Viðskipti
65 66 67 68 69 70 71 72 73 … 223 ›
Hægur hagvöxtur í Bandaríkjunum Hagvöxtur mældist 0,7 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir að hagvöxtur hafi ekki mælst minni í fjögur ár er þetta 0,1 prósentustigi meira en gert var ráð fyrir. Hagfræðingar höfðu hins vegar gert ráð fyrir 0,8 prósenta hagvexti. Viðskipti erlent 28.6.2007 15:56
PFS úthlutar tíðniheimildum Póst- og fjarskiptastofnun hefur úthlutað fjarskiptafyrirtækjunum Amitelo AG og IceCell ehf., félags í eigu BebbiCell AG, tíðniheimildir fyrir GSM 1800 farsímakerfi. Fjögur fyrirtæki lögðu fram tilboð í heimildirnar en einungis lá fyrir að úthluta þeim til tveggja fyrirtækja. Viðskipti innlent 28.6.2007 15:12
Metafkoma hjá BBC Breska ríkisútvarpið (BBC) skilaði hagnaði upp 111,1 milljónir punda, um 14 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári. Þetta er metafkoma í sögu útvarpsins sem skrifast að miklu leyti á góða sölu á mynddiskaútgáfum sjónvarpsþátta á borð við Planet Earth, Life on Mars og Doctor Who, sem nú er sýndur í Ríkissjónvarpinu. Viðskipti erlent 28.6.2007 13:25
Impregilo grunað um svik á Ítalíu Gengi hlutabréfa í ítalska verktakafyrirtækin Impregilo, sem meðal annars sér um framkvæmdir á Kárahnjúkum, féll um rúm 15 prósent á hlutabréfamarkaði á Ítalíu eftir að ítalskur ríkissaksóknari þar í landi bannaði fyrirtækinu að nýta sér meinaði fyrirtækinu sjá um eyðingu úrgangs í Campaniahéraði á Ítalíu. Fyrirtækið er grunað um svik í tengslum við eyðinguna. Viðskipti erlent 28.6.2007 12:36
Norðmenn hækka stýrivexti Norski seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 25 punkta í dag og standa þeir nú í 4,5 prósentum. Bankinn ætlar að halda stýrivöxtum að jafnaði í 5,75 prósentum næstu tvö árin sem er 50 punktum meira en bankinn hafði áður sagst ætla að gera. Viðskipti erlent 27.6.2007 16:52
Þeir ríkustu verða ríkari Ríkidæmi auðugustu einstaklinga í heimi jókst um 11,4 prósent á síðasta ári og nam þá rúmum 37 þúsund milljörðum bandaríkjadala. Á íslensku mannamáli jafngildir það 2.312 þúsund milljörðum króna, sem er mjög mikið. Viðskipti innlent 27.6.2007 14:30
Ryanair meinað að kaupa Aer Lingus Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur meinað írska lággjaldaflugfélaginu Ryanair að gera yfirtökutilboð í írska flugfélagið Aer Lingus. Í úrskurði framkvæmdastjórnarinnar segir að kaupin myndu koma niður á samkeppni og geta valdið hækkun á fargjöldum. Viðskipti erlent 27.6.2007 12:57
Kaupþing spáir 3,6 prósenta verðbólgu Greiningardeild Kaupþings spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,1 prósent á milli mánaða í júlí. Gangi það eftir lækkar verðbólga úr 4,0 prósentum í 3,6 prósent. Greiningardeildin spáir því að verðbólgumarkmið Seðlabankans náist ekki fyrr en á þriðja fjórðungi næsta árs. Viðskipti innlent 27.6.2007 12:42
Landsstjórnin hyggst halda í ráðandi hlut Færeyska landsstjórnin, sem hefur selt um 66 prósent hlutafjár við einkavæðingu Føroya Banka, hefur skuldbundið sig til að eiga eftirstöðvarnar í 180 daga frá skráningu bankans á hlutabréfamarkað á Íslandi og í Kaupmannahöfn. Eyðun á Rógvi, stjórnarformaður Fíggingargrunnsins frá 1992 (Financing Fund of 1992), býst þó fastlega við því að ríkið haldi fast í ráðandi hlut sinn næstu árin og selji hann ekki nema í einu lagi. „Í samræmi við áætlanir okkar er vilji fyrir því að selja hlutinn á næstu þremur til fimm árum. En þetta veltur allt á pólitískum aðstæðum sem geta alltaf breyst.“ Viðskipti innlent 26.6.2007 16:21
Barist við gúrkuna Gúrkan er alls ráðandi í fjölmiðlunum þessa dagana og fréttamenn berjast við að kreista fram fréttir; svona eins og fréttin um það að fjöldi fæðinga það sem af er ári væri svipaður og meðaltal undanfarinna ára. Viðskipti innlent 26.6.2007 16:21
