Ástin á götunni
310 311 312 313 314 315 316 317 318 … 334 ›
Blikar og KR leika til úrslita Breiðablik og KR mætast í úrslitaleik bikarkeppni kvenna. Breiðablik vann Val 4-0, en þetta er þriðji sigur Blika á Val í sumar. Í hinum undanúrlitaleiknum sigruðu KR stúlkur 1.deildarlið Fjölnis 6-2. Bikarúrslitaleikurinn fer fram á Laugardalsvelli 10 september n.k. Sport 13.10.2005 19:45
Sigurvin að ná sér Sigurvin Ólafsson, miðvallarleikmaður KR í Landsankadeild karla er allur að ná sér af meiðslum í kálfa sem hafa ollið því að hann hefur ekki getað leikið með félögum sínum í síðustu tveimur leikjum KR. Sport 13.10.2005 19:45
Tilboð Newcastle í Owen samþykkt Real Madrid hefur samþykkt tilboð Newcastle í framherjann Michael Owen, sem er talið vera 15,5 milljónir punda, eða metfé í sögu Newcastle. Nú er boltinn hjá Michael Owen, sem mun væntanlega gera upp hug sinn fljótlega. Sport 13.10.2005 19:44
Bangoura til Stoke Sóknarmaðurinn Sambegou Bangoura er á leið til Stoke City frá Standard Liege í Belgíu. Bangoura sem er landsliðsmaður Gíneu er 23 ára og hefur gert 22 mörk í 50 deildarleikjum með Liege. Sport 13.10.2005 19:45
Landsliðshópur Króata Zlatko Kranjcar landsliðsþjálfari Króata í knattspyrnu tilkynnti í dag 22 manna landsliðshóp fyrir leikinn gegn Íslendingum og Möltumönnum í undankeppni HM sem fara í Reykjavík og í Valetta á Möltu 3. og 7. september. Sport 13.10.2005 19:45
Sannfærandi sigur United manna Manchester United sigraði Debrechen frá Ungverjalandi 3-0 ytra í 3.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. United eru því komnir í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Gabriel Heinze gerði fyrri tvö mörk United og Kieran Richardson það þriðja. Sjá úrslit og stöðu í öðrum leikjum... Sport 13.10.2005 19:45
Hamburg sló Valencia út Í úrslitum um laust sæti í Evrópukeppni félagsliða vann Lenz Cluj frá Rúmeníu 3-1 og samanlagt 4-2. Marseille burstaði Deportivo 5-1 og samanlagt 5-3 og Valencia og Hamburger gerðu markalaust jafntefli, en Hamburg vann fyrri leikinn 1-0. Sport 13.10.2005 19:44
Árni Gautur tapaði í vítakeppni Árna Gauti Arasyni, landsliðsmarkverði tóks ekki að tryggja norska félagi sínu Välerenga hundruðir milljóna króna í kvöld þegar lið hans tapaði fyrir belgíska liðinu Club Brugge í vítaspyrnukeppni í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn sjálfur fór 1-0 fyrir Club Brugge en Välerenga vann fyrri leikinn 1-0 í Osló. Sport 13.10.2005 19:45
Collina kom Villareal áfram Leikmenn spænska liðsins Villareal geta þakkað ítalska dómaranum Pierluigi Collina fyrir að vera komnir í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Collina dæmdi fullkomlega löglegt mark af Everton í stöðunni 1-1 en hefði markið staðið hefði staða liðanna í einvígi þeirra verið jöfn.Villareal sigrðai leikinn að lökum 2-1 en markið skoruðu þeir eftir.. Sport 13.10.2005 19:45
Eiður ekki í leikmannahópi Chelsea Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í leikmannahópi Chelsea sem er að vinna WBA 2-0 í hálfleik í ensku úrvalsdeildinni. Mörk Chelsea gerðu Frank Lampard og Joe Cole. Sport 13.10.2005 19:45
O´Leary æfur út af rauða spjaldinu David O´Leary, knattspyrnustjóri Aston Villa, var ekki kátur með rauða spjaldið sem Nolberto Solano fékk gegn Portsmouth í gærkvöldi og ætlar að áfrýja dómnum. Sport 13.10.2005 19:44
Kóreumaður til Tottenham Suður-Kóreumaðurinn Lee Young-Pyo hjá PSV Eindhoven í Hollandi er sagður vera á leið til Tottenham Hotspurs á Englandi fljótlega, en Pyo er öflugur vinstri bakvörður og er fasta maður í landsliði Kóreu. Sport 13.10.2005 19:44
Undanúrslit í bikarkeppni kvenna Í kvöld verður leikið í undanúrslitum í bikarkeppni kvenna í knattspyrnu. Efstu liðin í Landsbankadeildinni, Breiðablik og Valur, eigst við í Kópavogi klukkan 17.30 og KR tekur á móti Fjölni. Sport 13.10.2005 19:44
Egill dæmir í UEFA keppninni Egill Már Markússon verður dómari í síðari viðureign pólska liðsins Wisla Plock og Grasshoppers frá Sviss í UEFA-bikarnum, en liðin mætast á Gorskiego-leikvanginum í Plock á fimmtudag. Aðstoðardómarar verða þeir Gunnar Gylfason og Ingvar Guðfinnsson, og fjórði dómari verður Erlendur Eiríksson. Sport 13.10.2005 19:44
Landsliðshópur Þjóðverja Jürgen Klinsmann. landsliðsþjálfari Þýskalands í knattspyrnu hefur valið landsliðshóp Þjóðverja sem mætir Slóvakíu og Suður Afrík í næsta mánuði. Athygli vekur að Oliver Kahn, markvörður og Dietmar Hamann leikamður Liverpool eru hvíldir. Sport 13.10.2005 19:44
