

Landsréttur hefur dæmt Hafstein Oddsson í fjögurra ára fangelsi fyrir líkamsárás í Vestmannaeyjum haustið 2016. Hafsteinn hlaut sex ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Suðurlands í júlí í fyrra en dómurinn var mildaður um tvö ár.
Hafsteinn Oddsson, sem dæmdur var í júlí síðastliðnum í sex ára fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás, hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Suðurlands til Landsréttar.
Hafsteinn Oddsson hlaut í síðasta mánuði sex ára fangelsisdóm fyrir líkamsárás sem hann framdi í Vestmannaeyjum í september 2016. Líkamsárásin vakti mikinn óhug en fórnarlambið, kona, var illa útleikin eftir árásina.
Karlmaður hefur verið ákærður í tengslum við líkamsárás og nauðgun í Vestmannaeyjum haustið 2016.
Málið kom upp þann 17. september 2016 en þolandinn, kona á fimmtugsaldri, fannst snemma um morguninn úti á götu í Eyjum, nakin og með mikla áverka á höfði.
Rannsókn lögreglunnar í Vestmannaeyjum á nauðgun og líkamsárás sem grunur leikur á að hafi verið framin í september í fyrra er á lokastigi.
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands þess efnis að ekki verði kallaður til dómkvaddur matsmaður til þess að framkvæma mat á manni sem meðal annars er grunaður er um alvarlega líkamsárás og kynferðisbrot gegn konu í Vestmannaeyjum 17. september síðastliðinn.
Hæstiréttur hefur hafnað gæsluvarðhaldskröfu lögreglunnar
Héraðsdómur Suðurlands féllst ekki á kröfu lögreglunnar í Vestmannaeyjum um framlengingu gæsluvarðhalds yfir manni sem grunaður er um alvarlega líkamsárás og kynferðisbrot.
Í varðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum hefur lagt fram kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald til Héraðsdóms Suðurlands yfir manni sem grunaður er um alvarlega líkamsárás og kynferðisbrot gegn konu í Eyjum síðastliðinn laugardag, en gæsluvarðhald yfir honum rennur út á morgun.
Konan sem flutt var með sjúkraflugi frá Vestmannaeyjum um helgina eftir grófa líkamsárás er sögð í miklu andlegu áfalli og eiga erfitt með að tjá sig um atburðinn. Hæstiréttur dæmdi í gær 23 ára karlmann í gæsluvarðhald til laugardags.
Aðkoman var skelfileg og konan óþekkjanleg segir maður sem kom að naktri konu í Vestmannaeyjum snemma á laugardagsmorgun.
Grunaður um stórfellda líkamsárás og nauðgun.
Alvarleg líkamsárás sem átti sér stað í Vestmannaeyjum á laugardagskvöld er nú til rannsóknar hjá lögreglu. Þetta staðfesti Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum, í samtali við fréttastofu í gær.
Lögreglan í Vestmannaeyjum rannsakar nú líkamsárás sem átti sér stað í bænum aðfaranótt laugardagsins síðastliðinn.