Skoðanir

Fréttamynd

Óháð áhættumat

Vinnu við stærstu framkvæmd Íslandssögunnar er að ljúka. Síðustu vikur hefur efasemdarröddum um virkjunina fjölgað. Deilt hefur verið um arðsemi framkvæmdarinnar og einnig um jarðfræðilegar forsendur hennar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Þú getur ekki bæði haldið og sleppt

Nei, þeir ríku mega vera ríkir mín vegna. Mér er miklu hugleiknara að vita hvað skattskráin segir um skattbyrði hins almenna launamanns og ellilífeyrisþegans. Hvað segir skattskráin um það órétti sem ríkir í skattaálögum, eftir því hvernig tekjurnar verða til?

Fastir pennar
Fréttamynd

Takmörk umburðarlyndisins

Hvernig förum við að því, sem opin lýðræðisþjóðfélög, að berjast gegn hryðjuverkaógninni, án þess að ganga á grundvallargildi okkar? Hvernig getum við samhæft réttindi einstaklingsins og almannaréttinn til öryggis?

Fastir pennar
Fréttamynd

Hryðjuverkavarnir

Öryggisdeild bresku lögreglunnar telur sig hafa komið upp um ráðabrugg nokkurra öfgamúslima í Bretlandi, sem ætluðu á næstu dögum að sprengja tíu bandarískar farþegaþotur upp yfir miðju Norður-Atlantshafi í því skyni að mótmæla afskiptum Banda­­ríkjastjórnar af átökunum í Austurlöndum nær.

Fastir pennar
Fréttamynd

Vegakerfið

Tugir þúsunda landsmanna hafa í sumar kynnst vegum í landshlutum sem þeir eiga ekki daglega leið um og flestir ef ekki allir eru sammála um að víða sé þörf á vegabótum og sumir vegir séu hreinlega óframbærilegir.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hernaður gegn jöfnuði

Ísland er nær eina Evrópulandið, sem engar tekjuskiptingartölur eru birtar um í alþjóðlegum skýrslum. Ekki þar fyrir, að einkaaðilum eins og til dæmis mér sjálfum sé um megn að gera þessa útreikninga, alls ekki. Kjarni málsins er sá, að stjórnvöldum ber skylda til að safna og dreifa upplýsingum um helztu þætti efnahagsmála, og þá einnig um tekjuskiptingu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hvalir og tilfinningar

Fyrir rúmlega fimm árum datt ónefndum íslenskum athafnamanni í hug að sækja um leyfi til stjórnvalda til að setja á fót bú þar sem hann hugðist rækta hunda til manneldis. Varla þarf að taka fram að hann ætlaði kjötið til útflutnings en ekki á heimamarkað.

Fastir pennar
Fréttamynd

Annað en við höfum

Einn sérstæðasti stjórnmálamaður sem ég hef hitt um ævina heitir Chamlong Srimuang. Þegar ég hitti manninn var hann borgarstjóri Bangkok. Undirsátar hans gengu í silkifötum og létu aka sér um á fínustu bílum, enda borgin vellauðug og óhemjustór. Chamlong gekk hins vegar um á lélegum sandölum og var í grófum bómullarstakk af því tagi sem hrísgrjónabændur klæðast á ökrunum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Misjöfn skattbyrði

Ég er sammála unga fólkinu í Sjálfstæðisflokknum þegar kemur að skattskránni sem liggur frammi fyrir gesti og gangandi að glugga í. Mér finnst verst að hafa ekkert heyrt af því hvernig þeim gekk að standa vaktina við að einoka sætin og skrárnar. Það er nefnilega ekkert því til fyrirstöðu að birta upplýsingar um hvernig skattbyrðin dreifist þó fólk sé ekki með nefið ofan í því hver borgar hve mikið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Meistarapróf til kennslu

Endurvaktar hugmyndir um lengingu kennaranáms eru mikið fagnaðarefni. Lenging námsins úr þremur árum í fjögur eða jafnvel fimm, eins og nú er rætt um, er löngu tímabær. Kennaranám á Íslandi mun nú vera stysta kennaranám á Vesturlöndum. Þessu verður að breyta enda fáum mikilvægara en smáþjóðum að byggja upp menntakerfi sem skarar fram úr.

