
Taíland

Tómas lítur ekki svo á að hann hafi greitt fyrir kynlíf í Taílandi
Tómas A. Tómasson þingmaður lítur ekki svo á að hann hafi greitt fyrir kynlíf í Taílandi sem vísað er til í smáskilaboðum sem hann sendi til kunningja síns árið 2014.

Þriggja ára bann eftir að gefa andstæðingi Muay Thai olnbogaskot
Fótboltamaður í þriðju efstu deild í Taílandi hefur verið dæmdur í þriggja ára bann eftir að hafa ráðist á mótherja og gefa honum svakalegt olnbogaskot.

Rekinn fyrir að gefa andstæðingi Muay Thai olnbogaskot
Fótboltamaður í þriðju efstu deild í Taílandi var rekinn frá liði sínu eftir að hafa ráðist á mótherja og gefið honum svakalegt olnbogaskot.

Fíll braust inn á heimili í Taílandi
Ratchadawan Puengprasoppon vaknaði upp við mikinn skarkala á heimili sínu í Taílandi á laugardaginn. Þegar hún fór fram kom hún auga á stærðarinnar fíl sem hafði brotist inn til hennar.

Dæmd í 43 ára fangelsi fyrir að móðga konungsfjölskylduna
Tælensk kona hefur verið dæmd í 43 ára fangelsi fyrir að móðga konungsfjölskyldu landsins. Er það lengsti dómur sem hefur verið veittur varðandi brot sem þetta í landinu. Lögin í kringum konungsfjölskyldu Taílands þykja einkar ströng og hefur ákærum á grundvelli þeirra farið fjölgandi.

Fílsunga bjargað með hjartahnoði eftir mótorhjólaslys
Sjúkraflutningamaðurinn Mana Srivate hefur gert fjölda endurlífgunartilrauna á 26 ára ferli sínum í starfi í Taílandi. Nú á sunnudaginn gerði hann það þó í fyrsta sinn á fílsunga og bjargaði hann lífi dýrsins.

Vilja ríkidæmi konungsins í ríkissjóð
Þúsundir mótmælenda komu saman í Bangkok í dag til að mótmæla því að auðæfi konungs landsins væru ekki hluti af ríkissjóði. Umfangsmikil mótmæli í landinu á undanförnum mánuðum hafa að miklu leyti beinst að konuginum, sem ólöglegt er að gagnrýna samkvæmt lögum.

Töldu sig hafa lagt hald á metmagn ketamíns
Fyrr í þessum mánuði sendu yfirvöld í Taílandi frá sér yfirlýsingu um að metmagn lyfsins ketamín hefði fundist og að lögregla hefði lagt hald á það. Nú er að koma í ljós að ekki er um ketamín að ræða.

Sátu um höfuðstöðvar lögreglunnar í Bangkok
Mótmæli gegn stjórnvöldum halda áfram í Taílandi og í gærkvöldi hópuðust þúsundir mótmælenda fyrir framan höfuðstöðvar lögreglunnar í höfuðborginni Bangkok.

Neyðarástandi aflétt í Taílandi
Stjórnvöld í Taílandi ákváðu í morgun að aflétta neyðarástandi sem sett var í síðustu viku til að reyna að bæla öldu mótmæla sem gengið hefur yfir landið síðustu mánuði.

Forsætisráðherra Taílands ætlar ekki að segja af sér
Prayuth Chan-ocha, forsætisráðherra Taílands, hefur hafnað því að segja af sér vegna mótmæla sem eiga sér stað í Bangkok, höfuðborg landsins. Lögreglan hefur brugðist hart við mótmælunum og beitt kylfum og háþrýstidælum gegn mótmælendum.

Tuttugu manns handteknir í mótmælunum í Bangkok
Lögreglan í Tælandi handtók um tuttugu manns sem tóku þátt í fjölmennum mótmælaaðgerðum í Bangkok, höfuðborg landsins, í gærkvöldi.

Lýsir yfir neyðarástandi vegna mótmæla í Bangkok
Forsætisráðherra Taílands lýsti yfir neyðarástandi vegna mótmæla sem geisa nú í höfuðborginni Bangkok. Mótmælendur hafa krafist afsagnar forsætisráðherrans og að dregið verði úr völdum Maha Vajiralongkorn konungs.

