Ástin á götunni

Fréttamynd

Newcastle vill Owen

Real Madrid hefur gefið það út að Newcastle United sé búið að staðfesta áhuga sinn á framherjanum Michael Owen, sem talið er að eigi ekki eftir að eiga sjö dagana sæla í herbúðum spænska liðsins á næstu leiktíð vegna gríðarlegrar samkeppni.

Sport
Fréttamynd

Ferdinand skrifar undir

Rio Ferdinand, miðvörður Manchester United hefur skrifað undir nýjan fjöguurra ára samning við liðið. Rio gekk til lið við United sumarið 2002 og hefur unnið bæði ensku deildina og bikarkeppnina með félaginu.

Sport
Fréttamynd

Giggs stillir upp úrvalsliði

Ryan Giggs, leikmaður Manchester United stillti upp liði í blaðinu 4-4-2 sem inniheldur erfiðistu andstæðnum hans í gegnum tíðin. Liðið er skipað...

Sport
Fréttamynd

Allardyce ekki örvæntingarfullur

Sam Allardyce, stjóri Bolton, segist ekki verða orðinn örvæntingarfullur í leit sinni að nýjum leikmönnum til að fá til liðsins. Eftir að hafa fengið Javier Borgetti frá Mexíkó hefur Allardyce ekki náð að semja við neinn leikmann.

Sport
Fréttamynd

Dudek illa meiddur

Jerzy Dudek, markvörður Liverpool fór úr olnbogalið á æfingu með liðinu í dag og missir því af upphafi móts. Meiðslin setja samt ekki strik í reikningin hjá Liverpool því liðið keypti Spánverjann Jose Reyna frá Villareal til að standa í markinu í vetur hjá liðinu.

Sport
Fréttamynd

Halmstad er í þriðja neðsta sæti

Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði eina mark Halmstad sem beið í gær lægri hlut fyrir Örgryte 2 - 1 á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Jóhann B Guðmundsson kom inn á sem varamaður í liði Örgryte í síðari hálfleik.

Sport
Fréttamynd

Við þurfum ekki Jenas

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, kveðst sannfærður um að Cesc Fabregas, hinn kornungi spænski miðjumaður liðsins, geti fyllt það skarð sem Patrick Vieira skildi eftir sig þegar hann gekk til liðs við Juventus.

Sport
Fréttamynd

Blikar nær sæti í Landsbankadeild

Breiðablik færðist nær sæti í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í gær þegar liðið sigraði Þór með einu marki gegn engu. Kristján Óli Sigurðsson skoraði markið en tveimur leikmönnum Þórs var vísað útaf 10 mínútum fyrir leikslok.

Sport
Fréttamynd

Gylfi sat á bakknum hjá Leeds

Gylfi Einarsson sat á varamannabekk Leeds Utd sem vann Millwall 2-1 í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í dag. Gylfi kom hins vegar ekkert við sögu í leiknum. Þetta var eini leikurinn á dagskrá í deildinni í dag.

Sport
Fréttamynd

Arsenal minnkar muninn

Francesc Fabregas hefur minnkað muninn fyrir Arsenal, 2-1 gegn Chelsea á Millennium Stadium í Cardiff. Markið kom á 65. mínútu eftir mistök hjá Tiago sem er nýkominn inn á í stað Eiðs Smára.

Sport
Fréttamynd

Chelsea 2-0 yfir gegn Arsenal

Chelsea er 2-0 yfir gegn Arsenal í úrslitaleiknum um Samfélagsskjöldinn á Englandi en leikurinn hófst kl. 14:00. Didier Drogba hefur skorað bæði mörk Chelsea, það fyrra á 8. mínútu en seinna markið á 58. mínútu eftir sendingu frá Eiði Smára Guðjohnsen. Eiður var í byrjunarliði Chelsea í hlutverki miðjumanns en var skipt úr af fyrir Tiago strax eftir seinna markið.

Sport
Fréttamynd

Chelsea vann Arsenal

Chelsea lagði Arsenal 2-1 í hinum árlega úrslitaleik Englandsmeistara og bikarmeistara í knattspyrnu en leiknum var að ljúka í Cardiff. Didier Drogba skoraði bæði mörk Chelsea en Francesc Fabregas minnkaði muninn fyrir Arsenal.

Sport
Fréttamynd

PSG lagði Sochaux í Frakklandi

Önnur umferðin í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu fer fram um helgina. Paris St. Germain sigraði Sochaux á útivelli 1-0 og hefur því sigrað í báðum leikjum sínum líkt og Bordeaux sem vann nýliðana í Nancy 1-0. Auxerre sigraði Monaco 2-0 á útivelli.

Sport
Fréttamynd

Ísland U17 náði 7. sæti

U17 ára landslið Íslands vann Finna 4-2, á ÍR-velli í leik um 7. sætið á Opna Norðurlandamótinu í knattspyrnu í dag. Guðmundur Reynir Gunnarsson skoraði 2 mörk fyrir Ísland en Hilmir Ægisson og Rafn Andri Halldórsson eitt hvor. Írar urðu sigurvegarar mótsins en þeir lögðu Englendinga 2-0 í úrslitaleiknum.

Sport
Fréttamynd

Leikið við Suður-Afríkumenn

Suður-Afríkumenn verða mótherjar íslenska landsliðsins í knattspyrnu á Laugardalsvellinum í næstu viku. Illa hefur gengið að fá mótherja fyrir landsliðið, fyrst gengu Venesúelar úr skaftinu og síðan Kólumbíumenn.

