Íþróttir

Fréttamynd

Minnesota tekur á móti Memphis

Í nótt fer fram síðasta umferðin í deildarkeppninni í NBA deildinni. Leikur Minnesota Timberwolves og Memphis Grizzlies verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV á Digital Ísland og hefst klukkan 12 á miðnætti. Í kvöld ræðst svo endanlega hver uppröðun liða verður í úrslitakeppninni, þar sem Memphis verður í eldlínunni en leikmenn Minnesota fara í sumarfrí eftir leik kvöldsins.

Sport
Fréttamynd

Ballack hefur samþykkt fjögurra ára samning við Chelsea

Þýska stöðin ZDF heldur því fram í dag að hún hafi heimildir fyrir því að þýski miðjumaðurinn Michael Ballack hjá Bayern Munchen sé þegar búinn að samþykkja fjögurra ára samning við Englandsmeistara Chelsea og segir að nú eigi aðeins eftir að skrifa undir samninginn. Forráðamenn Chelsea hafa ekki fengist til að tjá sig um málið frekar en umboðsmaður hins 29 ára gamla leikmanns.

Sport
Fréttamynd

Sigurinn gefur okkur von

Steve Bruce hrósaði varamanni sínum Mikael Forssell í hástert eftir að framherjinn finnski skoraði sigurmark Birmingham gegn Blackburn í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. "Þetta mark sem hann skoraði gæti hafa verið mikilvægasta mark félagsins í langan tíma, en það á eftir að koma í ljós á næstu dögum. Fyrir viku óttaðist ég að við værum búnir að vera, en strákarnir hafa sýnt frábæra baráttu og nú erum við komnir í ágæta stöðu til að bjarga sæti okkar í úrvalsdeildinni," sagði Bruce.

Sport
Fréttamynd

United verður á toppnum á næstu árum

Norski framherjinn Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United segir að eftir tvö ár í skugga Chelsea og Arsenal, muni United aftur verða á meðal þeirra bestu á næsta tímabili.

Sport
Fréttamynd

Dirk Nowitzki tekur við verðlaunum í kvöld

Þýski framherjinn Dirk Nowitzki hjá Dallas Mavericks var kjörinn besti leikmaður ársins 2005 af FIBA og mun hann taka við verðlaunum fyrir lokaleik Dallas Mavericks í deildarkeppninni í kvöld. Nowitzki bar þýska landsliðið á herðum sér í Evrópukeppni landsliða síðasta sumar og var vel að titlinum kominn. Hann þykir einnig koma sterklega til greina með að verða valinn verðmætasti leikmaður ársins í NBA deildinni í ár.

Sport
Fréttamynd

Dýrmætur sigur Birmingham

Lærisveinar Steve Bruce í Birmingham unnu gríðarlega mikilvægan sigur á Blackburn 2-1 á heimavelli sínum St. Andrews í kvöld og halda þar með í vonina um að forðast fall í fyrstu deildina. Nicky Butt kom heimamönnum yfir í leiknum, en fyrrum leikmaður Birmingham Robbie Savage jafnaði metin fyrir gestina. Það var svo finnski framherjinn Mikael Forssell sem skoraði sigurmark Birmingham á 86. mínútu eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Sport
Fréttamynd

Arsenal lagði Villarreal

Arsenal lagði Villarreal 1-0 í fyrri undanúrslitaviðureign liðanna í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Það var varnarmaðurinn Kolo Toure sem skoraði mark heimamanna á 41. mínútu í síðasta Evrópuleik Arsenal á Highbury. Það er því ljóst að allt getur gerst í síðari leiknum sem fram fer á Spáni í næstu viku.

Sport
Fréttamynd

Montgomery þjálfar Warriors áfram

Chris Mullin, stjórnarformaður Golden State Warriors, hefur tilkynnt að þjálfari liðsins Mike Montgomery muni stýra liðinu áfram á næsta tímabili þrátt fyrir lélegt gengi þess enn eitt árið í vetur. Golden State hefur ekki komist í úrslitakeppnina í 12 ár í röð og olli gríðarlegum vonbrigðum í ár. Montgomery kom inn í NBA deildina fyrir tveimur árum eftir árangursríkan feril í háskólaboltanum, en hefur gengið erfiðlega að aðlagast atvinnumennskunni.

Sport
Fréttamynd

Marciulionis heiðursgestur á lokahófi KKÍ

Litháenski körfuboltamaðurinn Sarunas Marciulionis verður sérstakur heiðursgestur á lokahófi KKÍ sem fram fer á Radison SAS hótelinu á föstudagskvöldið. Marciulionis gerði garðinn frægan í NBA deildinni á árum áður og lék meðal annars með Golden State Warriors, Seattle Supersonics og Sacramento Kings. Hann vann einnig til gullverðlauna með Sovétmönnum á Ólympíuleikunum árið 1988.

Sport
Fréttamynd

Lemgo burstaði Göppingen

Þrír leikir voru á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Lemgo burstaði Göppingen 32-23. Logi Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson skoruðu 3 mörk hvor fyrir Lemgo, en Jaliesky Garcia Padron skoraði 7 mörk fyrir Göppingen. Kiel vann auðveldan útisigur á Lubbecke 40-31, þar sem Þórir Ólafsson skoraði 6 mörk fyrir Lubbecke og var markahæstur sinna manna.

