
Dýraheilbrigði

Dýravelferðarmartröð af áður óþekktri stærð
Nú er komið fram á Alþingi frumvarp sem var unnið á vakt Svandísar Svavarsdóttur og Katrínar Jakobsdóttur þegar hún sinnti störfum matvælaráðherra í um þrjá mánuði á þessu ári. Við vorum mörg sem bundum vonir við að tekið yrði fast á sjókvíeldisfyrirtækjunum í þessu frumvarpi.

Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð
Matvælastofnun hefur kært til lögreglu alvarlega vanrækslu á nautgripum á lögbýli á Norðurlandi vestra eftir að 29 dauðir nautgripir fundust í gripahúsi við eftirlit sem framkvæmt var með aðstoð lögreglu.

Opið bréf til matvælaráðherra - dýraníð í Borgarbyggð
Sæl Bjarkey. Ég ætla að brjóta þá hefð í ávarpi til nýs ráðherra að óska þér til hamingju með stólinn. - Ég mun hins vegar hvergi draga af þeim árnaðaróskum þá er þú hefur virkjað aðgerðir í því sem nú verður fjallað um, já ekki bara það heldur alvöru opinbera íslenska dýravernd skv. lögum um velferð dýra!

MAST kærir þrjú tilvik þar sem hundar komu ólöglega til landsins
Matvælastofnun hefur kært þrjú aðskilin tilvik til lögreglu, þar sem ferðamenn fluttu hunda ólöglega inn í landið í farþegarými flugvéla. Ekki komst upp um málin fyrr en ferðamennirnir hugðust innrita sig í flug frá landinu eftir nokkurra daga dvöl.

Ekki nægar ástæður til að afturkalla starfsleyfi Ísteka
Matvælastofnun telur ekki nægar málsástæður til að afturkalla starfsleyfi Ísteka og mun starfsemi fyrirtækisins halda áfram á grundvelli leyfis sem gildir til októbermánaðar 2025.

Grétu og viðurkenndu mistök á erfiðum fundi
Baltasar Kormákur bindur vonir við að hægt verði að fá íslenska reiðmenn til að taka við af spænsku þjálfarateymi, sem uppvíst varð að illri meðferð á hrossum við kvikmyndaframleiðslu Baltasars. Þjálfarateymið hafi viðurkennt mistök á erfiðum fundi, þar sem hópnum var sagt upp störfum.

Baltasar sleginn yfir hestamálinu
Baltasar Kormáki og hans teymi var verulega brugðið þegar þeim barst veður af hrottafenginni meðferð hesta sem verið var að þjálfa fyrir kvikmyndaverkefni þeirra. Hann segir þjálfarana hafa verið rekna um leið og upp komst um málið.

Hestamisþyrmingar fyrir íslenska kvikmyndaframleiðslu
Matvælastofnun hefur stöðvað tímabundið sérstaka þjálfun á hestum til þátttöku í kvikmyndaframleiðslu vegna hrottalegrar meðferðar. Alvarleg atvik sjást á myndbandi sem er í dreifingu á Facebook. Spænskir atvinnumenn með mikla reynslu af hestaþjálfun voru fengnir í verkið, en í myndbandinu sjást þeir berja hestana í hausinn og sýna mjög harkalega reiðmennsku. Búið er að reka þjálfarana og alla sem komu að málinu.

Játaði að hafa drepið þúsundir skalla- og gullarna
Bandarískur maður hefur játað að hafa skotið þúsundir verndaðra fugla á síðustu árum og selt fjaðrir þeirra og parta á svörtum markaði. Í skilaboðum til kaupanda talaði hann frjálslega um að hafa brotið lög og drepið marga fugla á skömmum tíma.

Bóndi dæmdur í fimm ára bann frá nautgripum
Bóndi hlaut í síðustu viku þriggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundna til tveggja ára, í Héraðsdómi Austurlands fyrir vanrækslu á dýrum. Þá er honum óheimilt að hafa nautgripi í sinni umsjá, versla með þá, eða sýsla með öðrum hætti næstu fimm ár frá uppkvaðningu dómsins.

Dýr eiga ekki að þjást
Dýr geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Við berum öll siðferðilega og lagalega skyldu gagnvart dýrum, bæði hvað varðar meðferð og aðbúnað, hjálparskyldu og tilkynningarskyldu. Rík lagaleg skylda hvílir á stjórnvöldum að gæta að velferð dýra.

Hvalur hf. fær 400 þúsund króna sekt
Matvælastofnun hefur sektað Hval hf. um 400 þúsund krónur eftir að fyrirtækið braut dýravelferðarlög þegar hálftími leið á milli fyrra skots og síðara skots við veiðar á hval. Dýrið drapst nokkrum mínútum eftir síðara skotið en í kjölfar atviksins voru veiðar stöðvaðar á hvalveiðibátnum sem veiddi hvalinn.

Rangfærslur framkvæmdarstjóra Ísteka
Það var áhugavert að horfa og hlusta á framkvæmdastjóra Ísteka í Kastljós þættinum þann 28. febrúar. Í marga mánuði hafði María Sigrún Hilmarsdóttir, fréttakona RÚV reynt án árangurs að ná í yfirmenn Ísteka til að tjá sig um ýmis álitamál í blóðmerabúskapnum.

