Lög og regla
49 50 51 52 53 54 55 56 57 … 120 ›
Tvær nauðganir í rannsókn Grunur liggur á að tveimur konum hafi verið nauðgað um helgina, önnur var á Færeyskum dögum í Ólafsvík, en hin á humarhátíðinni í Höfn í Hornafirði. Innlent 13.10.2005 19:27
Mannslát og grunur um nauðganir Grunur leikur á að unglingsstúlku hafi verið nauðgað í Ólafsvík í nótt eftir að hafa verið byrlað ólyfjan. Karlmaður er í haldi lögreglunnar á Höfn í Hornafirði grunaður um aðra nauðgun. Karlmaður á sextugsaldri fannst látinn í Ketillaugarfjalli við Höfn í dag. Ekki er vitað hvað varð honum að aldurtila. Innlent 13.10.2005 19:27
Nauðgun kærð á Humarhátíðinni Nauðgun hefur kærð á Humarhátíðinni sem fram fer á Höfn í Hornafirði um helgina. Að sögn Jóhanns K. Jóhannssonar hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu, sem sér um gæslu á hátíðinni, er málið upplýst. Innlent 13.10.2005 19:27
40-50 teknir fyrir hraðakstur Á milli fjörutíu og fimmtíu ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur af lögreglunni á Akureyri í gær og í nótt. Sá sem mældist á mestum hraða var á rúmlega hundrað og fjörutíu kílómetra hraða á þjóðvegi þar sem hámarkshraðinn er níutíu. Þá stöðvaði lögreglan í Ólafsvík tíu manns fyrir hraðakstur í gær og tvo fyrir ölvunarakstur. Innlent 13.10.2005 19:27
Stefnir Jónatani og Jóni Ásgeiri Jón Gerald Sullenberger ætlar að stefna Jónatani Þórmundssyni lagaprófessori fyrir meiðyrði í lögfræðiáliti sem hann samdi fyrir Baug. Jón Gerald ætlar líka að stefna Jóni Ásgeiri Jóhannessyni forstjóra fyrir brot á samkomulagi um að tjá sig ekki opinberlega. Innlent 13.10.2005 19:27
Jón Gerald í meiðyrðamál Ákæra í 40 liðum á hendur sex manns tengdum Baugi var gefin út á föstudag. Jónatan Þórmundsson lagaprófessor gagnrýnir Ríkislögreglustjóra vegna rannsóknar málsins í álitsgerð hann samdi. Þar fer hann einnig hörðum orðum um Jón Gerald Sullenberger sem ætlar að stefna lagaprófessornum. Innlent 13.10.2005 19:27
Lögregla eykur eftirlit um helgina Búist er við mikilli umferð um allt land um helgina og að umferð á vegum fari að aukast verulega upp úr hádegi í dag. Lögregla ætlar að auka eftirlit til muna og verða hreyfanlegri en áður, þ.e. að fylgja fólksstraumnum. Innlent 13.10.2005 19:27
Baugur í skaðabótamál við ríkið Sex manns voru í dag ákærðir í Baugsmálinu svokallaða. Ákærurnar eru í fjörutíu liðum og fjalla meðal annars um auðgunarbrot og brot á lögum um hlutafélög og bókhald. Baugur ætlar í skaðabótamál við ríkið vegna skaða sem fyrirtækið segist hafa orðið fyrir vegna málsins. Innlent 13.10.2005 19:27
Fósturafi dæmdur Maður var dæmdur í tólf mánaða fangelsi og einnig til þess að greiða fjögurhundruð þúsund krónur í skaðabætur fyrir að hafa brotið kynferðislega á dóttur fósturdóttur sinnar. Maðurinn játaði að hafa í þrjú til fimm skipti nuddað kynfæri stúlkunar sem þá var níu ára og látið hana fróa sér. Innlent 13.10.2005 19:27
Mælir með skaðabótamáli Jónatan Þórmundsson lagaprófessor kemst að þeirri niðurstöðu að Baugur Group ætti að höfða skaðabótamál gegn ríkinu vegna þess skaða sem nærri þriggja ára lögreglurannsókn hefur bakað félaginu. Innlent 13.10.2005 19:27
