir Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verslunar og þjónustu.

Innlent
Fréttamynd

Bensínverð lækki um 28 krónur

Lítraverð á eldsneyti, bæði bensíni og dísilolíu, gæti lækkað um 28 krónur, fái frumvarp fram að ganga sem Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, mælti fyrir í gær.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vilja skýrari skilmála smálána

Strangar reglur verða um starfsemi smálánafyrirtækja hér á landi ef frumvarp verður að veruleika sem Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, kynnti fyrir ríkisstjórn á þriðjudag.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Höfuðkúpubrot-inn eftir árás

Rúmlega tvítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir stórfellda líkamsárás. Manninum er gefið að sök að hafa kýlt annan mann í andlit og bringu og ýtt honum.

Innlent
Fréttamynd

Við höfum val út úr reiðinni

„Þetta er ævaforn mantra sem er til þess fallin að glæða með okkur hugrekki, eldmóð og staðfestu. Hún virkar í dagsins önn,“ segir listamaðurinn Þorlákur Kristinsson Morthens, betur þekktur sem Tolli.

Innlent
Fréttamynd

Geri tillögu um hafnarsvæðið

Borgarráð hefur samþykkt skipan fimm manna stýrihóps á vegum borgarinnar og Faxaflóahafna til að endurskoða skipulag við höfnina frá Grandagarði að tónlistar- og ráðstefnuhúsinu.

Innlent
Fréttamynd

Útivistarleiðir en ekki stígar á Arnarnesi

„Þessi fundur er til að leggja fram kynningu og fá athugasemdir íbúanna,“ segir Stefán Konráðsson, formaður skipulagsnefndar Garðabæjar, um fund í Sjálandsskóla í kvöld um skipulagsmál á Arnarnesi.

Innlent
Fréttamynd

Uppreisnarmenn á undanhaldi

Liðsmenn Múammars Gaddafí náðu olíuborginni Ras Lanúf aftur á sitt vald í gær úr höndum uppreisnarmanna. Einnig var hart sótt að uppreisnarmönnum í olíuborginni Brega.

Erlent
Fréttamynd

Fjórir ofnar teknir úr notkun

Hvert bakslagið á fætur öðru hefur komið í baráttuna við að halda niðri geislamengun frá kjarnorkuverinu í Fukushima. Ákveðið hefur verið að leggja endanlega niður starfsemi í þeim fjórum ofnum versins sem til vandræða hafa verið.

Erlent
Fréttamynd

Jón mætti ekki á fund með SA og LÍÚ

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, mætti ekki til fundar sem hann hafði verið boðaður á með forsætisráðherra, fjármálaráðherra og forystumönnum Samtaka atvinnulífsins og útvegsmanna síðdegis á mánudag.

Innlent
Fréttamynd

Lögreglan tók heimilisbúnað og verkfæri

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur í vörslu sinni talsvert af munum sem haldlagðir voru við húsleit hjá Geirmundi Vilhjálmssyni, fyrrverandi fangelsisstjóra á Kvíabryggju, fyrr í þessum mánuði. Talið er að greitt hafi verið fyrir munina með fjármunum sem ætlaðir voru til reksturs fangelsisins á Kvíabryggju.

Innlent
Fréttamynd

Mæla lestur allra blaða á dagblaðaformi

Fréttablaðið er sem fyrr langmest lesna dagblað landsins, samkvæmt nýrri mælingu Capacent. Lestur á Fréttatímanum er nú í fyrsta skipti inni í lestrarmælingum og lestur á DV er mældur aftur eftir nokkurt hlé.

Innlent
Fréttamynd

Telur tíð forstjóraskipti Orkuveitu mistök

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir aðgerðaráætlun fyrirtækisins að mörgu leyti skynsamlega. Hann telur þó að tíð forstjóraskipti fyrirtækisins og uppsögn fjármálastjóra á síðustu mánuðum hafi haft slæm áhrif á viðhorf erlendra banka. Hann segir yfirlýsingar bankanna gríðarleg vonbrigði. Kjartan situr einnig í stjórn OR.

Innlent
Fréttamynd

Garðbæingar ósáttir við veislur í rólóhúsi

Auður Hallgrímsdóttir, varamaður minnihluta Fólksins í bænum í skipulagsnefnd Garðabæjar, segir mikla óánægju meðal íbúa við göturnar Faxatún og Goðatún vegna ónæðis frá skátaheimili og húsi Kiwanismanna í hverfinu.

