Lög og regla

Fréttamynd

Björguðust úr eldsvoða

Sex björguðust þegar eldur kom upp í veiðihúsi við Geirlandsá á fjórða tímanum í fyrrinótt. Var mildi að lögreglumenn voru í grenndinni og voru fljótir á vettvang en fólkið vaknaði við reykskynjara og flýttu sér út klæðalítil.

Innlent
Fréttamynd

Allir lausir úr varðhaldi

Mennirnir sex sem lögreglan í Keflavík handtók aðfarararnótt laugardagsins vegna líkamsárásar fyrir utan skemmtistaðinn Traffic hafa allir verið látnir lausir en formlegri rannsókn er þó ekki lokið.

Innlent
Fréttamynd

Vélhjólamaður lést í árekstri

Vélhjólamaður lést eftir árekstur við fólksbíl nálægt Reykhólum fyrir ofan Miðhúsabrekku skömmu eftir miðnætti í nótt. Þyrla landhelgisgæslunnar, TF-LIF, var kölluð út vegna slyssins. Þegar læknir frá Búðardal kom á staðinn var maðurinn látinn. Þyrlunni var snúið við þegar ljóst var að maðurinn var þegar látinn.

Innlent
Fréttamynd

Illa búnir undir stormviðri

Íbúar á suðvesturhorninu voru illa búnir undir stormviðri, sem brast á í morgun. Lögreglan og björgunarsveitir eltust við fljúgandi þakplötur, tjaldvagna, sólstóla og aðra muni sem fólki hafði láðst að festa niður.

Innlent
Fréttamynd

Mál mótmælenda skoðuð eftir helgi

Útlendingastofnun fjallar að líkindum ekki um málefni þeirra útlendinga sem með mótmælaaðgerðum stöðvuðu framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun fyrr en eftir helgi. Að sögn Hildar Dungal, forstjóra Útlendingastofnunar, hafði greinargerð ekki borist frá lögreglu í lok dags í gær en telja má að lögregluyfirvöld munu fara fram á að fólkinu verði vísað úr landi. Sýslumaðurinn á Eskifirði hefur málið til rannsóknar en ekki náðist í Inger L. Jónsdóttur sýslumann fyrir fréttir.

Innlent
Fréttamynd

Grunaður um ölvun

Karlmaður um tvítugt velti bíl sínum í Aðaldalshrauni á Norðausturvegi skammt sunnan Húsavíkur um klukkan sex í gærmorgun.

Innlent
Fréttamynd

Drykkjulæti á fiskihátíð

Til stimpinga kom á Dalvík snemma í gærmorgun milli nokkurra manna og enduðu þær með því að einn nefbrotnaði og var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Málsatvik eru talin ljós og að sögn lögreglu verður kært fyrir líkamsárás. Tveir gistu fangageymslur lögreglunnar vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Þriggja bíla árekstur við Sæbraut

Þriggja bíla árekstur varð við Sæbrautina í Reykjavík um fimmleytið í nótt. Þrír voru fluttir til skoðunar á slysadeild Landspítala en eru þó ekki taldir alvarlega slasaðir. Þá voru sjö ökumenn stöðvaðir grunaðir um ölvun við akstur víðs vegar um borgina í nótt en lögreglan segir að öðru leyti hafi verið rólegt í miðbænum.

Innlent
Fréttamynd

Skorinn með glerflösku

Bandarískur hermaður hlaut skurði í hópslagsmálum utan við skemmtistaðinn Traffic við Hafnargötu í Reykjanesbæ á þriðja tímanum í fyrrinótt.

Innlent
Fréttamynd

Varnarliðsmaður stunginn í nótt

Varnarliðsmaður var stunginn með hníf fyrir utan skemmtistaðinn Traffic í Keflavík í nótt. Maðurinn er ekki talinn vera í lífshættu en líðan hans er stöðug. Fimm manns liggja undir grun og hafa allir verið handtekir. Lögreglan í Keflavík biður þá sem kunna að hafa upplýsingar um málið að gefa sig fram.

