Íþróttir

Fréttamynd

Neitar að hafa talað illa um Chelsea

Sir Alex Ferguson hefur séð ástæðu til að leiðrétta frétt sem birtist í blaði í Suður-Afríku, þar sem því var haldið fram að Ferguson hefði sagt að Chelsea væri að ganga að knattspyrnunni dauðri. Ferguson var sakaður um að láta þessi orð falla í kvöldverðarboði í Höfðaborg þar sem Manchester United hefur verið við æfingar að undanförnu.

Sport
Fréttamynd

Curbishley hefur ekki áhuga á Villa

Alan Curbishley, sem nýverið lét af störfum hjá Charlton eftir 15 ára störf, segist ekki hafa áhuga á að taka við liði Aston Villa. Curbishley segir að til greina hefði komið að taka við enska landsliðinu á sínum tíma, en úr því ekkert varð úr því hefur hann ákveðið að taka sér frí í það minnsta fram á vorið.

Sport
Fréttamynd

Riggott semur við Boro

Varnarmaðurinn Chris Riggott hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarliðið Middlesbrough um fjögur ár. Riggott er 25 ára gamall miðvörður sem festi sig í sessi í byrjunarliði liðsins á síðustu leiktíð og hefur nú bundist félaginu til ársins 2010.

Sport
Fréttamynd

Fernandes ekki á leið til Portsmouth strax

Nú er útlit fyrir að ekki verði af fyrirhuguðum kaupum enska úrvalsdeildarliðsins Portsmouth á portúgalska miðjumanninum Manuel Fernandes á næstunni eftir að leikmanninum tókst ekki að komast klakklaust í gegn um læknisskoðun. Talsmenn Portsmouth segja að málið sé komið í salt í það minnsta næsta mánuðinn, en þá verði málið tekið upp að nýju.

Sport
Fréttamynd

Shawn Kemp handtekinn enn á ný

Fyrrum stjörnuleikmaðurinn Shawn Kemp var handtekinn af lögreglu í Houston í dag eftir að lögreglumaður stöðvaði hann fyrir að aka um á númerslausum bíl. Við nánari athugun fannst sterk lykt af eiturlyfjum í bílnum og í ljós komu nokkur grömm af marijúana sem Kemp hafði falin í fórum sínum.

Sport
Fréttamynd

Duff á leið til Newcastle

Írski vængmaðurinn Damien Duff er nú að gangast undir læknisskoðun hjá úrvalsdeildarliði Newcastle og hefur samþykkt kaup og kjör hjá félaginu. Málið hefur þróast hratt í dag, en fyrir skömmu þótti víst að hann væri á leið til Tottenham.

Sport
Fréttamynd

Bergkamp kveður á morgun

Það verður mikið um dýrðir á nýja Emirates-leikvanginum í London á morgun þegar Arsenal vígir völlinn með sérstökum kveðjuleik fyrir Hollendinginn Dennis Bergkamp sem leikið hefur með liðinu í 11 ár. Arsenal mætir þar hollenska liðinu Ajax og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 16.

Sport
Fréttamynd

Del Horno til Valencia

Chelsea hefur samþykkt að selja spænska landsliðsmanninn Asier del Horno til Valencia og er leikmaðurinn nú kominn til heimalandsins þar sem hann er að ganga frá samningi. Del Horno spilaði 25 leiki fyrir Chelsea á síðustu leiktíð, en missti af lokum tímabilsins og HM vegna meiðsla. Ekkert hefur verið gefið upp um kaupverðið að svo stöddu.

Sport
Fréttamynd

Ullrich rekinn frá T-Mobile

Hjólreiðaliðið T-Mobile ákvað í dag að rifta samningi við fyrrum Tour de France meistarann Jan Ullrich eftir að hann flæktist í viðamikla rannsókn á lyfjamisnotkun á dögunum. Ullrich segist á heimasíðu sinni vera afar óhress með þessa niðurstöðu og segir málið í höndum lögfræðinga sinna.

Sport
Fréttamynd

Frábær sigur á Evrópumeisturunum

Íslenska U-18 landsliðið vann í gærkvöld frábæran sigur á Evrópumeisturum Frakka á Evrópumótinu sem fram fer í Grikklandi 73-61. Sigur liðsins er einhver sá óvæntasti í langan tíma, en dugði íslenska liðinu þó ekki til áframhaldandi þáttöku og vermdi það að lokum neðsta sætið í riðli sínum. Hörður Hreiðarsson skoraði 17 stig fyrir íslenska liðið, Brynjar Björnsson 16 og þeir Þröstur Jóhannsson og Hörður Vilhjálmsson 15 hvor.