Sex ákærðir í Baugsmálinu Sex hafa verið ákærðir í Baugsmálinu: Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, Kristín Jóhannesdóttir, Jóhannes Jónsson, Tryggvi Jónsson, fyrrverandi forstjóri Baugs, og tveir endurskoðendur. Í tilkynningu frá Baugi segir að fyrirtækið mun krefja íslenska ríkið um skaðabætur vegna þess tjóns sem Baugur "hefur orðið fyrir af völdum lögreglunnar". Innlent 13.10.2005 19:27
Kannabisræktun í haughúsi Þrír karlmenn og ein kona á fimmtugsaldri voru í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmd í skilorðsbundið fangelsi fyrir að eiga og rækta kannabisplöntur í haughúsi undir fjósi á sveitabæ í Ölfusi. Innlent 13.10.2005 19:27
Fimm slasaðir eftir bílslys Fimm slösuðust, þar af einn alvarlega, þegar fólksbíll og jeppabifreið rákust saman í brekkunni við Hveradali um fimmleytið í dag. Beita þurfti klippum til að ná einum hinna slösuðu út en allir voru fluttir á Landspítalann í Fossvogi. Að svo stöddu hafa ekki fengist upplýsingar um líðan fólksins. Innlent 13.10.2005 19:27
Árs fangelsi fyrir kynferðisbrot Maður var dæmdur í 12 mánaða fangelsisvist fyrir kynferðisbrot gagnvart ungu stúlkubarni í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Barnið leit á manninn sem afa sinn og sjálfur bar hann fyrir dómi að hafa litið á stúlkuna sem barnabarn sitt. Innlent 13.10.2005 19:27
Gill unir skyrslettudómi Paul Gill, einn þremenningana sem slettu skyri á álráðstefnu á Hótel Nordica, var í dag dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Bótakröfu flugleiðahótela var vísað frá dómi. Gill ætlar ekki að áfrýja dómnum. Innlent 13.10.2005 19:27
Efast um hæfi saksóknara Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, gagnrýnir harðlega rannsókn efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á honum og fleirum í tengslum við meint brot gegn fyrirtækinu. Hann segir líta út sem lögregla hafi reynt að réttlæta illa ígrundað upphaf málsins með því að leita að sakarefnum. Innlent 13.10.2005 19:27
Sex ákærðir í Baugsmálinu Ákæra Ríkislögreglustjóra í Baugsmálinu er í 40 liðum og snertir auðgunarkafla almennra hegningarlaga, lög um bókhald, ársreikninga, hlutafélög og tollalög. Stjórn Baugs segist standa með ákærðu og undirbýr skaðabótamál á hendur ríkinu. Rannsókn lögreglu sætir gagnrýni fyrir tíma og tengsl rannsakanda og ákæranda. Innlent 13.10.2005 19:27
Ákærður í Ásláksmáli Ríkissaksóknari hefur ákært mann á þrítugsaldri fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 12. desember 2004 á veitingahúsinu Ásláki í Mosfellsbæ, slegið annan mann hnefahöggi efst í háls vinstra megin með þeim afleiðingum að brot kom í hálshryggjarlið og slagæð við hálshrygg rofnaði. Innlent 13.10.2005 19:27
Tveggja mánaða gæsluvarðhald Litháarnir sem teknir voru með rúmlega fjögur kíló af hvítu dufti við komu ferjunnar Norrænu í gærmorgun hafa verið úrskurðaðir í tveggja mánaða gæsluvarðhald. Tollverðir á Seyðisfirði fundu efnið en grunur leikur á að það sé amfetamín. Efninu hafði verið komið haganlega fyrir í leynihólfi fólksbifreiðar mannanna. Innlent 13.10.2005 19:27
Ákæra birt Ríkissaksóknari birti í gær karlmanni á þrítugsaldri ákæru fyrir stórfellda líkamsárás aðfaranótt 12. desember síðastliðinn. Karlmaður á sextugsaldri beið bana í árásinni sem átti sér stað á veitingahúsinu Ásláki í Mosfellsbæ. Innlent 13.10.2005 19:27