Soffía sigraði Evrópumeistarana CSKA Soffía sigraði Liverpool 1-0 á Anfield í 3.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Liverpool fer þó áfram því liðið vann fyrri viðureign liðanna 3-1. Þetta eru mjög óvænt úrslit því afar fáheyrt er að Evrópumeistarar tapi fyrir liði eins og CSKA Soffíu, en KA sem nú er í íslensku 1. deildinni sigraði CSKA á heimavelli fyrir 15 árum. Sport 13.10.2005 19:44
Tiago til Lyon Frakklandsmeistarar Lyon í knattspyrnu hefur fest kaup á portúgalska landsliðsmanninum Tiago hjá Chelsea fyrir 6.5 miljónir punda og boðið honum 5 ára samning Sport 13.10.2005 19:44
Liverpool undir í hálfleik CSKA frá Soffíu er að vinna Liverpool 1-0 í hálfleik á Anfield í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Stuðningsmenn Liverpool geta þó andað léttar því liðið vann fyrri leik liðanna 3-1 í Soffíu. Sport 13.10.2005 19:44
Luque fer ekki til Newcastle Lið Deportivo la Corunia á Spáni hefur neitað lokatilboði Newcastle í sóknarmanninn Albert Luque og því er ljóst að ekkert verður af för hans til Englands eins og til stóð. Sport 13.10.2005 19:44
Vonar að Gerrard fái verðlaun Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segist vona að Steven Gerrard verði valinn verðmætasti leikmaðurinn af UEFA á næstu dögum, en hefur meiri áhyggjur af því að fyrirliðinn nái heilsu fyrir leikinn við CSKA Moskvu um titilinn meistarar meistaranna á föstudag. Sport 13.10.2005 19:44
Danskur dómari í 1.deild Dómari í viðureign HK og KA í 1. deild karla í knattspyrnu föstudaginn 26. ágúst næstkomandi verður Henrik N. Kragh frá Danmörku. Aðstoðadómarar verða íslenskir. Er þetta seinni leikurinn af tveimur sem erlendur dómari dæmir í 1. deild karla á Íslandi í ár. Þetta er liður í samstarfi knattspyrnusambanda á Norðurlöndum um skipti á dómurum. Sport 13.10.2005 19:44
Fowler vill spila gegn United Framherjinn Robbie Fowler hefur einsett sér að snúa aftur með liði Manchester City í grannaslagnum við Manchester United í næsta mánuði, en hann hefur verið í erfiðum meiðslum á síðustu vikum Sport 13.10.2005 19:44
Arsenal er búið að vera Varnarmaðurinn William Gallas hjá Chelsea segir að tíð Arsenal sem topplið á Englandi sé liðin og að liðið sé búið að vera í baráttunni um meistaratitilinn. Sport 13.10.2005 19:44
David James með tvö markmið David James, markvörður Manchester City og enska landsliðsins, segist hafa sett sér tvö skýr markmið fyrir keppnistímabilið í vetur, að komast í Evrópukeppnina með Manchester City og að vinna sér fast sæti í enska landsliðinu á ný. Sport 13.10.2005 19:44
Fyrsti leikur Brynjars Björns Brynjar Björn Gunnarsson, landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu lék sinn fyrsta leik fyrir Reading í kvöld þegar hann kom inná í 3-1 sigri Reading á Swansea í framlengdum leik í ensku deildabikarkeppninni. Brynjar kom inná á 71. mínúnu og krækti sér í gult spjald á 73 mínútu. Sport 13.10.2005 19:44
Jóhannes Karl á skotskónum Jóhannes Karl Guðjónsson, leikmaður Leicester skoraði þriðja mark Leicester úr vítaspyrnu sem sigraði Bury 3-0 á útivelli í kvöld í ensku deildabikarkeppninni. Sjá úrslit leikja í deildabikarkeppninni.. Sport 13.10.2005 19:44
Man. City enn taplausir Manchester City sigraði Sunderland á útivelli í kvöld 2-1 í ensku úrvalsdeildinni og eru ósigraðir í deildinni eftir þrjá leiki með 7 stig. Middlesbrough gerði góða ferð til Birmingham og sigraði samnefnt lið 3-0. Aston Villa, sem einnig er úr Birminghamborg gerði jafntefli við Portsmouth á útivelli 1-1. Sjá markaskorara.. Sport 13.10.2005 19:44
Robben er ekki í hundakofanum Jose Mourinho hefur gefið það út að þó Arjen Robben verði ekki í byrjunarliði Chelsea gegn West Brom á miðvikudaginn, sé það ekki vegna þess að hann sé í hundakofanum vegna yfirlýsinga í fjölmiðlum um helgina. Sport 13.10.2005 19:44
Marseille með augastað á Cisse Djibril Cisse, franski framherjinn hjá Liverpool, er undir smásjá Marseille í heimalandi sínu, en talið er að forráðamenn Liverpool séu reiðbúnir að selja leikmanninn fari svo að Michael Owen snúi aftur á heimaslóðir. Sport 13.10.2005 19:44
Fylkissigur í Laugardalnum Fylkir sigraði Fram 2-1 í kvöld í Landsbankadeild karla. Öll mörkin í leiknum komu á lokamínútum leiksins. Með sigrinum eru Fylkismenn komnir í fimmta sætið en Fram er sem fyrr í sjöunda sæti. Sport 13.10.2005 19:44