Innlent
Fréttamynd

Fá bætur vegna samráðs

Verið er að leggja lokahönd á samninga á milli þriggja olíufélaga og hátt í 100 einstaklinga sem lögðu fram kvartanir til Neytendasamtakanna (NS) þegar samkeppnisyfirvöld afhjúpuðu níu ára langt verðsamráð fyrirtækjanna árið 2005.

Innlent
Fréttamynd

Engir stígar neðan sjávarlóða

Kynna á drög að nýju deiliskipulagi fyrir Arnarnes á íbúafundi á morgun. Þar er meðal annars tekið á þáttum eins og nýtingarhlutfalli lóða og göngustígum um hverfið.

Innlent
Fréttamynd

Samstaða um að koma Gaddafí frá

„Það er engin framtíð lengur fyrir Líbíu með Gaddafí við stjórnvölinn,“ sagði William Hague, utanríkisráðherra Bretlands, að lokinni alþjóðlegri ráðstefnu í Lundúnum um hernaðaraðgerðirnar í Líbíu.

Erlent
Fréttamynd

Lið Gbagbos á undanhaldi

Uppreisnarmenn, sem berjast fyrir réttkjörinn forseta Fílabeinsstrandarinnar, hafa náð fleiri borgum á sitt vald í átökum, sem kostað hafa hundruð manna lífið.

Erlent
Fréttamynd

Milljarðar undir hjá Sigurði Einarssyni

Tvö mál eru fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur sem bæði tengjast Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Kaupþings og lánveitingum bankans til hans. Í október 2008 hafði Sigurður Einarsson fengið 7,8 milljarða króna að láni hjá Kaupþingi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Forstöðumaður kærður fyrir kynferðisbrot

Forstöðumaður Ekron, samtaka sem annast meðal annars starfsþjálfum og endurhæfingu óvirkra vímuefnaneytenda og öryrkja, hefur verið kærður til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir kynferðisbrot.

Innlent
Fréttamynd

Almenn skynsemi besta vörnin á Fésbókinni

Vírusvarnir mega sín lítils þegar notendur velja sjálfir að virkja forrit með því að smella á hlekki á netinu. Björn Davíðsson, þróunarstjóri hjá vefþjónustunni Snerpu á Ísafirð, segir "almenna skynsemi" seint verða ofmetna sem forvörn á internetinu.

Innlent
Fréttamynd

Urðu að standa úr stólum sínum

Einn féll í tvígang í mati Fjármálaeftirlitsins (FME) á hæfi til að sitja í stjórn fjármálafyrirtækja, eignarhaldsfélaga og vátryggingafélaga. Þar á meðal eru stjórnir bankanna. Tólf þurftu að endurtaka matið og ákváðu þrír að endurtaka það ekki.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Aðkoma NATO er í samræmi við stefnu

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að aðkoma Íslands að ákvörðun NATO um að taka við samræmingu aðgerða í Líbíu sé í fullu samræmi við ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem ríkisstjórnin hafi veitt formlegt samþykki á sínum tíma.

Innlent
Fréttamynd

HBT hætti við eftir mælingar

Vetnisbúnaður sem draga átti úr eldsneytisnotkun bifreiða stendur ekki undir væntingum, að því er fram kemur í umfjöllun Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB).

Innlent
Fréttamynd

Árangurslaust fjárnám algengara

Alls hafa 363 fyrirtæki fengið tilboð frá viðskiptabanka sínum á grundvelli Beinu brautarinnar; samkomulagi stjórnvalda, atvinnulífsins og fjármálafyrirtækja um leiðir til úrvinnslu skuldamála smárra og meðalstórra fyrirtækja. Til meðferðar í bönkunum eru mál 949 fyrirtækja.

Innlent
Fréttamynd

Plúton hefur fundist í jarðvegi utan ofna

Ástandið í kjarnorkuverinu í Fukushima verður æ hættulegra. Í gær fundust í fyrsta sinn merki um plúton í jarðvegi utan kjarnaofnanna, sem bendir til þess að alvarleg bráðnun hafi orðið í kjarna eins eða fleiri þeirra.

Erlent