Sport
Fréttamynd

Ísland stendur í stað

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu stendur í stað á styrkleikalista Alþjóða Knattspyrnusambandsins sem birtur var í dag. Ísland er sem fyrr í 97. sæti listans. Brasilíumenn eru á toppi listans, Tékkar í öðru sætinu og Hollendingar í því þriðja. Athygli vekur að Bandaríkjamenn eru komnir í fjórða sætið á listanum.

Sport
Fréttamynd

Jafnt í hálfleik hjá Birmingham og Blackburn

Staðan í leik Birmingham og Blackburn er jöfn 0-0 á St. Andrews þegar flautað hefur veirð til leikhlés. Birmingham þarf nauðsynlega á sigri að halda til að eiga möguleika á að bjarga sér frá falli úr úrvalsdeildinni.

Sport
Fréttamynd

Arsenal hefur forystu gegn Villarreal

Arsenal hefur yfir 1-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Það var varnarmaðurinn Kolo Toure sem skoraði markið á 41. mínútu. Leikurinn er fjörugur og skemmtilegur og hafa bæði lið fengið fjölda færa til að skora.

Sport
Fréttamynd

Toure kemur Arsenal yfir

Varnarmaðurinn Kolo Toure hefur komið Arsenal yfir gegn Villareal á Highbury á 41. mínútu leiksins eftir góðan undirbúning hjá Alexandr Hleb. Leikurinn hefur verið mjög fjörugur og hafa bæði lið fengið ágæt marktækifæri. Hann er sýndur beint á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Alonso sigurviss á Imola

Fernando Alonso segir að lið hans Renault hafi alla burði til að sigra á Imola-brautinni í San Marino um helgina. "Við erum liðið sem allir eru að keppa við sem fyrr og ég er viss um að við verðum í baráttunni um sigurinn í San Marion," sagði Alonso, sem hefur unnið tvær af þremur fyrstu keppnum ársins og hefur 14 stiga forskot í keppni ökuþóra.

Sport
Fréttamynd

John Lyall látinn

John Lyall, fyrrum stjóri West Ham og Ipswich lést eftir að hafa fengið hjartaáfall í gær, hann var 66 ára gamall. Lyall stýrði West Ham frá árinu 1974 til 1989 og tók við Ipswich árið eftir það. Hann gerði West Ham-liðið tvisvar að bikarmeisturum, árin 1975 og 1980 og kom Ipswich í úrvalsdeildina árið 1991-92.

Sport
Fréttamynd

Southgate og Viduka ekki með annað kvöld

Varnarmaðurinn Gareth Southgate og Mark Viduka eru meiddir og verða ekki með liði sínum Middlesbrough í fyrri leik liðsins gegn Steua Búkarest í Rúmeníu annað kvöld. Þetta er fyrri leikur liðsins í undanúrslitum Evrópukeppni félagsliða. Viduka er meiddur á læri en Southgate er meiddur á ökkla.

Sport
Fréttamynd

Leikur Arsenal og Villareal að hefjast

Nú styttist í að flautað verði til leiks á Highbury í leik Arsenal og Villareal í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu, en þetta er fyrri viðureign liðanna. Arsenal teflir fram sínu hefðbundna liði en Freddy Ljungberg kemur þó inn fyrir Jose Antonio Reyes sem er í leikbanni. Tvo fastamenn vantar í vörnina hjá spænska liðinu, markvörðurinn Mariano Barbosa kemur inn fyrir Sebastien Viera og Cesar Arco kemur inn fyrir Juan Manuel Pena. Leikurinn er í beinni á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Birmingham mætir Blackburn

Einn leikur er á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld þar sem Birmingham freistar þess að krækja í gríðarlega mikilvæg stig í botnbaráttunni. Blackburn er í baráttu um Evrópusæti og því er allt undir hjá lærisveinum Mark Hughes sömuleiðis. Steve Bruce, stjóri Birmingham, segir að aldrei komi til greina að segja af sér þó liðið falli niður í fyrstu deild.

Sport
Fréttamynd

Upson framlengir við Birmingham

Matthew Upson hefur framlengt samning sinn við úrvalsdeildarlið Birmingham til ársins 2008. Varnarmaðurinn knái er meiddur sem stendur og verður frá í sex mánuði, en samningur hans átti að renna út nú í sumar. Upson hefur átt í miklum vandræðum með meiðsli í allan vetur, en stjóri hans Steve Bruce hefur miklar mætur á honum og er ánægður með að vera búinn að tryggja sér þjónustu varnarmannsins áfram.

Sport
Fréttamynd

Real hefur augastað á Steven Gerrard

Benito Floro, yfirmaður knattspyrnumála hjá Real Madrid, hefur gefið út að Steven Gerrard fyrirliði Liverpool sé einn þeirra leikmanna sem félagið ætli sér að reyna að kaupa í sumar. Gerrard skrifaði sem kunnugt er undir nýjan samning við Liverpool síðasta sumar, en nú hefur Floro gefið það út að hann og brasilíski framherjinn Adriano hjá Inter séu þeir leikmenn sem efstir séu á óskalista spænska félagsins.