Beinbrotinn eftir bílveltu Farþegi beinbrotnaði þegar ökumaður um tvítugt missti stjórn á fólksbifreið norðan Akrafjalls á Vesturlandsvegi við Borgarnes. Bifreiðin valt. Lögreglan grunar ökumanninn og farþegann um að hafa verið undir áhrifum áfengis. Innlent 13.10.2005 19:27
Gill fékk 2 mánuði skilorðsbundið Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm um hádegisbil í máli ákæruvaldsins gegn Paul Gill sem, ásamt tveimur Íslendingum, var ákærður fyrir að sletta grænu skyri á ráðstefnugesti á Nordica-hóteli. Gill var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi en skaðabótakröfu Flugleiðahótela upp á rúmar tvær milljónir króna var vísað frá. Innlent 13.10.2005 19:27
Missti bílinn út af og slasaðist Kona slasaðist, en þó ekki alvarlega, þegar hún missti hægra hjól bíls síns út af bundnu slitlagi á Vesturlandsvegi í grennd við Langá á Mýrum í gærkvöld. Konan reyndi að snöggbeygja inn á veginn aftur en við það missti hún stjórn á bílnum sem reif sig upp á veginn og fór öfugu megin út af. Innlent 13.10.2005 19:27
Ker vill niðurfellingu sekta Þingfest var í Héraðsdómi Reyjavíkur í gær kæra eignarhaldsfélagsins Kers, sem á Olíufélagið Essó, á hendur ríkinu og samkeppnisyfirvöldum til að fá ógiltan fyrri úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá því í janúar um samráð olíufélaganna. Innlent 13.10.2005 19:26
Braut glas framan í öðrum Aðalmeðferð í máli 23 ára Keflvíkings sem ákærður er fyrir fjölda afbrota fór fram í Héraðsdómi Reykjaness fyrir helgi. Maðurinn stal farsímum, veskjum, misnotaði greiðslukort sem hann stal, braust inn í bíla, veitingastað og söluturn, var gripinn með eiturlyf og braut glas framan í öðrum manni. Innlent 13.10.2005 19:26
Gæsluvarðhald vegna fíkniefna Rúmlega fertugur maður í Reykjavík hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald, eftir að talsvert magn af fíkniefnum fannst heima hjá honum við húsleit. Innlent 13.10.2005 19:26
Bretinn mætti einn fyrir dóm Paul Geoffrey Gill, 33 ára gamall Breti, mætti einn til þingfestingar máls á hendur honum og tveimur Íslendingum, Ólafi Páli Sigurðssyni og Örnu Ösp Magnúsardóttur, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Íslendingarnir eru sagðir vera í mótmælatjaldi við Kárahnjúka. Innlent 13.10.2005 19:26
Neytendasamtökin höfða mál Neytendasamtökin hafa ákveðið að höfð mál á hendur olíufélaginu Esso, fyrir hönd eins félagsmanns samtakanna. Er krafist bóta vegna samráðs olíufélaganna. Kröfurnar sem settar eru fram eru á bilinu 300 til 400 þúsund krónur. Innlent 13.10.2005 19:26
Vilja milljónirnar endurgreiddar Mál Kers hf. á hendur íslenska ríkinu og samkeppnisyfirvöldum verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Fyrirtækið krefst þess að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá því í janúar verði felldur úr gildi, en til vara að sektargreiðslur fyrirtækisins verði stórlega lækkaðar. Innlent 13.10.2005 19:26
Beltin bjarga Fjórir til fimm deyja í bílslysum á hverju ári vegna þess að þeir notuðu ekki bílbelti. Hert viðurlög og meiri forvarnir gætu orðið til þess að fækka banaslysum um fimmtung að mati rannsóknarnefndar umferðarslysa. Einungis eitt banaslys varð á austurlandi á síðasta ári en Suður og suðvestur hornið er slysamesta svæðið. Innlent 13.10.2005 19:26