Fastir pennar
Fréttamynd

Nýjar lausnir

Vel má vera að hugmyndir Viðskiptaráðsins um flatan undanþágu­snauðan fimmtán prósenta skatt gangi ef til vill ekki upp í einu og öllu. En tillögur af þessu tagi eru eigi að síður þess virði að þær séu virtar betur. Umræðan um efni skattskrárinnar gæti þannig orðið hvort tveggja í senn jákvæð og uppbyggileg ef hún mætti verða til að beina sjónum manna að nýjum lausnum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hryðjuverkin halda áfram

Það er engum vafa undirorpið að heimsmyndin breyttist töluvert við atburðina í New York og Washington í september 2001. Heimsbyggðin hrökk svo sannarlega við, á því er enginn vafi, en hins vegar verður það vafasamara eftir því sem tíminn líður hvort viðbrögðin við þessum voðaviðburðum síðla sumars fyrir tæpum fimm árum hafi verið rétt.

Fastir pennar
Fréttamynd

Lágir skattar - aukin velferð

Albert Einstein lét hafa það eftir sér að í veröldinni allri væri ekkert jafn torskilið eins og tekjuskattur. Hafði honum þó tekist að skilja ýmislegt býsna flókið um dagana. Umræða um skatta hefur þann leiða galla að það er ekki hægt að standa í henni án þess að nota tölur en það er gömul saga og ný að talnasúpur valda þeim sem neytir meltingartruflunum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Tveir snöggir blettir

Íslendingar hafa jafnan látið sig nokkru varða hvað útlendingar segja um land og þjóð. Sennilega er tilfinningin sú að við séum einhvers virði svo lengi sem aðrir hafa fyrir því að hafa álit á landinu eða því sem hér er gert.

Fastir pennar
Fréttamynd

Er framtíðinni lokið?

Framtíðin rennur aldrei upp því þegar að því kemur þá er hún orðin samtíð. Að því leyti er framtíðin ekki áþreifanlegt fyrirbæri. Hennar tími er aldrei kominn. Samt er framtíðin líka ávallt til staðar, í þeim væntingum sem fólk gerir sér til síðari tíma, að þeir muni skera sig úr, að áföngum verði náð og að lífið verði kannski eilítið betra en í samtímanum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ekkert áhyggjuefni

Ég get sofið á næturnar, þótt öðrum gangi vel. Há laun forstjóra ættu ekki að vera áhyggjuefni, heldur hvort aðrir hafi enn næg tækifæri til að komast í álnir og hvort lítilmagninn njóti góðs af framförunum. Hér er ekkert atvinnuleysi æskufólks eins og úti í Evrópu og betur séð um þá, sem minna mega sín, en víðast annars staðar. Aðalatriðið er ekki, hversu breitt bil er milli auðmanna og alþýðufólks, heldur hversu góð kjör alþýðufólks eru.

Fastir pennar
Fréttamynd

Full ástæða til að fagna

Í ár er í raun enn frekar ástæða fyrir Íslendinga, samkynhneigða og aðra, til að fagna vegna þess að fyrr í sumar ári náðist mikilvægur áfangi í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar lög um breytingu á lagaákvæðum er varða réttarstöðu samkynhneigðra voru samþykkt á Alþingi. Þessi lög taka til sambúðar og geta samkynhneigðir nú skráð sig í staðfesta samvist eins og gagnkynhneigð pör og þannig notið sömu réttinda og annað sambúðarfólk, til dæmis gagnvart skatti og erfðum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Allir borgi jafnt

Í þeirri árvissu umræðu um skatta og laun sem nú fer fram í þjóðfélaginu stendur tvennt upp úr. Í fyrsta lagi stórkarlalegar yfirlýsingar um svokölluð ofurlaun og hvernig hægt sé að sporna við þeim. Í öðru lagi að íslenskt skattaumhverfi býður upp á meiri mismunun á skattlagningu tekna en áður hefur þekkst.

Fastir pennar
Fréttamynd

Vinna, vinna: Eitt mál enn

Bandaríkjamenn afla eins og áður meiri tekna á mann en flestar Evrópuþjóðir. Það stafar öðrum þræði af því, að Bandaríkjamenn vinna að jafnaði meira en nú tíðkast í Evrópu. Bandarískt atvinnulíf er að sönnu hagkvæmt í öllum aðalatriðum, svo er rótgrónum og vel smurðum markaðsbúskap fyrir að þakka og virku lýðræði, enda þótt ýmisleg staðbundin óhagkvæmni íþyngi efnahagslífinu þarna fyrir vestan eins og ég lýsti hér á þessum stað fyrir viku.

Fastir pennar
Fréttamynd

Tekjutengingar - upp og niður, út og suður

Sérkapítuli er svo það eftirlauna- og bótakerfi, sem hin pólitíska yfirstétt hefur komið upp fyrir sjálfa sig á síðustu árum. Þar er ekki talin þörf á neinum tekjutengingum bóta; alþingismenn og ráðherrar geta farið á full eftirlaun 55 ára og haldið áfram að gegna hálaunastörfum á vegum sama vinnuveitanda starfsævina út og þeir og makar þeirra hlotið rífleg eftirlaun til æviloka.