Aftur gerð að konunglegri frillu Taílandskonungs
Sineenat Wongvajirapakdi hefur aftur hlotið titilinn „konungleg frilla“ Taílandskonungs, nærri ári eftir að hafa verið svipt titlunum í kjölfar þess að það kastaðist í kekki milli þeirra.

Evrópusambandið opnar landamæri fyrir fjórtán ríkjum
Evrópusambandið tilkynnti í dag að landamæri aðildaríkjanna yrðu opnuð fyrir ferðamönnum á morgun, 1. júlí, frá fjórtán löndum en Bandaríkjamenn verða ekki meðal þeirra sem fá inngöngu í Evrópu.

Engin ný smit í Taílandi
Landið var það fyrsta utan Kína sem greindi nýju kórónuveiruna og eru yfirvöld þess að íhuga að draga úr takmörkunum á viðskiptalífinu og ferðafrelsi.

Taílandskonungur sætir gagnrýni: Í einangrun á þýsku hóteli með tuttugu frillum
Maha Vajiralongkorn Taílandskonungur sætir nú talsverðri gagnrýni heima fyrir eftir að fréttir bárust af því að hann hafi einangrað sig á fjögurra stjörnu hóteli í Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

Meira en þúsund fílar eiga á hættu að svelta vegna faraldursins
Fílarnir og umsjónarmenn þeirra hafa treyst á tekjur frá ferðamönnum. Þeir eru nú mun færri en áður og útlitið því svart.

Fyrsta veirutengda dauðsfallið í Bandaríkjunum staðfest
Um var að ræða mann á sextugsaldri með undirliggjandi heilsufarsvandamál.

Hermaðurinn skotinn til bana
Taílenski hermaðurinn Jakraphanth Thomma, sem myrti 26 manns þegar hann gekk berserksgang í taílensku borginni Nakhon Ratchasima í gær, hefur verið skotinn til bana

Minnst tuttugu í valnum og hermaðurinn gengur enn laus
Hermaður sem gekk berserksgang í verslunarmiðstöð í Taílandi í dag skaut minnst tuttugu til bana og særði 31. Tíu þeirra eru í alvarlegu ástandi.

Taílenskur hermaður gengur berserksgang í Nakhon Ratchasima
Taílenskur hermaður gengur nú berserksgang og hefur "drepið marga“ í og í kring um borgina Korat, norðaustur af Bangkok. Ekki er meira vitað að svo stöddu.

Íslendingur lést í fallhlífarstökki í Taílandi
Þrítugur karlmaður sem á danska móður og íslenskan föður fórst í fallhlífarstökki í Taílandi síðastliðinn laugardag.

Taílenska lögreglan seldi borgara bíl fullan af amfetamíni
Um var að ræða bifreið að gerð Honda CR-V en umræddur bíll var gerður upptækur í tengslum við fíkniefnamál á síðasta ári.

Hellabjörgunarmaður lést af völdum blóðeitrunar
Liðsmaður björgunarteymisins sem bjargaði tólf drengjum og fótboltaþjálfara þeirra úr helli í Taílandi á síðasta ári, er látinn af völdum blóðeitrunar sem hann fékk á meðan á björgunaraðgerðum stóð.

Fimmtán látnir eftir árás í suðurhluta Taílands
Talsmenn taílenskra yfirvalda segja fórnarlömbin sjálfboðaliða í öryggissveitum sem hafi sinnt eftirliti vegna uppþota múslima í þremur syðstu héruðum landsins.

Taílenski hellirinn opnar á ný
Búið er að opna hellakerfið í Taílandi, þar sem tólf fótboltastrákar og þjálfari þeirra urðu innlyksa á síðasta ári, á ný fyrir gestum.

WOW enn á flugi í Tælandi
Þrátt fyrir að starfsemi WOW air hafi verið stöðvuð þann 28. mars síðastliðinn má enn sjá vél flugfélagsins bregða fyrir í háloftunum.

Konungurinn rak sex „einstaklega illa“ starfsmenn
Maha Vajiralongkorn, konungur Taílands, hefur rekið sex starfsmenn sína nokkrum dögum eftir að hann svipti opinbera frillu sína öllum hennar titlum.

Frilla konungs Taílands fallin í ónáð
Maha Vajiralongkorn, konungur Taílands, hefur svipt opinbera frillu sína titlum hennar einungis mánuðum eftir að hún fékk titilinn "konungleg hjákona“.