Almannavarnir
19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 37 ›
Útivistarfólk varað við fjallaferðum vegna snjóflóðahættu Talsverð snjókoma hefur verið á norðurhluta landsins undanfarna daga og enn er óvissustig vegna snjóflóðahættu í gildi á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi. Innlent 27.1.2021 19:49
Rýmingu aflétt á hluta Seyðisfjarðar Ákveðið hefur verið að lækka almannavarnastig á Seyðisfirði vegna skriðuhættu úr hættustigi á óvissustig. Þá hefur rýmingu verið aflétt á hluta bæjarins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi. Innlent 25.1.2021 15:39
Rýmingu aflétt í Skutulsfirði Veðurstofan hefur aflýst hættustigi sem varðar þau þrjú atvinnuhúsnæði sem rýmd voru á Ísafirði í Skutulsfirði síðastliðinn föstudag. Innlent 25.1.2021 08:46
Yfir sjötíu snjóflóð á tíu dögum: „Þetta er dálítið kröftug snjóflóðahrina“ Skráð hafa verið 72 snjóflóð hjá ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands síðustu tíu dag. Þar af hafa fallið 33 á Vestfjörðum, 27 á Norðausturlandi og níu á Norðvesturlandi þegar þetta er skrifað en snjóflóðahrina hefur staðið yfir á Vestfjörðum og á Norðurlandi síðan á mánudaginn. Ríflega tuttugu þessara snjóflóða féllu síðasta sólarhringinn. Snjóflóð féll til að mynda yfir Flateyrarveg síðdegis í dag. Innlent 24.1.2021 22:05
Rýmingu vegna snjóflóðahættu aflétt á Siglufirði Rýmingu vegna snjóflóðahættu hefur verið aflétt á Siglufirði. Vegfarendur eru engu að síður beðnir um að hafa varan á, einkum á svæðum þar sem snjóflóð geta fallið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra þar sem segir að ákveðið hafi verið að aflétta rýmingu húsa á sunnanverðum Siglufirði. Óvissustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi er þó enn í gildi. Innlent 24.1.2021 17:28
Íbúar húsanna þriggja á Flateyri mega snúa heim Ákveðið hefur verið að aflétta rýmingu á Flateyri en íbúum þriggja íbúðarhúsa var gert að yfirgefa heimili sín í gær vegna snjóflóðahættu. Þeir mega því snúa heim. Sömuleiðis er talið óhætt að dvelja á hafnarsvæðinu og viðvörunarljósið þar verður slökkt. Innlent 24.1.2021 14:51
Snjóflóð féll úr Skollahvilft ofan Flateyrar í nótt Snjóflóð féll úr Skollahvilft ofan Flateyrar í nótt og stöðvaðist skammt utan við veginn að íbúðarhúsinu Sólbakka. Unnið er að könnun á ummerkjum flóðsins. Innlent 24.1.2021 11:54
Rýmingar vegna snjóflóðahættu á Flateyri Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir hættustigi vegna snjóflóðahættu og verða þrjú íbúðarhús rýmd á Flateyri. Innlent 23.1.2021 15:32
Rýmingar vegna snjóflóðahættu á Ísafirði Ákveðið hefur verið að rýma hús á Ísafirði vegna snjóflóðahættu. Í tilkynningu frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir að um reit níu sé að ræða og á honum sé atvinnuhúsnæði sem tryggt hafi verið að væru mannlaus í gærkvöldi. Innlent 23.1.2021 09:52
Áfram hættustig á Siglufirði Óvissustig verður áfram á öllu Norðurlandi og hættustig á Siglufirði vegna snjóflóðahættu. Afleitt verður hefur verið fyrir norðan í dag, hvöss norðanátt með snjókomu eða éljum. Innlent 22.1.2021 18:58
„Það er ekki hægt að ætla neinu nútímasamfélagi að lifa við þetta“ Bæjarstjóri Fjallabyggðar segir Siglfirðinga orðna langþreytta á lokunum með tilheyrandi raski á atvinnustarfsemi. Það sé allt of algengt að íbúar verði innlyksa dögum saman vegna ófærðar. Eina lausnin séu jarðgöng. Innlent 22.1.2021 12:11
„Hélt við værum örugg undir snjóflóðavarnargarðinum“ Íbúi sem þurfti ásamt fjölskyldu sinni að yfirgefa heimili sitt á Siglufirði í gær vegna snjóflóðahættu segist undrandi því snjóflóðagarður sé við húsið. Greinilegt sé að verið sé að endurmeta snjóflóðavarnir á svæðinu. Talið er að altjón hafi orðið á skíðasvæði Siglfirðinga í snjóflóði í gær en lyftan virðist hafa sloppið. Innlent 21.1.2021 19:00
Rýming áfram í gildi og samgöngur takmarkaðar vegna snjóflóðahættu Rýming verður áfram í gildi á Siglufirði í dag og verður hún endurmetin síðdegis á morgun. Þetta staðfestir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, í samtali við fréttastofu. Innlent 21.1.2021 17:46
Líklega altjón á skíðasvæðinu á Siglufirði Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, fundaði með forsvarsmönnum skíðasvæðisins á Siglufirði í morgun. Snjóflóð skall á skíðaskálann í gærmorgun og hreif skálann af grunni sínum. Elías segir í samtali við fréttastofu að líklega sé um altjón á skíðasvæðinu að ræða. Skíðalyftan hafi þó sloppið fyrir horn. Innlent 21.1.2021 14:14
Níu fjölskyldur á Siglufirði mega ekki snúa aftur heim strax Ástandið er óbreytt á Norðurlandi hvað snjóflóðahættu varðar og því mun rýming níu húsa á Siglufirði vara áfram, í það minnsta um stundarsakir. Innlent 21.1.2021 12:35
