Innlendar

Fréttamynd

Jakob Jóhann bætti Íslandsmet sitt

Jakob Jóhann Sveinsson úr sundfélaginu Ægi bætti í morgun eigið Íslandsmet í 100 metra bringusundi á heimsmeistaramótinu í Róm. Jakob synti greinina á 1:01,32 en gamla metið var 1:02,27 og var það frá 2006.

Sport
Fréttamynd

Helga Margrét þurfti að hætta keppni

Helga Margrét Þorsteinsdóttir hefur neyðst til að hætta keppni á Evrópumóti unglinga 19 ára og yngri. Helga meiddist í langstökkskeppninni í sjöþraut.

Sport
Fréttamynd

Helga Margrét efst í Serbíu

Helga Margrét Þorsteinsdóttir hefur 115 stiga forystu í sjöþraut eftir fyrri keppnisdag á Evrópumóti unglinga 19 ára og yngri sem fram fer í Serbíu. Hún hefur hlotið 3.551 stig eftir fjórar greinar.

Sport
Fréttamynd

Þetta verður golfsýning

Við stefnum á að halda flottasta Íslandsmót sem haldið hefur verið. Það er því mikil spenna í loftinu,“ segir Margeir Vilhjálmsson, mótsstjóri Íslandsmótsins í höggleik sem hefst í dag. Mótið fer fram á Grafarholtsvelli og fyrstu kylfingarnir verða ræstir út kl. 8 í dag en leiknar verða 72 holur á fjórum dögum og Íslandsmeistarar í karla- og kvennaflokki svo krýndir á sunnudag.

Golf
Fréttamynd

Örvar og Eygló unnu Berserkinn 2009

Í kvöld fór fram keppnin „Berserkur“ þar sem högglengstu kylfingar landsins í karla -og kvennaflokki öttu kappi. Í karlaflokki fór Örvar Samúelsson úr GA með sigur af hólmi en Eygló Myrra Óskarsdóttir úr GO vann í kvennaflokki.

Golf
Fréttamynd

Nýtt Íslandsmet í Viðeyjarsundi

Heimir Örn Sveinsson þreytti í gær Viðeyjarsund en sundleiðin er frá Viðeyjarbryggju inn í Reykjavíkurhöfn að flotbryggjunni við gamla slippinn. Þetta er leiðin sem Eyjólfur sundkappi og fleiri sundkappar syntu hér forðum og telst vera formlegt Viðeyjarsund.

Sport
Fréttamynd

Met hjá Þorbergi í Laugavegshlaupinu

Þorbergur Ingi Jónsson, 26 ára ÍR-ingur, setti nýtt met í Laugavegshlaupinu sem fór fram í gær á milli Landmannalauga og Þórsmerkur. Þorbergur kom í mark á tímanum 4 klukkustundir og 20 mínútur en gamla metið átti Bandaríkjamaðurinn Charles Hubbard og var það 4 klukkustundir og 39 mínútur.

Sport
Fréttamynd

Ólafur Sveinn ráðinn framkvæmdastjóri FRÍ

Ólafur Sveinn Jóhannesson. þrítugur Tálknfirðingur hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Frjálsíþróttasamband Íslands og tekur hann við stöðu Egils Eiðssonar. Ólafur Sveinn er þrítugur og menntaður rafvirki frá Iðnskólanum í Reykjavík.

Sport
Fréttamynd

FH-ingar kjöldregnir í seinni hálfleik

Íslandsmeistarar FH töpuðu illa fyrir FK Aktobe frá Kasakstan í kvöld 0-4 á Kaplakrikavelli eftir að staðan í hálfleik var markalaus. Þetta var fyrri leikur liðanna í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu en staða Íslandsmeistarana er nánast vonlaus fyrir seinni leikinn.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

ÍR hlaut flest stig á Meistaramótinu

ÍR hlaut flest stig allra liða i stigakeppni Meistaramóts Íslands sem fram fór á Kópavogsvelli um helgina. ÍR skaust framhjá FH með góðum árangri í síðustu greinum.

Sport
Fréttamynd

Ásdís nokkuð frá sínu besta

Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir varð í sjötta sæti á alþjóðlegu móti sem fram fór í Prag. Ásdís kastaði 57,30 metra.

Sport
Fréttamynd

Guðmundur í undanúrslitin

Borðtenniskappinn Guðmundur Stephensen er kominn í undanúrslit á Smáþjóðaleikunum í Kýpur. Þar mætir hann heimamanni eftir að hafa lagt Peter Frommelt frá Liechtenstein í 8-liða úrslitunum.

Sport
Fréttamynd

Góður dagur hjá íslenska sundfólkinu

Íslenska sundfólkið stóð sig með glæsibrag á Smáþjóðaleikunum í dag og var afraksturinn fjögur gullverðlaun, sex silfurverðlaun og tvö bronsverðlaun. Þá voru þrjú leikjamet og eitt Íslandsmet sett og þar að auki mikið um persónuleg met hjá sundfólkinu okkar.

Sport
Fréttamynd

ÍR ætlar að eignast þrjá Ólympíufara á 100 ára afmælinu

Frjálsíþróttadeild Íþróttafélags Reykjavíkur hefur sett af stað metnaðarfullt afreksprógram þar sem markmiðið er að þrír frjálsíþróttamenn úr röðum ÍR skipi Ólympíulið Íslands í London árið 2012 en það ár eru 100 ár liðin síðan ÍR átti fyrst keppanda á Ólympíuleikum í frjálsíþróttum.

Sport
Fréttamynd

Ásdís bætti Íslandsmetið

Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni bætti eigið Íslandsmet á JJ-móti Ármanns sem fram fór á Laugardalsvelli í dag.

Sport
Fréttamynd

Badminton-landsliðið vann Portúgal á HM í Kína

Íslenska badminton-landsliðið byrjaði vel á heimsmeistaramóti landsliða í Kína og vann 3-2 sigur á Portúgal. Magnús Ingi Helgason (einliðaleik), Magnús Ingi Helgason og Helgi Jóhannesson (tvíliðaleik) og Helgi Jóhannesson og Tinna Helgadóttir (tvenndarleik) unnu leikina fyrir Ísland.

Sport