Ástin á götunni Skilaði Neistanum 1,1 milljón Markheppni leikmanna í síðustu umferðum Landsbankadeilda karla og kvenna skilaði Neistanum, Félagi hjartveikra barna, rúmlega milljón krónum. Landsbankinn hafði heitið á liðin sem leika í úrvalsdeild karla og kvenna í knattspyrnu að skora sem flest mörk en fyrir hvert mark sem skorað var í úrvalsdeild kvenna greiðir Lansdbankinn 30.000 krónur. Upphæðin fyrir markið í karladeildinni var 25.000 krónur. Innlent 30.8.2006 23:07 Titillinn er formsatriði hjá Valsstúlkum Þrettánda og næst síðasta umferðin í Landsbankadeild kvenna fór fram í kvöld. Valsstúlkur tryggðu sér nánast Íslandsmeistaratitilinn með því að leggja Keflavík 4-0 á útivelli og það þýðir að Breiðablik, sem vann Fylki 6-2 í kvöld, þarf að vinna lokaleik sinn með yfir 30 marka mun og treysta á að Valur tapi í lokaumferðinni til að eiga möguleika á að verja titil sinn frá því í fyrra. Sport 30.8.2006 21:04 Sex leikmenn í bann Aganefnd KSÍ hefur úrskurðað sex leikmenn í eins leiks bann í Landsbankadeild karla vegna fjölda áminninga og missa þeir því af leikjum sinna liða í 16. umferðinni. Þetta eru Keflvíkingarnir Baldur Sigurðsson og Símun Samuelsen, Hörður Bjarnason og Valur Adolf Úlfarsson úr Víkingi, Jóhann Helgason frá Grindavík og Matthías Guðmundsson úr Val. Sport 30.8.2006 13:28 KR í úrslitaleikinn Það verða KR og Keflavík sem leika til úrslita í Visabikarnum í knattspyrnu, en KR-ingar lögðu Þrótt 1-0 í framlengdum undanúrslitaleik á Laugardalsvelli í kvöld. Það var Skúli Friðgeirsson sem skoraði sigurmark KR þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik framlengingarinnar. Hvorugt liðið bauð upp á nein glæsitilþrif í leiknum í kvöld, en úrvalsdeildarliðið stóð uppi sem sigurvegari í lokin. Sport 29.8.2006 22:16 Framlengt í Laugardalnum Leikur Þróttar og KR í undanúrslitum Visabikarsins er kominn í framlengingu eftir að hvorugu liði tókst að skora eftir 90 mínútna leik. Fyrri hálfleikur var nokkuð fjörugur, en sá síðari hefur ekki verið sérstaklega mikið fyrir augað. Sport 29.8.2006 21:51 Markalaust á Laugardalsvelli í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í viðureign Þróttar og KR í undanúrslitunum í Visabikarnum, en enn hefur hvorugu liðinu tekist að skora þrátt fyrir fjölda ágætra marktækifæra. Sigurvegarinn í kvöld mætir Keflvíkingum í úrslitaleik keppninnar. Þróttur hefur aldrei náð alla leið í úrslitaleikinn. Sport 29.8.2006 20:45 Keflavík mætir KR eða Þrótti í úrslitaleiknum Keflvíkingar tryggðu sér sæti í úrslitaleik VISA-bikarkeppninnar en Keflavík kjöldró Víkinga í fyrri undanúrlsitaleik bikarsins á Laugardalsvelli í kvöld. Lokatölur urðu Keflavík 4 - Víkingur 0. Sport 28.8.2006 21:48 Keflvíkingar komnir í 3-0 gegn Víkingi Keflvíkingar hafa vænlega stöðu í undanúrslitaleik VISA-bikarsins gegn Víkingum. Staðan er 3-0 Keflavík í vil. Guðmundur Steinarsson bætti við öðru marki fyrir Keflavík á 71. mínútu og Þórarinn Kristjánsson skoraði þriðja mark þeirra á 78. mínútu eftir hroðaleg mistök í vörn Víkinga. Keflvíkingar eru því að