Björgunarsveitir
1 2 3 4 5 6 7 8 … 45 ›
Vaktin: Enginn undir ísnum og aðgerðum hætt Leitaraðgerðum björgunarsveita hefur nú verið hætt við Breiðamerkurjökul þar sem tveggja ferðamanna hefur verið leitað frá því í gær eftir að ísveggur hrundi í skipulagðri íshellaskoðunarferð í gær. Lögregla hefur staðfest að einn hafi látist í slysinu og að einn sé alvarlega slasaður. Talið var að tveir til viðbótar væru fastir undir ísnum en nú hefur leit verið hætt þar sem enginn til viðbótar reyndist vera undir ísnum. Innlent 26.8.2024 07:35
Ferðir heimilar allan ársins hring en deilt um manngerða hella „Við treystum þeim fyrirtækjum sem við gerum samninga við að beita sinni bestu dómgreind í mati á aðstæðum og slysin geta alltaf gerst því miður,“ sagði Steinunn Hödd Harðardóttir, þjóðgarðsvörður á austurhluta suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs, í samtali við fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar í gær. Innlent 26.8.2024 06:57
Tjaldbúðir fluttar upp á jökul Unnið er í teymum við björgunarstarf þar sem hópur björgunarmanna vinnur við að grafa í ísinn og leita að ferðamönnunum tveimur sem saknað er á meðan aðrir hvíla sig. Innlent 25.8.2024 22:10
Björgunarstarf haldi áfram inn í kvöldið og nóttina Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir lögregluna vera með þokkalega skýra mynd af aðstæðum á Breiðamerkurjökli þar sem tveimur hefur verið komið undan ís og tveggja er enn leitað eftir að ísveggur hrundi við íshelli. Innlent 25.8.2024 19:42
Alvarlegt slys er ísveggur hrundi í Breiðamerkurjökli Einn er látinn og annar alvarlega slasaður eftir að ísveggur í Breiðamerkurjökli hrundi. Tilkynning barst viðbragðsaðilum klukkan 15 og hefur umfangsmikil leit að tveimur ferðamönnum til viðbótar, sem urðu undir ísfargi, staðið yfir. Innlent 25.8.2024 16:01
Umfangsmikið viðbragð vegna slyss á Breiðamerkurjökli Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa verið kallaðar til vegna slyss á eða við Breiðamerkurjökul. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir í samtali við Vísi, að þyrlurnar hafi verið kallaðar út á mesta forgangi. Innlent 25.8.2024 15:24
Eftirlitið á kafi vegna fjölda smita Lögregla, sóttvarnarlæknir og heilbrigðiseftirlit róa nú öllum árum að því að rekja uppruna veikinda sem komu upp hjá stórum hópi ferðafólks í Emstrum og Básum í gærkvöldi og í morgun. Innlent 23.8.2024 11:44
Fimmtán börn veik í gærkvöldi en fimmtíu í morgun Hátt í fimmtíu börn og sjö fullorðnir hafa notið aðstoðar björgunarsveita í nótt og í morgun eftir að hafa veikst í Emstruskála Ferðafélags Íslands, þar sem þau voru í skólaferðalagi. Fleiri tilkynningar hafa borist björgunarsveitum um veikindi á svæðinu frá því í morgun. Innlent 23.8.2024 09:54
Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Björgunarsveitarfólk auk kajak samfélagsins á Íslandi óttast áform um virkjun Tungufljóts í Bláskógabyggð. Fljótið er nýtt undir æfingar í straumvatnsbjörgun af björgunarsveitum og þykir einstakt hér á landi. Eigandi Arctic Rafting óttast að árlegt kajakmót sem þar fer fram nú um helgina verði það síðasta. Innlent 16.8.2024 07:00
Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Upp úr klukkan hálf eitt í nótt fundu björgunarsveitir göngu mennina sem villtust í þoku á Kerlingafjallasvæðinu í gær. Innlent 15.8.2024 08:00
Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Um tíu björgunarsveitir eru á leið að Kerlingarfjöllum eftir að hjálparboð barst frá göngumanni sem fór út af gönguslóða í svartaþoku. Óljóst er hvort um sé að ræða einn eða tvo einstaklinga. Innlent 14.8.2024 21:07
Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Einn var fluttur á sjúkrahús í kvöld eftir að bát hvolfdi í Hvalfirði. Tilkynning barst um málið á áttunda tímanum og var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, lögregla, áhöfn á sjómælingaskipinu Baldri og sjóbjörgunarsveitir kallaðar út. Innlent 12.8.2024 21:14
Enn óljóst hvaðan falsboðið um ferðamennina kom Sveinn Kristján Rúnarsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi segir það enn til rannsóknar hjá embættinu hvaðan tilkynningin kom um týndu ferðamennina í Kerlingarfjöllum í síðustu viku. Umfangsmikil leit fór fram að tveimur ferðamönnum en eftir um tveggja daga leit tilkynnti lögregla að um gabb hefði verið að ræða og frestaði leitinni. Innlent 12.8.2024 11:35
Menn hugsi sig tvisvar um áður en þeir teppi neyðarviðbragð landsins Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir grafalvarlegt að menn gabbi viðbragðsaðila í áhættusöm og stór útköll, líkt og útlit er fyrir að gert hafi verið með tilkynningu um ferðamenn sem áttu að sitja fastir í helli í Kerlingarfjöllum. Tilkynningin barst í gegnum netspjall Neyðarlínunnar, en framkvæmdastjóri hennar segir vont ef herða þarf að þeim möguleika. Innlent 7.8.2024 19:28
Grafalvarlegt mál og viðkomandi hvattur til að gefa sig fram Yfirlögregluþjónn á Suðurlandi lítur það mjög alvarlegum augum að allt bendi til þess að útkall í Kerlingarfjöllum í fyrrakvöld hafi verið gabb. Hann segir alla skilja eftir sig slóð á Internetinu sem nú verði rakin. Hann hvetur viðkomandi til að stíga fram og viðurkenna mistök sín. Innlent 7.8.2024 13:05
Gabbútköll skapi mjög alvarlega stöðu fyrir þyrlusveitina Landhelgisgæslan lítur það mjög alvarlegum augum ef útkall í Kerlingarfjöllum á mánudag reynist gabb. Vegna reglna um hvíldartíma geti gæslan ekki alltaf viðhaft fulla þjónustu úti á sjó þegar fara þurfi í útkall, og blóðugt að slík staða komi upp vegna útkalla sem reynist ekki á rökum reist. Innlent 7.8.2024 12:02
Fjögurra daga hraustur drengur hætti skyndilega að anda Elías Andri Óskarsson, íbúi á Sauðárkróki, segir margar tilviljanir hafa orðið til þess að ekki fór verr síðastliðinn sunnudag þegar fjögurra daga gamall sonur hans hætti skyndilega að anda. Um tíma var óttast að hann væri að deyja, en sem betur fer heilsast honum vel í dag. Innlent 7.8.2024 08:30
Sterkar vísbendingar um falsboð Sterkar vísbendingar eru um að tilkynning um að tveir ferðamenn hafi fests í helli sem barst neyðarlínu í gærkvöldi hafi verið falsboð. Tilkynningin varð til þess að viðbragðsaðilar fóru í umfangsmikla leit sem ekki hefur skilað árangri. Innlent 6.8.2024 18:42
Telja bílinn ekki á vegum ferðamannanna Bílaleigubíll sem fannst yfirgefinn á bílastæði við tjaldstæði í Kerlingarfjöllum er ekki talinn vera á vegum ferðamannanna tveggja sem tilkynntu að þeir væru fastir í helli. Innlent 6.8.2024 17:36
Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum Ekki er víst að bílaleigubíll sem fannst yfirgefinn á bílastæði við tjaldstæði í Kerlingarfjöllum sé á vegum ferðamanna sem tilkynntu Neyðarlínunni í netspjalli í gær að þeir væru fastir í helli. Innlent 6.8.2024 16:19
Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Leitarsvæðið við Kerlingarfjöll er mjög torsótt og erfitt yfirferðar fyrir göngufólk, hjól og jeppa, en björgunarsveitir hafa sett mikinn kraft í leit með drónum. Landslagið er síbreytilegt vegna snjóa, rigningar og drullu. Leit hefur staðið yfir að ferðamönnum sem taldir eru fastir í helli við Kerlingarfjöll síðan í gærkvöldi. Innlent 6.8.2024 14:52
Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Björgunarsveitir hafa fundið það sem þau telja fyrstu vísbendinguna sem hægt er að vinna eftir, í leit að tveimur ferðamönnum sem talið er að séu fastir í helli nærri Kerlingarfjöllum. Bílaleigubíll sem skráður er á tvo ferðamenn fannst við tjaldstæði. Enginn á svæðinu kannast við að bera ábyrgð á bílnum. Kallað hefur verið til leitarhunda. Innlent 6.8.2024 13:51
Víkka út leitarsvæðið án nokkurra nýrra vísbendinga Leitin að ferðamönnunum sem gengið var út frá að væru fastir í helli nærri Kerlingarfjöllum hefur enn engan árangur borið. Búið er að leita á þeirri staðsetningu sem gefin var upp í upphaflegu tilkynningunni án þess að nokkrar vísbendingar hafi fundist. Nú er verið að víkka út leitarsvæðið. Innlent 6.8.2024 12:29
Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Ferðamenn sem leitað hefur verið að nærri Kerlingarfjöllum á miðhálendinu síðan í gærkvöldi höfðu samband við netspjall Neyðarlínunnar og gáfu upp staðsetningarhnit. Netspjallið lokaðist í framhaldinu og enginn hefur fundist nálægt þeirri staðsetningu sem gefin var upp. Innlent 6.8.2024 10:13
Handleggsbrotnum bjargað af Baulu Björgunarsveitir voru kallaðar út í gærkvöldi vegna slasaðs ferðamanns á Baulu. Aðstæður voru erfiðar og þrátt fyrir að búið væri að finna manninn um klukkan tvö í nótt tókst þyrlu ekki að koma að fyrr en um klukkan fjögur. Innlent 6.8.2024 06:34
Ferðamennirnir ófundnir Ferðamennirnir sem taldir eru fastir í helli nærri Kerlingarfjöllum eru enn ófundnir. Leit stendur yfir og um 135 björgunarmenn á vettvangi eins og er. Innlent 6.8.2024 06:24
Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu Björgunarsveitir voru kallaðar út fyrr í kvöld vegna ferðamanns sem hafði slasast á fjallinu Baulu í Borgarfirði. Innlent 6.8.2024 00:11
Útkall vegna ferðamanna sem segjast lokaðir inni í helli Björgunarsveitir á Suðurlandi og rústabjörgunarhópar á höfuðborgarsvæði hafa verið kallaðar út vegna tilkynningar um ferðamenn sem hafi fest sig inni í helli á Suðurlandi. Um stórt útkall er að ræða en lélegt skyggni á svæðinu hjálpar ekki til. Innlent 5.8.2024 23:04
Á bólakafi í Hólmsá Björgunarsveitir voru fyrr í dag kallaðar út til aðstoðar ferðamanni sem hafði fest bíl sinn í Hólmsá. Innlent 4.8.2024 19:51
Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Eftir úrhellisrigningu í nótt hafa fallið aurskriður á nokkrum stöðum á veginum norður í Árneshrepp. Vegagerðin vinnur að viðgerð á veginum í Veiðileysi þar sem hann grófst í sundur. Innlent 2.8.2024 14:05