Fastir pennar
Fréttamynd

Skarar eld að köku öfgaafla

Þessi staða gerir hlutverk væntanlegs fjölþjóðlegs friðargæzluliðs meira en lítið snúið. Ísraelar vonast til að slíkt lið taki af þeim ómakið að tryggja að Hizbollah-liðar geti ekki gert sprengiflaugaárásir á Ísrael frá Suður-Líbanon. Eins og málin hafa þróazt er hætt við að slíkt gæzlulið yrði þar með álitið handbendi Ísraels og Bandaríkjanna í augum flestra Miðausturlandabúa og myndi nær óhjákvæmilega dragast sjálft inn í hin vopnuðu átök.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hátíðahöld fóru vel fram

Það er fráleitt að fullyrða að hátíðahöld hafi farið vel fram þar sem einni stúlku hefur verið nauðgað. Ein líkamsárás er líka óviðunandi, ungur maður hlýtur áverka og verður í sumum tilvikum aldrei samur. Hátíð þar sem einn maður er barinn hefur ekki farið vel fram.

Fastir pennar
Fréttamynd

"...þá leitar hún út um síðir"

En það er einmitt auðveldara að vernda rétt kvennanna, ef vændi er leyft eða þolað, svo að það sé ofanjarðar. Bann kemur ekki í veg fyrir vændi, heldur gerir illt verra. Þótt náttúran sé lamin með lurk, þá leitar hún út um síðir.

Fastir pennar
Fréttamynd

Almenningur bregst við

Tölur þær sem Fréttablaðið birti í vikunni um samdráttinn á fasteignamarkaðnum segja sitt um ástandið á þeim vettvangi, og það hlýtur að stefna í verðlækkun þar, hvað svo sem bjartsýnir fasteignasalar segja.

Fastir pennar
Fréttamynd

Vinnan er guðs dýrð: Taka tvö

Það vill stundum gleymast, að ýmisleg óhagkvæmni íþyngir bandarísku efnahagslífi, rýrir lífskjör þjóðarinnar og knýr hana með því móti til að leggja harðar að sér en hún þyrfti ella á að halda. Þessi óhagkvæmni er ýmist óviðráðanleg eða heimatilbúin.

Fastir pennar
Fréttamynd

Storminn tekur að lægja

Síðustu mánuðir hafa verið mikill lærdómstími fyrir fjármála­fyrirtækin. Þau hafa brugðist skynsamlega við. Glitnir tók fyrstur við sér og Viðskiptaráð Íslands brást hárrétt við.

Fastir pennar
Fréttamynd

Smækkun almættisins

Tilhneiging manna til að koma sér upp hentugum skoðunum, búa til í kringum þær notalega fordóma og fá síðan guð í lið með sér virðist ekki hafa minnkað í aldanna rás. Trúarbrögðin mæta þörfum manna til að aðgreina hópinn sinn frá öðrum hópum. Í samtímanum eru allir hópar í návígi. Smækkun almættisins niður í það óttaslegna og yfirgangssama í mannsálinni er hættulegri en áður.

Fastir pennar
Fréttamynd

Menningargróska í alþjóðlegri vídd

Ein af þeim stofnunum Háskóla Íslands sem gengið hafa í endurnýjun lífdaganna er stofnun í erlendum tungumálum sem fáir vissu um fyrir fimm árum. Nafn hennar hefur síðan verið tengt Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrum forseta Íslands.

Fastir pennar
Fréttamynd

Betri vegir í forgangi

Vissulega hefur vegakerfi landsins tekið stakkaskiptum á undanförnum áratugum, til dæmis er bundið slitlag nú komið á flestar fjölfarnar leiðir. Þróun og bætur á vegakerfinu hafa þó ekki haldið í við stóraukna umferð og þjóðvegir landsins eru því ekki eins örugg umferðarmannvirki og þeir gætu verið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Um okur og fleira

Ráðaleysi manna gagnvart okursamfélaginu finnst mér ná hámarki þegar stjórnmálamenn og ég held svei mér þá sumir hagfræðingar halda því fram að ekki þýði að lækka matarskattinn eða afnema vörugjöld vegna þess að einhverjir muni stinga andvirðinu í eigin vasa. Þessir einhverjir eru líkast til smásalarnir, því heildsalar heyra meira en minna fortíðinni til.

Fastir pennar