Sport
Fréttamynd

Newcastle á höttunum eftir Duff

Breska pressan greinir frá því í dag að úrvalsdeildarlið Newcastle sé nú á höttunum eftir írska vængmanninum Damien Duff hjá Chelsea, en hann var á dögunum orðaður verið Tottenham. Því er haldið fram að Newcastle muni gera 10 milljón punda tilboð í hann á næstu dögum, en liðið undirbýr sig nú fyrir síðari Evrópuleik sinn við norska liðið Lilleström.

Sport
Fréttamynd

Zambrotta og Thuram til Barcelona

Evrópumeistarar Barcelona hafa gefið það út að félagið sé búið að ná samningi við þá Gianluca Zambrotta og Lilian Thuram frá ítalska liðinu Juventus. Zambrotta er 29 ára og hefur skrifað undir fjögurra ára samning og Thuram, sem er 34 ára, hefur skrifað undir tveggja ára samning. Samanlagt kaupverð þeirra er sagt vera um 19 milljónir evra.

Fótbolti
Fréttamynd

Woods í stuði

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods er í miklu stuði á Opna breska meistaramótinu í golfi í dag og jafnaði kappinn vallarmetið þegar hann lék á 65 höggum í dag, eða 7 undir pari. Hann hefur sem stendur þriggja högga forystu á næsta mann á mótinu sem er Chris DiMarco.

Golf
Fréttamynd

Á von á Nistelrooy á æfingu á mánudag

Sir Alex Ferguson er ekkert að æsa sig yfir máli Ruud Van Nistelrooy og segist búast við því að framherjinn mæti á æfingu hjá félaginu á mánudag. Ferguson undirstrikar að fyrsta boð Real Madrid hafi ekki verið nógu hátt og ef annað betra komi ekki, muni United fegið halda honum áfram í herbúðum sínum.

Sport
Fréttamynd

Refsing Materazzi setur slæmt fordæmi

Giacinto Faccetti, forseti Inter Milan, telur að leikbannið og sektin sem Marco Materazzi leikmaður liðsins fékk fyrir að storka Zinedine Zidane í úrslitaleiknum á HM, geti átt eftir að setja slæmt fordæmi í knattspyrnunni í nánustu framtíð og gæti orðið til þess að hleypa af stað aragrúa erfiðra klögunarmála.

Fótbolti
Fréttamynd

McCarthy tekur við Wolves

Mick McCarthy, fyrrum knattspyrnustjóri Sunderland, var í dag ráðinn stjóri 1. deildarliðsins Wolves. McCarthy tekur þar við stjórntaumunum af Glenn Hoddle sem hætti fyrir þremur vikum. Hann var þar áður landsliðsþjálfari Íra í fjölda ára.

Sport
Fréttamynd

McDowell í forystu

Norður-írski kylfingurinn Graeme McDowell hefur óvænt forystu eftir fyrsta keppnisdag á opna breska meistaramótinu í golfi sem fram fer á Hoylake-vellinum í Liverpool. McDowell lék á 66 höggum í dag, eða 6 höggum undir pari og er höggi á undan meistara ársins í fyrra Tiger Woods og tveimur Bretum sem koma þar á eftir.

Golf
Fréttamynd

Spila um bronsið á NM

Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri mætir Svíum í leik um bronsverðlaunin á opna Norðurlandamótinu í knattspyrnu um helgina. Það verða Bandaríkin og Þýskaland sem mætast í úrslitaleik, eftir að bandaríska liðið lagði heimamenn Norðmenn 4-0 í kvöld og hafnaði því fyrir ofan íslenska liðið á markamun.

Sport
Fréttamynd

Vill fá tækifæri hjá Ferguson

Framherjinn ungi Guiseppe Rossi hjá Manchester United hefur farið þess á leit við Sir Alex Ferguson að fá tækifæri með aðalliði félagsins næsta vetur, en þó er ekki loku fyrir það skotið að hann verði lánaður í nokkra mánuði.

Sport
Fréttamynd

Forsetakosningar framundan hjá Barcelona

Boðað hefur verið til fundar hjá stjórn Evrópumeistara Barcelona á morgun, þar sem ákveðið verður hvenær forsetakosningar verða haldnar hjá félaginu. Joan Laporta hefur gegnt embætti forseta síðan 2003 og hefur skilað frábærum árangri, en er engu að síður gríðarlega umdeildur. Hann hefur skilað tveimur meistaratitlum og einum Evróputitli í hús, en hefur þótt harður húsbóndi.