Innlent
Fréttamynd

Ölvun í aðdraganda Fiskidagsins

Talsverð ölvun var á Dalvík í nótt og þurfti lögreglan á Akureyri að hafa sig alla við að stöðva slagsmál og önnur leiðindi eins og hún orðaði það sjálf. Þrír gistu fangageymslur á Dalvík eftir nóttina en Fiskidagurinn mikli, sem er í dag, byrjaði í raun í gærkvöld.

Innlent
Fréttamynd

Velti bíl fyrir utan Húsavík

Fólksbíll valt rétt fyrir utan Húsavík um sexleytið í morgun. Ökumaður var einn í bílnum og slasaðist hann lítið að sögn lögreglu. Maðurinn, sem grunaður er um ölvun, var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri þar sem nú er hlúð að honum. Ef áfengismagn reynist fyrir ofan það sem leyfilegt er verður maðurinn ákærður fyrir ölvunarakstur.

Innlent
Fréttamynd

Tugmilljóna útgjöld vegna mótmæla

Kostnaður vegna mótmæla við Kárahnjúka og á Reyðarfirði hleypur á tugum milljóna króna. Hluti kostnaðarins fellur á íslenska ríkið og gæti Ríkislögreglustjóri mögulega þurft aukafjárveitningu vegna þessa.

Innlent
Fréttamynd

Tiltekin manneskja grunuð um hótun

Ákveðin manneskja liggur undir grun um sprengjuhótunina í Leifsstöð í nótt og er hennar nú leitað. Fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjóra barst tilkynningin í nótt og var allt viðeigandi lið kallað út til sprengjuleitar um klukkan hálffjögur.

Innlent
Fréttamynd

Rannsaka tilkynningu um sprengju

Ítarleg rannsókn er nú hafin á því að fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjóra barst í nótt tilkynning um sprengju í Leifsstöð og var allt viðeigandi lið kallað út til sprengjuleitar um klukkan hálffjögur. Þetta var svonefnd óljós tilkynning þannig að ekki var gripið til rýmingar heldur leitað skipulega á vissum svæðum og reynt að vekja ekki ótta fyrstu gesta morgunsins.

Innlent
Fréttamynd

Mótmælendum sleppt á miðnætti

Yfirheyrslur lögreglunnar á Eskifirði yfir þrettán mótmælendum, sem handteknir voru á byggingasvæði nýs álvers við Reyðarfjörð í gær, stóðu til miðnættis, og var fólkinu sleppt að þeim loknum. Vinna á svæðinu stöðvaðist í nokkrar klukkustundir eftir að mótmælin hófust í gærmorgun. Í tilkynningu frá aðstandendum mótmælanna segir að aðgerðin sé ein af mörgum sem ráðist verði í gegn Alcoa og öðrum fyrirtækjum á sama sviði á Íslandi og víðar um heim.

Innlent
Fréttamynd

Rekstarleyfi útrunnið

Lögreglan á Húsavík stöðvaði ökumann hópbíls við Mývatn í vikunni þar sem í ljós kom við athugun að rekstrarleyfi eigenda bílsins var útrunnið.

Innlent
Fréttamynd

Kannar grundvöll fyrir brottvísun

Sýslumaður á Eskifirði ætlar að kanna hvort Útlendingastofnun telur grundvöll til þess að vísa mótmælendunum, sem stöðvuðu vinnu við álversframkvæmdir í Reyðarfirði í gær, úr landi.

Innlent
Fréttamynd

Tekin ítrekað fyrir ölvunarakstur

Lögreglan í Kópavogi stöðvaði drukkna konu á fimmtugsaldri þar sem hún ók bíl sínum. Væri það vart í frásögu færandi ef hún hefði ekki líka verið stöðvuð ölvuð á bílnum í fyrrakvöld. Þegar hún var stöðvuð þá kom í ljós að hún var löngu orðin réttindalaus vegna ítrekaðs ölvunaraksturs fyrr á árinu.

