Innlent

Fréttamynd

Búist við ofsaveðri í nótt og á morgun

Afar slæmar veðurhorfur eru fyrir komandi nótt og framan af degi á morgun. Um er að ræða mjög djúpa og krappa lægð sem verður um 960 mbör (hPa) þegar hún gengur yfir Vestfirði í nótt.

Innlent
Fréttamynd

Hjúkrunarfræðingaskortur á næstu árum

Um 40% allra starfandi hjúkrunarfræðinga láta af störfum vegna aldurs á næstu 10-15 árum og ef takast á að manna stéttina þarf að fjölga nýnemum í hjúkrunarfræði. Þetta kemur fram í ályktun Hjúkrunarþings sem lauk í gær.

Innlent
Fréttamynd

Þekkti ekki verðmætamatið

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri segist ekki hafa þekkt verðmætamat frá ParX, viðskiptaráðgjöf IBM, sem mat verðmæti Landsvirkjunar á 91,2 milljarða í árslok 2005, þegar hann seldi hlut Reykjavíkurborgar í fyrirtækinu.

Innlent
Fréttamynd

Úrslit væntanleg úr fjórum prófkjörum um helgina

Prófkjör Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi og Suðurkjördæmi eru haldin í dag og úrslit í póstkosningu í Norðausturkjördæmi verða tilkynnt. Auka kjördæmisþing framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi verður einnig haldið í dag.

Innlent
Fréttamynd

Greiðsla óheppileg fyrir lífeyrissjóðinn

Alfreð Þorsteinsson segir óheppilegt að hluti greiðslu ríkisins vegna kaupa á hlut Reykjavíkurborgar sé ekki greiddur með bréfum sem hægt er að selja á markaði. Ákvörðunin var tekin að vel athuguðu máli, segir borgarstjóri.

Innlent
Fréttamynd

Ísland á að leiða umræðurnar

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra er sammála þeim grundvallarsjónarmiðum sem breski hagfræðingurinn Nicholas Stern setur fram í skýrslu sinni um aðgerðir gegn loftlagsbreytingum og tekur undir mörg af sjónarmiðum hans.

Innlent
Fréttamynd

Bankar mega fara úr landi

Ögmundur Jónasson, alþingismaður og formaður BSRB, segir það til vinnandi að senda viðskiptabankana úr landi til að geta aukið jöfnuð í samfélaginu.

Innlent
Fréttamynd

Miklar líkur á rauðum jólum

Það verða rauð jól um mestallt land samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins. Ekki er þó loku fyrir það skotið að lítilsháttar föl verði norðanlands en annars verður hátíðarveðrið milt í þeim landsfjórðungi sem öðrum.

Innlent
Fréttamynd

Dýrast að læra á Vesturlandi

Íslenskunámskeið fyrir útlendinga eru misdýr eftir landshlutum. Íslenskan er langódýrust fyrir þá sem búa í Kópavogi en dýrust á Vesturlandi.

Innlent
Fréttamynd

Segir upp 20 starfsmönnum

Byggingafyrirtækið Sveinbjörn Sigurðsson hefur sagt upp öllum nema tveimur starfsmönnum á Akranesi, eða tuttugu iðnaðarmönnum og verkamönnum.

Innlent
Fréttamynd

Áltæknigarður að rísa við Þorlákshöfn

Actus ehf. hefur fengið vilyrði fyrir lóð undir áltæknigarð í Þorlákshöfn. Bæjarstjóri segir fyrst og fremst um fullvinnslu á áli að ræða. Það yrði í fyrsta sinn sem slík vinnsla færi fram á Íslandi. Talið er að framkvæmdir geti hafist 2009.

Innlent
Fréttamynd

Sjóræningjaveiðar gerðar ómögulegar

Sjávarútvegsráðherra segir möguleika til sjóræningjaveiða sífellt að þrengjast og verði jafnframt dýrkeyptari þeim sem þær stunda. Hann boðar hertari lög á yfirstandandi þingi gagnvart sjóræningjaskipum og aðilum sem þeim tengjast.

Innlent
Fréttamynd

Ekki samstiga í efnahagsstefnu

Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, segir að það komi sér ekki á óvart að Seðlabankinn treysti sér ekki til að slaka á aðhaldi í efnahagsmálum, fullsnemmt sé hjá forsætisráðherra að lýsa því yfir að hættuástandið sé liðið hjá.

Innlent
Fréttamynd

Hneisa fyrir allar þjóðirnar

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra spyr sig hvernig geti staðið á því að mótmælaskjal frá 25 þjóðlöndum auk framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, geti verið byggt á jafn miklum rangfærslum og í ljós kom í vikunni.

Innlent
Fréttamynd

Yfirlæknir fái aftur fyrra starf

Stjórn Læknafélags Reykjavíkur hefur sent frá sér ályktun með eindregnum tilmælum til yfirstjórnenda Landspítalans um að Stefán E. Matthíasson yfirlæknir verði settur aftur í fyrra starf.

Innlent
Fréttamynd

Takmörkun er brot gegn tjáningarfrelsinu

Ákvörðun stjórnvalda að veita einungis einum aðila aðgang að öllum gögnum um símhleranir á dögum kalda stríðsins, stangast á við tjáningarfrelsisákvæði mannréttindasáttmála Evrópu að sögn Ragnars Aðalsteinssonar lögmanns. Hann gerði þetta að umtali á ráðstefnu Háskólans í Reykjavík um tjáningarfrelsi sem stendur nú yfir.

Innlent
Fréttamynd

Valgerður til Úkraínu

Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra heldur á morgun í fjögurra daga opinbera heimsókn til Úkraínu í boði Borys Tarasjúk, utanríkisráðherra Úkraínu.

Innlent
Fréttamynd

Yfirheyrður vegna stúlku

Einn maður hefur verið yfirheyrður hjá lögreglunni í Reykjavík vegna atburðar sem varð þegar ókunnugur maður tók átta ára stúlku upp í bíl sinn á sunnudag. Lögreglan sleppti manninum eftir yfirheyrslu, þar sem grunur hennar átti ekki við rök að styðjast.

Innlent
Fréttamynd

Endurskoðun að renna út á tíma

Stjórnarskrárnefnd, sem skipuð var í ársbyrjun 2005 og falið var að semja frumvarp að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins fyrir árslok 2006, hélt sinn 20. fund í gær. Jón Kristjánsson, formaður nefndarinnar, segir aðspurður að úr því sem komið er sé það mjög ósennilegt að það markmið náist að leggja fram heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar fyrir kosningar í vor.

Innlent
Fréttamynd

Fékk tundurdufl í botnvörpuna

Frystitogarinn Kleifarberg frá Ólafsfirði fékk tundurdufl í troll sitt snemma í gærmorgun þar sem hann var staddur um 40 sjómílur norður af Straumsnesi.

Innlent
Fréttamynd

Forsetinn seldi neyðarkall

Herra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hóf síðdegis í gær fjáröflun Slysavarnafélagsins Landsbjargar með því að selja fyrsta neyðarkallinn.

Innlent