Enn engar tilkynningar um ný flóð á Tröllaskaga Veðurstofunni hafa enn ekki borist nýjar tilkynningar um að ný snjóflóð hafi fallið í Siglufirði eða annars staðar á Tröllaskaga. Beðið er eftir að birti til að hægt sé að taka betur stöðuna, en margir vegir á svæðinu eru sem stendur lokaðir og því ekki útilokað að flóð hafi fallið. Innlent 21.1.2021 07:29
Hækka viðbúnaðarstig og rýma svæði á Siglufirði Veðurstofa Íslands hefur hækkað viðbúnaðarstig í hættustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi. Ákveðið hefur verið að rýma svæði sem er syðst á Siglufirði og mun lögregla hafa samband við fólkið sem þarf að yfirgefa heimili sín. Innlent 20.1.2021 15:23
Skíðaskáli Siglfirðinga færðist úr stað í snjóflóði Snjóflóð féll á skíðasvæðinu á Siglufirði, sennilega í morgun. Egill Rögnvaldsson svæðisstjóri skíðasvæðisins segir í samtali við fréttastofu að erfitt sé að átta sig á umfangi flóðsins en mikill skafrenningur er á svæðinu og þurftu menn frá að hverfa. Innlent 20.1.2021 11:54
Óvissustig vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Norðurlandi Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Norðurlandi. Nokkur snjóflóð hafa fallið í dag utan þéttbýlis og hefur Ólafsfjarðarmúla og Siglufjarðarvegi verið lokað. Innlent 19.1.2021 21:56
„Smitskömm er óþörf og getur jafnvel valdið skaða“ Það tekur smitrakningateymi lengri tíma nú en í fyrstu bylgju kórónuveirufaraldursins að ná utan um smit og smitkeðjur en áður. Aðstoðaryfirlögregluþjónn veltir fyrir sér hvort smitskömm sé meiri nú en þá. Innlent 18.1.2021 19:00
Rýmingu aflétt á Seyðisfirði Rýmingu á þeim húsum sem rýmd voru á Seyðisfirði á föstudag hefur nú verið aflétt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi. Innlent 17.1.2021 11:33
Búast ekki við að rýmingu verði aflétt strax Rýming er enn í gildi á Seyðisfirði og fylgjast sérfræðingar náið með stöðunni. Talsverðri úrkomu var spáð á Seyðisfirði í nótt en var hún þó minni en búist var við. Sérfræðingar gera allt eins ráð fyrir því að úrkoman gæti orðið meiri í dag. Innlent 16.1.2021 10:17
Hluti Seyðisfjarðar rýmdur vegna mikillar úrkomu Lögreglustjórinn á Austurlandi í samráði við Ríkislögreglustjóra og Veðurstofu Íslands hefur ákveðið að rýma hluta Seyðisfjarðar vegna úrkomuspár. Stefnt er að því að rýmingu verði lokið klukkan tíu í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra. Innlent 15.1.2021 18:09
Allir verða skyldaðir í tvöfalda skimun frá og með deginum í dag Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra lagði til á ríkisstjórnarfundi í morgun að tvöföld skimun á landamærum verði skylda frá og með deginum í dag. Val um tveggja vikna sóttkví við komu til landsins verður því afnumið. Innlent 15.1.2021 12:09
Ekki talið að hreyfingar hafi orðið á jarðlögum á Seyðisfirði Ekki er talið að sprunga í skriðusári skriðunnar, sem féll þann 18. desember á Seyðisfirði, hafi stækkað en tilkynning þess efnis barst í dag. Hreinsunarvinna hafði verið í gangi á áhrifasvæði skriðunnar en henni var hætt af öryggisástæðum vegna mögulegrar hreyfingar í skriðunni. Innlent 14.1.2021 19:57
Rýmdu frystihús og sigldu með fólk í bæinn í öryggisskyni Lögreglan á Austfjörðum ákvað að láta rýma hús á vinnusvæði nærri þeim stað þar sem stór skriða féll á Seyðisfirði í desember. Í tilkynningu frá lögreglu segir að ábendingar hafi borist klukkan hálf tólf í morgun um að sprunga sem myndaðist í fyrrnefndri skriðu 18. desember hefði hugsanlega gliðnað. Vinnusvæði þar fyrir neðan hefði í kjölfarið verið rýmt og því lokað. Innlent 14.1.2021 12:56
Búist við nýjum reglum á landamærunum innan nokkurra daga Sóttvarnalæknir segir þann fjölda sem greinst hafi á landamærunum að undanförnu endurspegla útbreiðslu kórónuveirufaraldursins í öðrum löndum. Heilbrigðisráðherra mun væntanlega kynna nýjar sóttvarnareglur við landamærin á næstu dögum. Innlent 13.1.2021 19:21
„Þetta er ekki hugsað til að þú getir haldið partíið sem þig hefur langað til að halda“ Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, segir að fólk verði að gera sér grein fyrir því að tilslakanir á sóttvarnareglum séu alls ekki hugsaðar til þess að fólk geti haldið veislur og partí. Innlent 13.1.2021 13:42
Krefjast rannsóknar á rýmingu: „Þetta flækjustig hefði getað kostað mörg mannslíf“ Heimastjórn Seyðisfjarðar gerir kröfu um að strax verði hafin rannsókn á því hvað varð þess valdandi að rýmingar á Seyðisfirði fóru ekki fram fyrr en skriður voru farnar að falla á bæinn. Innlent 12.1.2021 15:57
Svona var 152. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til hefðbundins upplýsingafundar á mánudagi klukkan 11 í dag. Innlent 11.1.2021 10:16