Mið-Afríkulýðveldið
Kreml tekur yfir stjórn Wagner í Mið-Afríkulýðveldinu
Ráðamenn í Mið-Afríkulýðveldinu segja ríkisstjórn Rússlands hafa tekið yfir stjórn rúmlega þúsund málaliða Wagner group þar í landi. Málaliðarnir hafa haft viðveru í Mið-Afríkulýðveldinu í um fimm ár en lengst af voru þeir undir stjórn rússneska auðjöfursins Jevgení Prígósjín.
Síðustu dagar Prígósjíns: Kepptist við að halda veldi sínu saman
Rússneski auðjöfurinn Jevgení Prígósjín, sem stofnaði og fjármagnaði meðal annars málaliðahópinn Wagner Group, varði sínum síðustu dögum á flakki um heiminn og reyndi að halda lífi í viðskiptaveldi sínu í Afríku og Mið-Austurlöndum. Varnarmálaráðuneyti Rússlands beitti hann miklum þrýstingi og var að bola Wagner út.
Kokkur Pútíns játar að eiga Wagner
Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin hefur viðurkennt að hafa stofnað og eiga málaliðahópinn Wagner Group. Hann segist hafa stofnað hópinn eftir innrás Rússa í Úkraínu 2014 og með því markmiði að senda málaliða til austurhluta Úkraínu.
UN Women: Íslensk framlög til stuðnings þolendum kynbundins ofbeldis
Tæplega tvö þúsund konur hafa nýtt sér verkefni UN Women í Mið-Afríkulýðveldinu til stuðnings þolendum kynbundins ofbeldis en verkefnið er stutt af landsnefnd UN Women á Íslandi með fjármagni sem fékkst af sölu FO bolsins hjá landsnefnd UN Women á Íslandi haustið 2021.
Konur í Mið-Afríkulýðveldinu fá ágóða FO-bolanna
Mið-Afríkulýðveldið hefur verið nefnt „gleymda ríkið“ þar sem staða íbúa er sérstaklega slæm í ljósi stöðugra átaka undanfarin ár.
Ætla sér að halda friðinn í Mið-Afríkulýðveldinu
Sérstök sannleiks- og sáttanefnd verður mynduð í Mið-Afríkulýðveldinu. Þetta er liður í nýjum friðarsamningi stjórnvalda og uppreisnarhópa eftir margra ára átök í landinu.
Vopnaðir menn sátu fyrir bíl rússneskra blaðamanna
Þrír rússneskir blaðamenn sem myrtir voru í umsátri í Mið-Afríkulýðveldinu á mánudaginn voru staddir þar í landi til að rannsaka umdeildan málaliðahóp Rússa.
Slepptu meintum stríðsglæpamönnum til að trufla ekki kosningar
Atvikið átti sér stað skömmu fyrir kosningar og var "hinum meintu stríðsglæpamönnum sleppt“ til að "reyna að raska ekki kosningunum“ eins og segir í skjölunum.
Diplómat peð í valdatafli
Sænski diplómatinn Anders Kompass, sem vakti heimsathygli þegar hann lét vita af því að friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna hefðu gerst sekir um kynferðislegt ofbeldi í Mið-Afríkulýðveldinu, verður ekki sendiherra í Gvatemala.
Leit hætt að Joseph Kony
Leit að uppreisnarleiðtoganum og stríðsherranum Joseph Kony hefur verið hætt. Úganski herinn greindi frá þessu en Kony hafði verið leitað í Mið-Afríkulýðveldinu undanfarin ár.
Norðmenn hamingjusamasta þjóð í heimi
Íslendingar skipa þriðja sæti listans í World Happiness Report.
Nýjar ásakanir um kynferðislegt ofbeldi friðargæsluliða SÞ
Nær hundrað stúlkur hafa greint Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) frá því að friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í Mið-Afríkulýðveldinu hafi beitt þær kynferðislegu ofbeldi. Þrjár þeirra eru sagðar hafa verið þvingaðar til maka með hundi. Mannréttindasamtökin Aids-Free World segja að umfang ofbeldisins geti verið miklu meira, að því er greint er frá á vef sænska blaðsins Dagens Nyheter.
Franskar hersveitir yfirgefa Miðafríkulýðveldið
Frakkar sendu hersveitir sínar til landsins í desember 2013 eftir að mikil alda ofbeldis reið þar yfir.
Kynjamisrétti í kennslubókum
Mennta-, vísinda- og menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, bendir á misrétti í kennslubókum sem notast er við í þróunarlöndum.
Frans páfi hefur sex daga heimsókn sína til Afríku
Frans páfi er kominn til Kenía en sex daga Afríkuferðar hans hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu.
Ban Ki-moon segir að nú sé nóg komið
Yfirmaður friðargæslu SÞ í Mið-Afríkulýðveldinu segir af sér eftir nýjar fréttir af kynferðisbrotum.
Níu þúsund hafa smitast
Þrátt fyrir varúðarráðstafanir hafa 2.700 heilbrigðisstarfsmenn smitast af ebólu og 236 þeirra eru látnir. Faraldur geisar enn í Gíneu, Líberíu og Síerra Leóne, en hætta á frekari útbreiðslu er mest í fjórtán Afríkuríkjum.
Mið-Afríkulýðveldið: Gerendur grimmdarverka eiga ekki að geta falið sig frá réttvísinni
Amnesty International hefur nú opinberað upplýsingar um þá sem grunur leikur á að fyrirskipi eða fremji grimmdarverkin sem hafa átt sér stað undanfarið í Mið-Afríkulýðveldinu.