tryggja sig inn í úrslitaleik VISA-bikarsins. Síðari undanúrslitaleikurinn fer fram annað kvöld en þá mætast KR og Þróttur á Laugardalsvelli. Sport 28.8.2006 21:33 Keflavík hefur yfir 1-0 í hálfleik Keflvíkingar hafa yfir 1-0 gegn Víkingi í hálfleik í fyrri undanúrslitaleik VISA-bikars karla. Jónas Guðni Sævarsson skorðai mark keflvíkinga á 22. mínútu. Víkingar sóttu í sig veðrið á síðustu mínútunum en náðu ekki að jafna metin. Sport 28.8.2006 20:49 Keflavík komið yfir gegn Víkingi Keflavík hefur forystu gegn Víkingi í undanúrslitum VISA-bikars karla en leikurinn fer fram á Laugardalsvelli. Jónas Guðni Sævarsson skoraði mark keflvíkinga á 22. mínútu eftir laglega sendingu frá Baldri Sigurðssyni. Sport 28.8.2006 20:38 HK með annan fótinn í úrvalsdeildinni Leiknum er lokið, 4-0, fyrir HK á Kópavogsvelli, Ólafur V. Júlíusson bætti fjórða markinu við nýkominn inn á. Hermann Geir Þórsson skoraði þriðja markið. Stefán Eggertsson skoraði annað markið en Finnbogi Llorens það fyrsta. Leikurinn var í öruggum höndum HK-inga allan tíman. Þórsarar virkuðu andlausir og ekki að sjá að þarna færi lið sem væri að berjast fyrir lífi sínu í deildinni. Sport 26.8.2006 17:06 3-0 fyrir HK Hermann Geir Þórsson bætti þriðja markinu við. Sport 26.8.2006 17:10
273 274 275 276 277 278 279 280 281 … 334 ›
Skilaði Neistanum 1,1 milljón Markheppni leikmanna í síðustu umferðum Landsbankadeilda karla og kvenna skilaði Neistanum, Félagi hjartveikra barna, rúmlega milljón krónum. Landsbankinn hafði heitið á liðin sem leika í úrvalsdeild karla og kvenna í knattspyrnu að skora sem flest mörk en fyrir hvert mark sem skorað var í úrvalsdeild kvenna greiðir Lansdbankinn 30.000 krónur. Upphæðin fyrir markið í karladeildinni var 25.000 krónur. Innlent 30.8.2006 23:07
Titillinn er formsatriði hjá Valsstúlkum Þrettánda og næst síðasta umferðin í Landsbankadeild kvenna fór fram í kvöld. Valsstúlkur tryggðu sér nánast Íslandsmeistaratitilinn með því að leggja Keflavík 4-0 á útivelli og það þýðir að Breiðablik, sem vann Fylki 6-2 í kvöld, þarf að vinna lokaleik sinn með yfir 30 marka mun og treysta á að Valur tapi í lokaumferðinni til að eiga möguleika á að verja titil sinn frá því í fyrra. Sport 30.8.2006 21:04
Sex leikmenn í bann Aganefnd KSÍ hefur úrskurðað sex leikmenn í eins leiks bann í Landsbankadeild karla vegna fjölda áminninga og missa þeir því af leikjum sinna liða í 16. umferðinni. Þetta eru Keflvíkingarnir Baldur Sigurðsson og Símun Samuelsen, Hörður Bjarnason og Valur Adolf Úlfarsson úr Víkingi, Jóhann Helgason frá Grindavík og Matthías Guðmundsson úr Val. Sport 30.8.2006 13:28
KR í úrslitaleikinn Það verða KR og Keflavík sem leika til úrslita í Visabikarnum í knattspyrnu, en KR-ingar lögðu Þrótt 1-0 í framlengdum undanúrslitaleik á Laugardalsvelli í kvöld. Það var Skúli Friðgeirsson sem skoraði sigurmark KR þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik framlengingarinnar. Hvorugt liðið bauð upp á nein glæsitilþrif í leiknum í kvöld, en úrvalsdeildarliðið stóð uppi sem sigurvegari í lokin. Sport 29.8.2006 22:16