Líkar heimildir hér og í Evrópu Valdaheimildir eftirlitsaðila á evrópskum verðbréfamörkuðum eru svipaðar en sektarfjárhæðir breytilegar. Þetta kemur fram í niðurstöðum kannana sem gerðar voru um mitt ár 2006 fyrir tilstilli Samstarfsnefndar eftirlitsaðila á evrópskum verðbréfamörkuðum. Viðskipti innlent 26.6.2007 16:21
Ekkert nema algjör yfirráð Þeim hluthöfum sem hefðu áhuga á að eiga áfram hlut sinn í Actavis, þrátt fyrir afskráningu félagsins, stendur það ekki til boða. Að minnsta kosti ekki ef Novator fær sínu framgengt. Viðskipti innlent 26.6.2007 16:21
Krónan sterk Gengi krónu mun haldast hátt svo lengi sem vaxtamunur minnkar ekki að neinu marki, samkvæmt Greiningu Glitnis. Með áhrifum sínum á væntingar um vaxtamuninn hafa lækkandi verðbólga, lágar hagvaxtartölur og ráðleggingar Hafrannsóknastofnunar dregið einhvern þrótt úr því styrkingarferli sem einkenndi gengisþróunina í apríl og maí. Viðskipti innlent 26.6.2007 16:21
Arvato AG semur við OpenHand Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið OpenHand hefur gengið til samninga við alþjóðlega samskipta- og fjölmiðlafyrirtækið Arvato AG. OpenHand útvegar Arvato AG lausn fyrir nýja þjónustu sem er væntanleg á markað í Þýskalandi, en hún samtvinnar nokkrar samskiptalausnir í eina áskriftarleið. Þannig verði til dæmis hægt að nota tölvupóstsþjónustu, skilaboðaþjónustu, eins og MSN, og tala um internetið. Viðskipti innlent 26.6.2007 16:22
Slagurinn merki um þroska markaðar Það hefur verið spennandi að fylgjast með yfirtökuferli Actavis að undanförnu. Hér er í raun á ferð fyrsta yfirtaka félags sem lýtur venjulegum yfirtökulögmálum sem þekkist á stærri mörkuðum. Oft var þörf fyrir slíkt, en í jafn stóru félagi var skýr nauðsyn nú að yfirtökuslagur væri raunverulegur. Smærri hluthafar í Actavis virðast nefnilega raunverulega hafa tekið á móti í ferlinu. Viðskipti innlent 26.6.2007 16:22
Hlutabréf lækka í Kína Gengi CSI-vísitölunnar lækkaði um þrjú prósent í kauphöllinni í Sjanghæ í Kína í fyrradag eftir að kínverski seðlabanki landsins sagði nauðsynlegt að hækka stýrivexti til að draga úr verðbólgu og spennu í hagkerfinu. Viðskipti erlent 26.6.2007 16:21
Neytendur sáttir við sitt Neytendur hafa aldrei mælst ánægðari með núverandi ástand. Þetta sýnir nýbirt væntingavísitala Gallup sem birt var í gær fyrir júnímánuð. Hins vegar dregur örlítið úr væntingunum þegar þeir líta til næstu sex mánaða. Þrátt fyrir það eru væntingarnar miklar. Viðskipti innlent 26.6.2007 16:21
Líkur á hærri vöxtum í Bretlandi Skoðanir voru skiptar innan peningamálanefndar Englandsbanka að halda stýrivöxtum óbreyttum í byrjun mánaðar. Fimm nefndarmenn voru fylgjandi því að halda vöxtunum óbreyttum í 5,5 prósentum en fjórir studdu hækkun upp á 25 punkta. Viðskipti erlent 26.6.2007 16:21
Samstarf sem allir hagnast á Í síðustu viku innsigluðu Alþjóðahúsið og Landsbankinn tímamótasamning í rekstri hússins. Hann hljóðar upp á tíu milljóna króna peningastyrk á þessu ári. Samstarfið þeirra á milli tekur þó til fleiri þátta og er til þess fallið að nýtast báðum aðilum vel. Viðskipti innlent 26.6.2007 16:21
Nýtur ekki stuðnings Breska fjárfestingafélagið Candover birti í gær skilyrði fyrir væntanlegu yfirtökutilboði í hollensku samsteypuna Stork. Tilboðið hljóðar upp á 1,5 milljarða evra, jafnvirði 125,5 milljarða íslenskra króna en felur í sér að það sé bindandi berist ekki fimm prósentustiga hærri tilboð í samstæðuna. Þá er skilyrði um að 80 prósent hluthafa verði að taka boðinu. Samþykki 95 prósent hluthafa þarf til að afskrá félagið. Viðskipti erlent 26.6.2007 16:21
Sveiflur í raungengi eru langar og stórar Jón Steinsson, hagfræðingur og verðandi lektor við Columbia University í New York, hefur fengið grein samþykkta til birtingar í fræðitímaritinu American Economic Review. Greinin, sem nefnist „The Dynamic Behavior of the Real Exchange Rate in Sticky Price Models“, fjallar um þróun raungengis í helstu iðnríkjunum, það er G-7 löndum, á síðustu þrjátíu árum þar sem reynt er að útskýra langar sveiflur í þróun raungengis. Viðskipti innlent 26.6.2007 16:21
