Fastir pennar

Fréttamynd

Burt með reykinn

Veitingamenn hafa gert tillögu um bann við reykingum á stöðum sínum eftir tvö ár, en óþarft er að bíða svo lengi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ný fjölmiðlalög á hverju ári?

Báðar fjölmiðlanefndirnar og tillögur þeirra eru skyndiviðbrögð við hræringum sem hafa átt sér stað á íslenskum fjölmiðlamarkaði allra síðustu ár þar sem gömul valdahlutföll hafa riðlast.

Fastir pennar
Fréttamynd

Einn markaður - ein lög

Skýrsla fjölmiðlanefndar: Það sem á vantar er að frumvarpið um ríkisútvarpið verði afgreitt samhliða væntanlegu fjölmiðlafrumvarpi eða sem hluti af því.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ítalska leiðin kvödd?

Nú standa menn frammi fyrir spennandi umræðu um niðurstöður og tillögur nýju fjölmiðlanefndarinnar. Það að þverpólitískt samkomulag hafi náðst í nefndinni er vissulega gleðiefni. Hins vegar má ekki líta á slíkt samkomulag sem svo endanlegt að það frysti umræðuna og komi í veg fyrir breytingar og endurbætur.

Fastir pennar
Fréttamynd

Í leit að glötuðum tíma

Í sömu viku og KB banki freistar þess að taka yfir breska fjárfestingabankann Singer & Friedlander í milljarðaviðskiptum og stúlknasveitin Nylon semur við einn þekktasta umboðsmann Evrópu, kynna íslenskir stjórnmálamenn tillögur sínar um hvernig hægt sé að hefta frjáls markaðsviðskipti.

Fastir pennar
Fréttamynd

Tony Blair telur að nú sé lag

Enda þótt skoðanakannanir nú bendi yfirleitt til þess að Verkamannaflokkurinn fari með sigur af hólmi í kosningunum, þá sýna sömu kannanir að meirihluti vill fá Gordon Brown fjármálaráðherra í stól leiðtoga Verkamannaflokksins.

Fastir pennar
Fréttamynd

Allt bendir til álvers á Húsavík

Fram til þessa hafa verið uppi mjög mismunandi skoðanir um það, hvar á Norðurlandi álver ætti að rísa, en nú virðast vera komnar hreinni línur í það mál og bendir allt á fyrirhugaðan stað skammt sunnan Húsavíkur. </font /></b />

Fastir pennar
Fréttamynd

Er botninum náð?

Flokkar og menn, sem hafa látið sig hafa það að svipta þjóð sína dýrmætri sameign, verða smám saman ónæmir fyrir þeirri almennu hneykslan, sem atferli þeirra vekur. Þá munar þá t.d. ekkert um það heldur að sölsa undir sig og sína æ fleiri embætti, sem þeir eru óhæfir til að gegna.

Fastir pennar
Fréttamynd

Skipbrot átakastjórnmálanna

Átakastjórnmál má kalla þau vinnubrögð þegar menn sem komist hafa í valdastöðu fyrir atbeina stjórnmálaflokka ákveða að fara sínu fram án tillits til sjónarmiða þess fólks sem málin varða hverju sinni, og sé almenn andstaða við einhverja tiltekna málsmeðferð skuli hún að engu höfð en málið keyrt af offorsi í gegn til þess að sýna styrk sinn í eitt skipti fyrir öll.

Fastir pennar
Fréttamynd

Útvarpsráð og -stjóri rúin trausti

Stjórmálamenn þurfa oft að þola aðgangshörku fjölmiðla í umdeildum málum. Það er hluti af þeirra starfi og þeir sem ekki þola eina og eina gusu sem þeir telja óverðskuldaða eiga einfaldlega að leita sér að rólegra starfi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Kennum börnum að hlusta á sögur

Þegar upp er staðið getur allt beðið nema uppeldi barnanna okkar. Það þarf að hafa forgang hverja stund og stór og mikilvægur þáttur uppeldis er að segja börnum sögur, lesa fyrir þau góðar bækur og spinna upp sögur sem reyna á ímyndunaraflið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Göngum betur um náttúru og auðlindir

Þeir telja að aldrei fyrr hafi menn valdið jafn miklum skaða á náttúrunni og á síðustu árum. Aukin efnahagsumsvif og aukin matvælaframleiðsla hafa verið á kostnað umhverfisins, sem komi fram í því að vatn og andrúmsloft hafi spillst.