MAST segir áhrif blóðtöku vera væg
Matvælastofnun barst ekki skýrsla um dauða fjögurra hryssa sem haldið hefur verið fram að rekja megi til reynsluleysis dýralækna við blóðtöku. Erfitt hafi verið fyrir stofnunina að fylgja málinu eftir vegna skorts á sönnunargögnum og vegna þess að umræddir dýralæknar heyrðu undir pólsk dýralæknayfirvöld en ekki íslensk.

Segja lirfur hafa borist á milli eldissvæða og fyrirtækin hafi verið illa undirbúin
Ljóst er að rekstraraðilar í sjókvíaeldi voru illa búnir til þess að verjast miklu magni af laxalús og leiða má líkur að því að áhrif laxalúsarinnar hafi verið vanmetin.

Dýralæknafélagið gagnrýnir ummæli Ingu og kallar eftir yfirvegun
Dýralæknafélag Íslands segist fagna aukinni umræðu um velferð dýra en vill leggja áherslu á að opinber umræða um málaflokkinn sé málefnaleg og öguð. Félagið fordæmir ummæli Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, um yfirdýralækni.

Grófu dauðar merarnar í snarhasti og leyni eftir skipun Ísteka
Hrossabóndi í Landeyjum segir Ísteka hafa beðið hana um að þagga niður þegar fjórar merar hennar drápust í tengslum við blóðtöku á bænum hennar. Hún þurfti að berjast fyrir að krufningsskýrsla yrði gerð og hefur ekki fengið bætur frá fyrirtækinu.

Óttast um mörgæsir vegna banvænnar fuglaflensu
Banvænt afbrigði fuglaflensu hefur greinst á Suðurskautinu í fyrsta sinn. Vísindamenn óttast um mörgæsir og önnur dýr sem finnast hvergi annars staðar á jörðinni.

Máttu fjarlægja illa lyktandi hunda með saurugan feld af heimilinu
Matvælastofnun var heimilt að fjarlægja tvo hunda af heimili eiganda síns í júlí á síðasta ári og ráðstafa þeim annað. Þetta er niðurstaða úrskurðar Matvælaráðuneytisins, en eigandinn lagði fram stjórnsýslukæru vegna sviptingarinnar.

Ísteka stefnir íslenska ríkinu
Ísteka hefur höfðað mál gegn íslenska ríkinu vegna ákvörðunar matvælaráðherra um að fella alla starfsemi félagsins tengda blóðnytjum úr fylfullum hryssum undir reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni.

Ráðgátan um hundadauðann verður ekki leyst
Rannsókn á dularfullum dauða tíu hunda á Austurlandi var hætt eftir að engar vísbendingar komu fram um hvað varð hundunum að aldurtila.

Rebbi lifði hrottalegt banatilræðið af
Óhug sló á marga á Instagram þegar snjóruðningsmaður vestur á fjörðum sýndi þegar hann ók yfir ref nokkurn á brú. Refurinn komst ekki undan. Viðkomandi hefur verið tekinn á teppið af Vegagerðinni.

Óttast að um sé að ræða fuglaflensu í fyrsta sinn
Í hið minnsta ein mörgæs á Suðurskautslandi er talin hafa drepist úr fuglaflensu. Fáist það staðfest er um að ræða í fyrsta sinn sem mörgæs í heimsálfunni drepst úr veirunni. Um var að ræða kóngamörgæs.

Hærri líkur á slysum hjá ógeldum fressum
Geldingar-og ófrjósemisaðgerðir katta hafa ýmsa heilsufarslega kosti, aðra en að sporna gegn offjölgun. Dýraspítalinn í Víðidal framlengdi tilboðsdaga á slíkum aðgerðum vegna gífurlegrar eftirspurnar.

Hestar eru með 36 til 44 tennur
Tannheilsa íslenskra hesta er afar mikilvæg og því eru starfandi sérstakir hestatannlæknar hér á landi, sem hafa meira en nóg að gera.

Fundu lungnaorm í innfluttum hundi
Lungnaormur greindist í sýni úr hundi sem fluttur var til landsins frá Svíþjóð á síðasta ári. Engin snýkjudýr greindust í hundinum sem tekin voru á meðan hann var í einangrun. Ormurinn virðist ekki hafa smitast í önnur dýr á heimilinu.

Óvenju margir dauðir auðnutittlingar
Óvenju margar ábendingar hafa borist Matvælastofnun að undanförnu vegna dauðra auðnutittlinga. Ábendingarnar hafa borist af öllu landinu frá fólki sem reglulega gefur smáfuglum að éta.

Fjöldadauði sela rakinn til H5N1
Staðfest hefur verið að fjöldadauða sela og sæfíla í suður-Atlantshafi á eyjunni Suður-Gergíu má rekja til þess að þeir smituðust af H5N1.

Riðutilfelli á sjö hundruð kinda búi
Matvælastofnun hefur borist tilkynning frá tilraunastöð HÍ í meinafræði þess efnis að riða hafi greinst í sláturfé í Blöndudal í Húna og Skagahólfi.

Lét aflífa hvolpinn og fær engar skaðabætur
Hundaræktendur þurfa ekki að endurgreiða konu sem aflífaði veikan hvolp sem hún hafði keypt af þeim. Þar vó þungt að hún ákvað að láta aflífa hvolpinn áður en ítarleg skoðun gat farið fram á honum.