Sport
Fréttamynd

Lokeren og Genk skildu jöfn

Keppni í belgísku 1. deildinni í knattspyrnu hófst í gær. Lokeren og Genk gerðu 1-1 jafntefli. Indriði Sigurðsson kom inná á 38. mínútu fyrir Gert Claessens í vörn Genk. Arnar Viðarsson lék allan leikinn með Lokeren, Rúnar Kristinsson byrjaði inn á en Arnar Grétarsson leysti hann af hólmi á 80. mínútu.

Sport
Fréttamynd

Bayern byrjar titilvörnina vel

Keppni í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hófst í gærkvöldi þegar Þýskalandsmeistarar Bayern München burstuðu Borussia Mönchengladbach 3-0. Leikurinn var háður á hinum nýja og glæislega Allianz-velli sem tekur 66 þúsund áhorfendur.

Sport
Fréttamynd

Ajax meistari meistaranna

Ajax sigraði PSV Eindhoven 2-1 í meistaraleiknum í hollenska fótboltanum. Wilfred Bouma kom PSV yfir í byrjun síðari hálfleiks en Nourdin Boukhari og Ryan Babel skoruðu fyrir Ajax.

Sport
Fréttamynd

Haukar lögðu Fjölni

Haukar sigruðu Fjölni með tveimur mörkum gegn einu í 1. deild karla í fótboltanum í gærkvöldi. Í 2. deild sigraði Afturelding, Njarðvík 2-1 og Selfoss sigraði Leikni 1-0. Þrátt fyrir ósigurinn hefur Leiknir enn tveggja stiga forystu á Stjörnuna sem á leik til góða gegn Tindastóli í dag.

Sport
Fréttamynd

Essien neitar að spila fyrir Lyon

Farsinn í kringum Mickael Essien og deilu hans við lið sitt Lyon heldur áfram og nú hefur hann tilkynnt forráðamönnum félagsins að hann muni ekki spila fyrir liðið á meðan þeir neiti honum um sölu til Chelsea.

Sport
Fréttamynd

Leikið við Norðmenn á NM

Riðlakeppni opna Norðurlandamótsins í knattspyrnu hjá leikmönnum 17 ára og yngri lýkur í dag. Íslendingar mæta Norðmönnum á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði klukkan 14.30. Bæði lið eru án stiga en Írar og Danir leika til úrslita um sigur í riðlinum. Leikurinn verður á Kópavogsvelli. Í hinum riðlinum keppa Englendingar og Svíar á Akranesi og Finnar og Færeyingar í Borgarnesi.

Sport
Fréttamynd

Pandiani til Birmingham

Birmingham hefur loksins gengið formlega frá kaupum á sóknarmanni Uruguay, Walter Pandiani, sem eyddi stórum hluta síðasta tímabils á láni hjá félaginu og stóð sig mjög vel. Hinn 29 ára gamli Pandiani skrifaði undir þriggja ára samning við Birmingham og er kaupverðið talið vera um þrjár milljónir punda, en Pandiani kemur frá Deportivo á Spáni.

Sport
Fréttamynd

Figo orðinn leikmaður Inter

Portúgalski miðjumaðurinn Luis Figo hefur skrifað undir tveggja ára samning við ítalska félagið Inter Milan en hann kemur frá spænska risaliðinu Real Madrid. Figo segist eiga nóg eftir í boltanum og hlakkar til að takast á við komandi verkefni hjá Inter.

Sport
Fréttamynd

U17 tapaði fyrir Noregi í dag

U17 landslið Íslands í knattspyrnu karla lenti í neðsta sæti síns riðils á Norðurlandamótinu. Það tapaði 1-0 fyrir Noregi á Kaplakrikavelli í dag. Íslensku strákarnir töpuðu þar með öllum þremur leikjum sínum í riðlinum, skoruðu ekkert mark en fengu sjö á sig.

Sport
Fréttamynd

Pearce vill fá Malbranque

Forráðamenn Fulham hafa hafnað fimm milljón punda tilboði Man.City í franska miðjumanninn Steed Malbranque. Þetta er í annað sinn á tæpri viku sem Fulham hafnar tilboði frá Stuart Pearce og félögum.

Sport
Fréttamynd

Meiðsli hjá Fylki en engin hjá Val

Valsmenn eiga ekki í neinum meiðslavandræðum fyrir undanúrslitaleikinn gegn Fylki í VISA bikarkeppninni í kvöld. Willum Þór Þórsson þjálfari Vals segir tíma kominn til að hið fornfræga bikarfélag Valur láti á sér bera í keppninni. Þorlákur Árnason þjálfari Fylkis segir alla þá menn sem hafa verið að spila í undanförnum leikjum séu leikfærir.

Sport
Fréttamynd

Wenger: Á ég að fara í spilavítið?

Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal segir að Chelsea sé að borga tvöfalt markaðsverð á þeim leikmönnum sem þeir kaupa. Wenger hefur verið undir pressu undanfarna daga frá stuðningsmönnum sem vilja að hann kaupi nýja leikmenn á meðan ríku félögin Real Madrid og Chelsea eru að hrifsa hvern leikmanninn á fætur öðrum sem Wenger ætlaði að kaupa.

Sport
Fréttamynd

Kólombíumenn voru líka sviknir

Það var ekki aðeins íslenska knattspyrnusambandsið sem var svikið í landsleikjamálum nýlega. Í ljós hefur komið að ástæðan fyrir því að Kólombíumenn geta komið og leikið á Íslandi með svo skömmum fyrirvara er sú að þeir urðu fyrir sömu reynslu með Ástrala.

Sport