Fastir pennar
Fréttamynd

Sundabraut fyrst eftir 10 ár?

Hönnun og undirbúningur Sundabrautar tekur langan tíma, og enn er ekki einu sinni búið að ákveða hvaða leið verður farin yfir Elliðaárvog. Hvorki er gert ráð fyrir Sundabraut né mislægum gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar í nýrri samgönguáætlun.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ráðstöfun opinbers fjár

Í gamla daga þótti það góð aðferð í stjórnmálaumfjöllun að birta sem verstar myndir af andstæðingum, flokksblöðin, sem þá réðu lögum og lofum á fjölmiðlamarkaði, stóðu sig þeim mun betur sem stærra myndasafn af greppitrýnum þau höfðu í fórum sínum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hinn sögulegi farsi

Eflaust á Auðun Georg eftir að kynnast því að fréttastjórn á alvöru fréttastofu byggir ekki á lóðréttu boðvaldi yfirmanns yfir undirmönnum - þar gilda sjálfstæð vinnubrögð og sjálfstæð dómgreind fréttamannanna. Sá sem ekki er velkominn leiðtogi í slíkt teymi mun einfaldlega dingla í frígír á einhverju hliðarspori.

Fastir pennar
Fréttamynd

Á ábyrgð Sjálfstæðisflokks

Sjálfstæðismenn hafa setið í menntamálaráðuneytinu undanfarin fjórtán ár og haft meira en rúman tíma til að skapa frið um umfang og rekstur Ríkisútvarpsins. Þess í stað logar stofnunin stafnanna á milli.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ekki bara flensa

Ekki er nú um stundir bráð hætta á ferðum að mati sóttvarnayfirvalda, en hitt blasir við að berist veikin til okkar heimshluta mun hún að líkindum breiðast hraðar út en sambærilegir faraldar fyrr á tímum. Þess vegna er skynsamlegt að skipuleggja af nákvæmni og kaldri yfirvegun hvernig við verður brugðist.

Fastir pennar
Fréttamynd

Utanríkis- og varnarmál Færeyinga

Einhver kynni að segja að þetta sé svo sjálfsagt mál að það þurfi ekki einu sinni að ræða það, og það megi líkja því við nýlendustefnu hvernig að þessum málum hafi verið staðið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Predikun biskups í Dómkirkjunni

Predikun herra Karls Sigurbjörnssonar, biskups Íslands, í Dómkirkjunni hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli. Eru það sérstaklega ummæli hans um stöðu og horfur kristinnar kirkju og trúar um þessar mundir hér á landi og og annars staðar í Vestur-Evrópu sem menn hafa staldrað við.

Fastir pennar
Fréttamynd

Þau gefa okkur ullina

Okið frá fyrri tíð er í fyrsta lagi afkvæmi núverandi ríkisstjórnarflokka, enda hafa þeir haft tögl og hagldir í atvinnulífinu allan lýðveldistímann, og þeir hafa öðrum þræði fyrir þrýsting að utan neyðzt smám saman til að létta okinu af þjóðinni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Alþjóðahúsið vinnur þarft verk

Nú á dögum almennrar upplýsingar og menntunar er engin afsökun til fyrir hleypidómum gagnvart fólki af erlendum uppruna. Hjörtu mannanna slá eins í Súdan og á Grímsnesinu. Við eigum að taka fagnandi á móti erlendu fólki sem vill setjast hér að og laga sig að siðum okkar, tungu og menningu um leið og það miðlar okkur af eigin siðum og menningararfi og auðgar þannig samfélagið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Milljörðum skotið undan

Allt kemur þetta óorði á heiðarlega og duglega veitingamenn sem sumir hverjir hafa ár eftir ár rekið staði sína undir sömu kennitölu og líða fyrir hina sem eru með óhreint mjöl í pokanum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Afdrifaríkt val

Störfin við stóriðju eru fremur fá, þótt þau séu allvel borguð á íslenskan mælikvarða. Við eigum í keppni við þriðja heims lönd um að fá stóriðjuna til okkar og til þess þurfum við að selja orkuna með tapi.

Fastir pennar