Framlengt í Laugardalnum Leikur Þróttar og KR í undanúrslitum Visabikarsins er kominn í framlengingu eftir að hvorugu liði tókst að skora eftir 90 mínútna leik. Fyrri hálfleikur var nokkuð fjörugur, en sá síðari hefur ekki verið sérstaklega mikið fyrir augað. Sport 29.8.2006 21:51
Markalaust á Laugardalsvelli í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í viðureign Þróttar og KR í undanúrslitunum í Visabikarnum, en enn hefur hvorugu liðinu tekist að skora þrátt fyrir fjölda ágætra marktækifæra. Sigurvegarinn í kvöld mætir Keflvíkingum í úrslitaleik keppninnar. Þróttur hefur aldrei náð alla leið í úrslitaleikinn. Sport 29.8.2006 20:45
Keflavík mætir KR eða Þrótti í úrslitaleiknum Keflvíkingar tryggðu sér sæti í úrslitaleik VISA-bikarkeppninnar en Keflavík kjöldró Víkinga í fyrri undanúrlsitaleik bikarsins á Laugardalsvelli í kvöld. Lokatölur urðu Keflavík 4 - Víkingur 0. Sport 28.8.2006 21:48
Keflvíkingar komnir í 3-0 gegn Víkingi Keflvíkingar hafa vænlega stöðu í undanúrslitaleik VISA-bikarsins gegn Víkingum. Staðan er 3-0 Keflavík í vil. Guðmundur Steinarsson bætti við öðru marki fyrir Keflavík á 71. mínútu og Þórarinn Kristjánsson skoraði þriðja mark þeirra á 78. mínútu eftir hroðaleg mistök í vörn Víkinga. Keflvíkingar eru því að tryggja sig inn í úrslitaleik VISA-bikarsins. Síðari undanúrslitaleikurinn fer fram annað kvöld en þá mætast KR og Þróttur á Laugardalsvelli. Sport 28.8.2006 21:33
Keflavík hefur yfir 1-0 í hálfleik Keflvíkingar hafa yfir 1-0 gegn Víkingi í hálfleik í fyrri undanúrslitaleik VISA-bikars karla. Jónas Guðni Sævarsson skorðai mark keflvíkinga á 22. mínútu. Víkingar sóttu í sig veðrið á síðustu mínútunum en náðu ekki að jafna metin. Sport 28.8.2006 20:49
Keflavík komið yfir gegn Víkingi Keflavík hefur forystu gegn Víkingi í undanúrslitum VISA-bikars karla en leikurinn fer fram á Laugardalsvelli. Jónas Guðni Sævarsson skoraði mark keflvíkinga á 22. mínútu eftir laglega sendingu frá Baldri Sigurðssyni. Sport 28.8.2006 20:38
HK með annan fótinn í úrvalsdeildinni Leiknum er lokið, 4-0, fyrir HK á Kópavogsvelli, Ólafur V. Júlíusson bætti fjórða markinu við nýkominn inn á. Hermann Geir Þórsson skoraði þriðja markið. Stefán Eggertsson skoraði annað markið en Finnbogi Llorens það fyrsta. Leikurinn var í öruggum höndum HK-inga allan tíman. Þórsarar virkuðu andlausir og ekki að sjá að þarna færi lið sem væri að berjast fyrir lífi sínu í deildinni. Sport 26.8.2006 17:06
Finnbogi Llorens skorar fyrir HK Finnbogi Llorens var að skora fyrir HK-inga í fjörugum leik gegn Þór á Kópavogsvelli og staðan því orðin 1-0 fyrir HK. HK-ingar sækja hart að marki Þórsara og leika hörku sóknarbolta. Sport 26.8.2006 16:37
HK - Þór Nú stendur yfir leikur HK og Þórs í fyrstu deildinni í knattspyrnu. Takist HK-ingum að sigra eru þeir hársbreidd frá því að tryggja liðinu sæti í úrvalsdeild í fyrsta skipti í sögu félagsins. Vísir mun fylgjast sérstaklega með þessum leik í dag. Sport 26.8.2006 16:05