Innlent
Fréttamynd

Hörð viðurlög við sprengjuhótunum

Allt að lífstíðarfangelsi liggur við sprengjuhótunum hér á landi. Enginn hefur verið handtekinn vegna sprengjuhótunarinnar á Leifsstöð í morgun en lögreglu grunar þó hver var að verki.

Innlent
Fréttamynd

Tveir slasaðir sjómenn sóttir

Tveir sjómenn slösuðust við störf sín í gær og hafa því þrír sjómenn slasast alvarlega í vikunni. Björgunarsveitarmenn frá Vík í Mýrdal sóttu annan sjómanninn á hjólabáti út í fiskibát undan ströndinni og þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hinn um borð í togarann Akureyrina vestur á Halamið í gærkvöld.

Innlent
Fréttamynd

Mótmælendur látnir lausir

Þrettán mótmælendur, sem handteknir voru á byggingarsvæði álvers Alcoa á Reyðarfirði í fyrradag, voru látnir lausir laust eftir miðnætti í fyrrinótt að sögn lögreglu á Eskifirði.

Innlent
Fréttamynd

Braut hryggjarlið á torfæruhjóli

Ungur maður skaddaðist á hrygg þegar hann féll af torfæruhjóli sínu þar sem hann var á æfingabraut við Selvatn skammt frá Grindavíkurvegi um níuleytið í gærkvöld. Hann var fluttur á slysadeild þar sem í ljós kom að einn hryggjarliður var brotinn en ekki hafa frekari upplýsingar fengist um málið.

Innlent
Fréttamynd

Býst við auknum hrossaútflutningi

Landbúnaðarráðherra telur að hrossaútflutningur til Þýskalands muni aukast í kjölfar úrskurðar þýskra yfirvalda um að engin hrossamafía starfi hér á landi eins og haldið var fram fyrir nokkrum árum. Íslenskir hrossaútflytjendur segja úrskurðinn mikinn sigur.

Innlent
Fréttamynd

Handtekin vegna sprengjuhótunar

Kona á miðjum aldri var í gær handtekin á Akureyri fyrir að hafa hringt inn sprengjuhótun á Keflavíkurflugvöll í gærmorgun. Málið leystist hratt og örugglega að sögn Ellisifar Tinnu Víðisdóttur staðgengils sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli, og telst nú upplýst og hefur konunni verið sleppt úr haldi.

Innlent
Fréttamynd

Háspennulína sörguð í sundur

Háspennulína í Hallsteinsdal, skammt frá Skriðdal, þar sem mótmælendur hafa haldið til í tjöldum, var í nótt sörguð í sundur. Þeir sem hafa orðið varir við mannaferðir í Hallsteinsdal eru beðnir um að láta lögregluna á Egilsstöðum vita.

Innlent
Fréttamynd

Rannsókn hætt í smyglmáli Hauks ÍS

Saksóknari í Bremerhaven hefur formlega hætt rannsókn á því hvernig töluvert magn kókaíns og hass komst um borð í Hauk ÍS fyrr á þessu ári. Tveir úr áhöfn skipsins voru handteknir í kjölfar leitar þýska tollsins um borð og játaði annar þeirrar að hafa tekið á móti tösku fyrir hönd þriðja manns í áhöfn.

Innlent
Fréttamynd

Missti mánaðargömul ökuréttindi

Ungur ökumaður með aðeins mánaðargamalt ökuskírteini var tekinn í nótt fyrir að hafa ekið á 132 kílómetra hraða í Ártúnsbrekku þar sem hámarkshraði er áttatíu. Hann var að stinga annan bíl af í spyrnu þegar hann ók í flasið á lögreglu sem svipti hann ökuréttindum í einn mánuð auk þes sem hann verður sektaður.

Innlent
Fréttamynd

Innbrotsþjófur náðist á hlaupum

Fjórtán innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar í Reykjavík um og eftir verslunarmannahelgina, það er frá föstudagsmorgni til hádegis í gær, að sögn Harðar Jóhannessonar yfirlögregluþjóns í Reykjavík.

Innlent