Unnið á ströndinni Sífellt fleiri starfsmenn sækjast eftir því að fá að komast út úr skrifstofum sínum og vinna heima eða sitja utandyra við vinnu. Fyrirtækið Microsoft Windows Mobile í Bretlandi ætlar að vera með þeim fyrstu til þess að kynna slíkar aðstæður í sumar. Viðskipti erlent 26.6.2007 16:21
Nýherji opnar lífsstílsverslun Nýherji hefur opnað verslun sem leggur áherslu á stafrænan lífsstíl að Hlíðasmára 3 í Kópavogi. Í versluninni munu einstaklingar geta nálgast vörur og þjónustu fyrir nútímaheimili, að því er fram kemur í tilkynningu frá Nýherja. Á efri hæð er svo fyrirtækjaþjónusta Sense til húsa. „Með breytingunni er Nýherji að svara síaukinni eftirspurn einstaklinga og fyrirtækja eftir hágæða vörum og þjónustu á þessu sviði,“ segir í tilkynningunni. Viðskipti innlent 26.6.2007 16:21
Hagnaður Straumborgar dróst saman Straumborg hagnaðist um 2,05 milljarða króna í fyrra samanborið við tæplega fimm milljarða króna hagnað árið áður. Þetta kemur fram í skráningarlýsingu félagsins til Kauphallarinnar í tilefni af útgáfu víxla. Viðskipti innlent 26.6.2007 16:22
Fimm félög á yfir þrjú hundruð milljarða Í fyrsta skipti eru fimm fyrirtæki í Kauphöll Íslands metin á þrjú hundruð milljarða króna eða meira. Fyrirtækin eru fjármálafyrirtækin Kaupþing, Glitnir, Landsbankinn og Exista og samheitalyfjafyrirtækið Actavis sem datt inn í þennan hóp eftir að Novator hækkaði yfirtökutilboð sitt í félagið. Átta stærstu félögin í Kauphöllinni eru alls metin á tæpa þrjú þúsund milljarða króna. Viðskipti innlent 26.6.2007 16:21
Aðgerð „Albatross“ hafin hjá Glitni Innan Glitnis er hafin vinna við að móta framtíðarskipulag bankans í Noregi og nefnist verkefnið „Albatross“. Bankinn mun óska eftir heimild til að samræma starfsemina í Noregi, þar á meðal að fella Bolig- og Næringsbanken (BNbank) og Glitnir Bank í eina sterka heild. Þó er tekið fram að engar formlegar ákvarðanir hafi verið teknar þar að lútandi. Höfuðstöðvar Glitnis Bank yrðu í Þrándheimi en fyrirtækjabankastarfsemin í Álasundi. Viðskipti innlent 26.6.2007 16:21
Hefur sjávarútvegurinn glatað þjóðhagslegu mikilvægi sínu? Enn á ný er komin upp umræða um hlutverk og mikilvægi sjávarútvegsins í atvinnulífi Íslendinga. Umræðan snýst að nokkru um áhrif greinarinnar á byggðir landsins og einnig um hvort hlutverk þessarar undirstöðuatvinnugreinar hafi breyst í grundvallaratriðum frá því að núverandi stjórnkerfi fiskveiða var tekið upp. Við skulum skoða þetta aðeins nánar. Hvað hefur breyst frá upphafi níunda áratugar síðustu aldar þegar aflamarkskerfinu var komið á? Viðskipti innlent 26.6.2007 16:21
Kaupþing selur um þrettán milljarða „samúræjabréf“ Kaupþing horfir í vaxandi mæli til skuldabréfaútgáfu í Asíu. Japan er orðið einn af mörgum hornsteinum í fjármögnun bankans en fyrr á árinu fékk Kaupþing lánshæfismat frá ROI, japönsku lánhæfismatsfyrirtæki. Bankinn greinir frá „samúræjaútgáfu“ í Japan í dag þar sem seld voru skuldabréf fyrir um 25 milljarða jena, um 12,5 milljarða króna, til fjárfesta en kjörin lágu ekki fyrir við gerð þessarar fréttar. Viðskipti innlent 26.6.2007 16:21
Tryggðu sjálfstæði Wall Street Journal Stjórnir bandarísku fjölmiðlasamsteypanna Dow Jones & Co. og News Corporation, sem er í eigu ástralska auðkýfingsins Ruperts Murdoch, eru sögð hafa komist að samkomulagi sem tryggir ritstjórnarlegt sjálfstæði bandaríska dagblaðsins Wall Street Journal. Með því er stærstu hindruninni fyrir yfirtökutilboði Murdochs í Dow Jones & Co. velt úr vegi. Viðskipti erlent 26.6.2007 23:08
Minni væntingar nú en áður Væntingar Bandaríkjamanna lækkuðu um 4,6 stig og standa í 103,9 stigum í þessum mánuði samanborið við 108,5 stig í maí. Þetta er meiri lækkun á væntingum manna vestanhafs en gert hafði verið ráð fyrir. Niðurstaðan mun líklega skila sér í óbreyttum stýrivöxtum bandaríska seðlabankans. Viðskipti erlent 26.6.2007 16:21