Sport
Fréttamynd

Tímabilinu lokið hjá Hermanni

Hermann Hreiðarsson hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann af aganefnd enska knattspyrnusambandsins fyrir að gefa Luis Boa Morte hjá Fulham olnbogaskot í leik Charlton og Fulham á dögunum. Hermann ákvað að áfrýja ekki dómi sambandsins og missir því af síðustu þremur leikjum sinna manna í deildinni.

Sport
Fréttamynd

Alþjóðlegir hestadagar í Skagafirði

Alþjóðlegir hestadagar í Skagafirði hefjast á morgun sumardaginn fyrsta með reiðkennslusýningu Hólaskóla. Þessi hátíð er haldin ár hvert og dregur að sér mikið af áhorfendum innlendum sem erlendum. Boðið verður uppá fræðsluerindi, kynbótasýningar, töltkeppni og svo er markaðsdagur í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Hestadagarnir standa yfir dagana 20 – 23 apríl.

Innlent
Fréttamynd

Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum. Staðan í deildinni eftir fimm greinar af átta

Með góðum sigri í Gæðingafiminni á hestagullinu Ormi frá Dallandi hefur Alti Guðmundsson færst í hóp fremstu knapanna og ljóst að hann mun blanda sér í baráttu um meistaratitlinn. Í úrslitum Gæðingafiminnar fékk Sigurður Sigurðarson 7, 93 í einkunn en Þorvaldur Árni 7,92. Þetta brot 1/100 réð úrslitum um það hvor þeirra leiðir stigasöfnunina að lokinni Gæðingafiminni.

Sport
Fréttamynd

Enn meira um Skeifudaginn á Hvanneyri

Laugardaginn 22. apríl n.k. verður haldinn hinn árlegi Skeifudagur við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Þennan dag, eins og verið hefur um áratuga skeið, kynna nemendur í hrossarækt árangur vetrarstarfsins. Morgunblaðsskeifan verður afhent þennan dag en hún er veitt fyrir bestan árangur í tamninga- og reiðkennslunámi vetrarins.

Sport
Fréttamynd

Skammarleg framkoma Webber og Iverson

Chris Webber og Allen Iverson eru ekki vinsælustu mennirnir í Philadelphia í dag eftir að þeir mættu of seint í síðasta heimaleik liðs síns í gærkvöldi og gerðu eiganda, þjálfara og stuðningsmenn Philadelphia 76ers að fíflum. Þeir félagar áttu reyndar báðir við smávægileg meiðsli að stríða og því stóð ekki til að láta þá spila, en þeir eiga báðir eftir að svara fyrir framkomu sína með sektum eða jafnvel leikbönnum.

Sport
Fréttamynd

Arenas og Redd skoruðu báðir 43 stig

Sjónvarpsleikurinn á NBA TV í gærkvöldi var hin besta skemmtun en þar bar Washingto sigurorð af Milwaukee á heimavelli sínum 116-103, þar sem Gilbert Arenas hjá Washington og Michael Redd skoruðu 43 stig hvor. Það voru þó heimamenn sem höfðu sigur og eru í góðri stöðu með að ná fimmta sætinu í úrslitakeppninni í Austurdeildinni.

Sport
Fréttamynd

Stuðningsmenn vilja skammarkrók í enska boltann

Fréttavefur BBC greindi í kvöld frá niðurstöðum skoðanakönnunar sem gerð var meðal stuðningsmanna knattspyrnuliða á Englandi, en þar kom fram að meira en helmingur þeirra 43.000 manns sem spurðir voru, vilja að leikmönnum sem gerast sekir um grófar tæklingar verði refsað með því að vera settir í skammarkrók eins og tíðkast í ruðningi þar í landi - ekki ósvipað fyrirbæri og tveggja mínútna brottvísanir í handbolta.

Sport
Fréttamynd

Allt undir hjá Washington og Milwaukee

Það verður allt í járnum í kvöld þegar Washington Wizards og Milwaukee Bucks mætast í NBA deildinni, en leikurinn verður í beinni útsendingu á NBA TV á Digital Ísland. Fjögur lið eru enn að kljást um uppröðun í síðustu fjögur sætin inn í úrslitakeppnina í Austurdeildinni og eru nánast jöfn í einum hnapp, en auk þessara liða eru Indiana og Chicago með nánast sömu stöðu og vilja t.d. öll forðast það í lengstu lög að mæta Detroit Pistons í fyrstu umferðinni.

Sport
Fréttamynd

Grosswallstadt burstaði Gummersbach

Íslendingaliðin Grosswallstadt og Gummersbach áttust við í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld og er skemmst frá því að segja að Grosswallstadt valtaði yfir andstæðinga sína 32-20. Einar Hólmgeirsson skoraði 7 mörk fyrir Grosswallstadt og Alexander Petersson skoraði 5 mörk. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 5 mörk fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson skoraði 3 mörk.

Sport