Svíar tóku öll völd á vellinum Leik Íslands og Svíþjóðar í kvennaboltanum var að ljúka á Laugardalsvelli, 0-4 urðu lokatölur leiksins. Íslendingar léku fyrri hálfleikinn vel og áttu ekki slikið að vera marki undir í hálfleik. Í seinni hálfleik tóku Svíar hinsvegar öll völd á vellinum og lönduðu auðveldum sigri. Hannah Ljungberg systir Freddy Ljunberg lék vel fyrir Svía en náði ekki að skora. Sport 26.8.2006 15:50
0-1 í hálfleik Það er kominn hálfleikur í Laugardalnum í landsleik Íslands og Svíþjóðar í kvennaboltanum. Svíar leiða með einu marki gegn engu, Malin Monström skoraði markið úr umdeildri vítaspyrnu. Íslenska liðið hefur leikið vel það sem af er leiks og vörnin er þétt. Sport 26.8.2006 14:40
Dæmdur í tveggja leikja bann Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu, var í dag dæmdur í tveggja leikja bann vegna brottvísunar sem hann hlaut í leik Íslands og Tékklands á Laugardalsvelli á dögunum. Það verður Elísabet Gunnarsdóttir sem tekur við liðinu á meðan Jörundur tekur bannið út, en hún er þjálfari Vals og ungmennalandsliðsins. Jörundur verður því í banni í þeim tveimur leikjum sem íslenska liðið á eftir að spila í riðli sínum, hinn fyrri er gegn Svíum hér heima á morgun. Sport 25.8.2006 13:30
KR-ingar í annað sætið KR-ingar skutust í annað sæti Landsbankadeildarinnar í kvöld þegar liðið lagði ÍBV 2-0 í vesturbænum. Björgólfur Takefusa skoraði bæði mörk KR í kvöld. Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, var afar óhress með leik sinna manna í kvöld og sagði þá hafa spilað eins og "helvítis lopasokka og aumingja" í fyrri hálfleiknum í viðtali við Guðjón Guðmundsson á Sýn. Sport 24.8.2006 19:52
KR hefur yfir gegn ÍBV Nú hefur verið flautað til leikhlés í viðureignunum þremur sem standa yfir í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Björgólfur Takefusa skoraði bæði mörk KR sem hefur yfir 2-0 gegn ÍBV í Frostaskjóli sem sýndur er í beinni á Sýn. Hafþór Ægir Vilhjálmsson skoraði mark ÍA sem hefur yfir 1-0 gegn Keflavík á Skaganum og markalaust er hjá Grindvíkingum og Víkingi í Grindavík. Sport 24.8.2006 18:46
Birkir í byrjunarliði ÍBV Gamla kempan Birkir Kristinsson hefur tekið fram hanskana á ný og er í byrjunarliði ÍBV sem sækir KR heim í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Birkir lagði hanskana á hilluna í fyrra, en hefur nú snúið aftur til að koma fyrrum félögum sínum í ÍBV til bjargar í markmannsvandræðum þeirra. Leikurinn er sýndur beint á Sýn og hægt er að fylgjast með gangi mála í leikjum kvöldsins á Boltavaktinni hér á Vísi. Sport 24.8.2006 17:38
KR - ÍBV í beinni á Sýn Þrír leikir fara fram í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld, en hér er um að ræða fyrstu leikina í 15. umferðinni. Leikur KR og ÍBV verður sýndur beint á Sýn og hefst útsending klukkan 17:50 frá KR-velli. Skagamenn taka á móti Keflvíkingum á Skipaskaga og þá eigast við Grindavík og Víkingur suður með sjó. Allir leikirnir hefjast klukkan 18:00. Sport 24.8.2006 17:16