Fótbolti
Fréttamynd

Duff er ekki ómissandi

Jose Mourinho segist eiga gott sambandi við írska vængmanninn Damien Duff sem á dögunum var orðaður við grannaliðið Tottenham í London. Mourinho segir Duff vera góðan leikmann og góðan náunga, en bendir á að þó hann geti vel hugsað sér að halda honum í leikmannahópi sínum, sé hann ekki ómissandi.

Sport
Fréttamynd

Bayern að undirbúa tilboð?

Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen hafa enn ekki sagt sitt síðasta orð í máli Ruud Van Nistelrooy og nú berast þær fregnir frá Englandi að Bayern hafi í hyggju að bjóða enska landsliðsmanninn Owen Hargreaves auk peningaupphæðar til að landa hollenska framherjanum.

Fótbolti
Fréttamynd

Ætlum að kaupa þrjá leikmenn í viðbót

Fabio Capello, þjálfari Real Madrid, segir að félagið hafi lagt upp með að kaupa fimm leikmenn í sumar og því sé félagið enn á höttunum eftir þremur leikmönnum. Capello segir að aðaláherslan hafi verið lögð á að ná í varnarmann og miðjumann og sú þörf hafi þegar verið leyst með þeim Fabio Cannavaro og Emerson.

Fótbolti
Fréttamynd

Del Piero og Nedved áfram hjá Juve?

Ítalski landsliðsmaðurinn Alessandro del Piero hefur þegar gefið það út að hann ætli sér ekki að yfirgefa herbúðir Juventus þrátt fyrir að liðið hafi á dögunum verið fellt í B-deildina með 30 stig í mínus. Hann segir að tékkneski miðjumaðurinn Pavel Nedved ætli að gera slíkt hið sama, en Nedved hefur verið orðaður við enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham á liðnum dögum.

Fótbolti
Fréttamynd

Vonast til að landa Zambrotta og Thuram

Evrópumeistarar Barcelona halda því fram í dag að samningaviðræður gangi vel við forráðamenn Juventus um að kaupa varnarmennina Lilian Thuram og Gianluca Zambrotta. Því er haldið fram að kaupin gætu farið fram í upphafi næstu viku og að Zambrotta muni kosta 13,5 milljónir punda og Thuram 3,5 milljónir punda.

Fótbolti
Fréttamynd

Stórsigur á Dönum

Íslenska kvennalandsliðið U-21 árs vann í dag stórsigur á Dönum 6-1 í leik liðanna á Norðurlandamótinu sem stendur yfir í Noregi um þessar mundir. Íslenska liðið hefur því náð forystu í riðli sínum, en lið Bandaríkjanna getur jafnað íslenska liðið að stigum með sigri á heimamönnum í kvöld. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði þrennu í leiknum í dag.

Sport
Fréttamynd

Emirates leikvangurinn opnaður í dag

Nýr heimavöllur Arsenal, Emirates-völlurinn, var opnaður almenningi í fyrsta sinn í dag og fyrsti leikurinn sem spilaður verður á vellinum fer fram á laugardag. Það verður kveðjuleikur Dennis Bergkamp þar sem Arsenal tekur á móti Ajax frá Amsterdam og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 16.

Sport
Fréttamynd

Ensku liðin ekki tilbúin að kaupa Kuyt

Umboðsmaður hollenska framherjans Dirk Kuyt hjá Feyenoord segir að ensk lið, með Liverpool í fararbroddi, séu ekki tilbúin að greiða fyrir hann þær tæpu 14 milljónir punda sem settar hafa verið á hann. Umboðsmaðurinn hefur því gefið það út að líklega muni framherjinn verða áfram í herbúðum Feyenoord á næstu leiktíð.

Sport
Fréttamynd

Roy Aitken tekur við tímabundið

Roy Aitken, aðstoðarmaður David O´Leary sem lét af störfum sem stjóri Aston Villa í gær, hefur verið fenginn til að stýra liðinu þangað til eftirmaður O´Leary er fundinn. Fyrsti leikur Villa á undirbúningstímabilinu er á morgun og hafa nöfn Alan Curbishley og Gordon Cowans þegar komið upp á yfirborðið sem líklegir eftirmenn hins írska O´Leary.

Sport
Fréttamynd

Corradi til Manchester City

Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City hefur fest kaup á ítalska framherjanum Bernardo Corradi frá Valencia. Corradi er þrítugur fyrrum ítalskur landsliðsmaður og lék áður með Parma og Lazio. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Sport