Þrír leikir í kvöld Fimmtánda umferð Landsbankadeildar karla hefst í kvöld með þremur leikjum. KR mætir ÍBV vestur í bæ, ÍA tekur á móti Keflavík og Grindavík og Víkingur mætast suður með sjó. Umferðinni lýkur síðan á sunnudag þegar FH tekur á móti Breiðablik og Valsmenn heimsækja Fylki í Árbæinn. Sport 23.8.2006 21:46
Skorað fyrir gott málefni Landsbanki Íslands, aðalstyrktaraðili efstu deildar karla- og kvenna í knattspyrnunni hér á landi, hefur í tilefni af 120 ára afmæli sínu ákveðið að hrinda af stað verkefni sem kallað hefur verið "Skorað fyrir gott málefni." Bankinn ætlar að gefa veglega fjárhæð til styrktar hjartveikum börnum fyrir hvert skorað mark í næstu umferð karla- og kvennadeildarinnar. Sport 23.8.2006 15:26
Vona að FH misstígi sig enn frekar Baldur Sigurðsson er leikmaður 14. umferðar landsbankadeildar karla að mati Fréttablaðsins. Hann skoraði bæði mörk Keflavíkur í 2-1 sigri á Íslandsmeisturum FH og verið öflugur með liðinu í allt sumar. Sport 22.8.2006 21:20
Breiðablik mætir Val í úrslitum Það verða bikarmeistarar Breiðabliks sem mæta Val í úrslitum Visabikarsins í knattspyrnu eftir að liðið vann 2-0 sigur á Fjölni á heimavelli sínum í Kópavogi í kvöld. Áður höfðu Valsstúlkur lagt Stjörnuna 2-1 og það verður því sannkallaður draumaúrslitaleikur í kvennaflokki í ár. Erna B. Sigurðardóttir og Edda Garðarsdóttir skoruðu mörk Blika í kvöld. Sport 22.8.2006 19:29
Valur í úrslitaleikinn Valsstúlkur tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleik Visabikarsins í knattspyrnu þegar þær lögðu Stjörnuna 2-1 í undanúrslitaleik á Valbjarnarvelli. Björk Gunnarsdóttir kom gestunum yfir í upphafi síðari hálfleiks, en þær Katrín Jónsdóttir og Rakel Logadóttur tryggðu Val sigurinn með mörkum um miðjan hálfleikinn. Sport 22.8.2006 19:13
Leikur Vals og Stjörnunnar að hefjast Leikur Vals og Stjörnunnar í undanúrslitum Visa-bikarsins í kvennaflokki er nú hafinn á Valbjarnarvelli og klukkan 17:30 hefst hin undanúrslitaviðureignin, en þar eigast við Breiðablik og toppliðið í fyrstu deild, Fjölnir. Sport 22.8.2006 17:03
Ármann Smári semur við Brann Norska liðið Brann hefur komist að samkomulagi við Íslandsmeistara FH um kaup á varnarmanninum Ármanni Smára Björnssyni og því líklegt að hann spili sinn síðasta leik fyrir FH gegn Breiðablik um næstu helgi. Ármann hefur gert þriggja ára samning við Brann, en hann hefur spilað mjög vel fyrir Íslandsmeistarana í sumar. Sport 21.8.2006 16:53
Valur og Víkingur gerðu jafntefli Valur og Víkingur gerðu markalaust jafntefli á Laugardalsvelli í kvöld í lokaleik umferðarinnar í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Skemmst er frá því að segja að leikurinn var hundleiðinlegur og fengu þeir 878 áhorfendur sem borguðu sig inn á völlinn afar lítið bitastætt fyrir peninginn í kvöld. Sport 20.8.2006 21:45
Mikilvægur sigur ÍBV - Keflavík lagði FH Leikjunum þremur sem hófust klukkan 18 í Landsbankadeild karla er nú lokið. Eyjamenn unnu mikilvægan 2-1 sigur á Grindvíkingum í Eyjum, Keflvíkingar skelltu Íslandsmeisturunum 2-1 á heimavelli sínum og KRingar lögðu Blika 1-0 á útivelli. Leikur Vals og Víkings hefst nú klukkan 20. Sport 20.8.2006 19:54