Ástin á götunni
321 322 323 324 325 326 327 328 329 … 334 ›
Janft í Akureyrarslagnum Þór og KA gerðu 2-2 jafntefli í fyrstu deild karla í kvöld. Jóhann Helgason og Pálmi Rafn Pálmason gerðu mörk KA manna en þeir Dragan Stojanovic og Ibra Jagne gerðu mörk Þórs. KS og HK gerðu markalaust jafntefli á Siglufirði og þá sigraði Völsungur lið Hauka 1-0 með marki Hermanns Aðalgeirssonar. Sport 13.10.2005 19:35
Keflavík jafnaði Evrópumet Skagans Keflavík komst í gær áfram í 2. umferð Evrópukeppni félagsliða með 2-0 sigri á Etzella frá Lúxemborg og jafnaði um leið Evrópumet Skagans frá 1995 með því að vinna samanlagt með sex marka mun. Sport 13.10.2005 19:35
Keflavík áfram Keflvíkingar sigruðu Etzella frá Lúxemburg 2-0 í kvöld á Laugardalsvelli í fyrstu umferð forkeppni UEFA keppninnar og eru þar með komir áfram. Hörður Sveinsson gerði fyrra markið en hann gerði einnig öll fjögur mörk Keflvíkinga í fyrri leiknum sem Suðurnesjamenn sigruðu 4-0. Seinna mark Keflavíkur gerði Gunnar Hilmar Kristinsson. Sport 13.10.2005 19:35
Mótlæti hjá ÍBV í Færeyjum Eyjamenn eru úr leik eftir 2-1 tap fyrir færeyska liðinu B36 í Þórshöfn í gær en liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leiknum. Ísland tapaði því fyrstu viðureign sinni gegn Færeyjum í Evrópukeppni félagsliða en Ísland hefur aldrei tapað fyrir Færeyjum í A-landsleik. Sport 13.10.2005 19:35
Saviola vill svör Javier Saviola, argentínski sóknarmaðurinn sem er til mála hjá Barcelona sem vill ekkert með hann hafa, vill fá skorið úr um hvort framtíð hans liggi hjá félaginu. Sport 13.10.2005 19:35
Ballack kóngurinn í Þýskalandi Þýskir íþróttafréttamenn völdu í gær knattspyrnumann ársins í Þýskalandi. Michael Ballack, miðjumaður Bayern Munchen, varð fyrir valinu en hann fékk alls 516 atkvæði. Hann hlaut yfirburðarkosningu því sá sem var á eftir honum fékk 103 atkvæði, það var Lukas Podolski sóknarmaður hjá Köln. Sport 13.10.2005 19:35
Baros til Schalke? Þýska liðið Schalke hefur bæst í hóp þeirra liða sem vilja fá sóknarmanninn Milan Baros frá Liverpool og viðræður milli félagana tveggja eru komnar í gang. Schalke hefur nýlega selt sinn helsta sóknarmann, brasilíumanninn Ailton, til Besiktas og hugsa Baros sem eftirmann hans Sport 13.10.2005 19:35
Leikir í Evrópukeppni í kvöld ÍBV og Keflavík eiga bæði leik í kvöld í 1. umferð forkeppni UEFA keppninnar knattspyrnu. ÍBV keppir við B36 í Færeyjum en fyrri leikur liðanna lauk með jafntefli 1-1 í Vestmannaeyjum. Keflavík keppir við Etzella frá Lúxemborg á Laugardalsvelli en Keflavík vann fyrri leikinn 4-0 ytra og gerði Hörður Sveinsson öll mörk Keflvíkinga. Sport 13.10.2005 19:35
ÍBV er úr leik ÍBV tapaði fyrir B36 frá Færeyjum 2-1 ytra í kvöld í fyrstu umferð forkeppni UEFA keppninnar í knatttspyrnu. Ian Jeffs gerði mark Eyjamanna, en hann jafnaði leikinn í 1-1. Skömmu síðar fengu bæði hann og Pétur Óskar Sigurðsson að líta rauða spjaldið. Þetta er í fyrsta skipti í sögunni þar sem færeyskt lið fer áfram í Evrópukeppni. Sport 13.10.2005 19:35
Strachan eyðilagður eftir risatap Celtic beið afhroð í leik sínum gegn Artmedia frá Slóvakíu í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í gærkvöldi og tapaði 5-0. Flestir bjuggust við tiltölulega auðveldum sigri Celtic í leiknum og eru úrslitin einhver þau óvæntustu í sögu forkeppni Meistaradeildarinnar. Sport 13.10.2005 19:35
Ljungberg framlengir Freddy Ljungberg, leikmaður Arsenal skrifaði undir þriggja ára framlengingu á samningi sínum við Arsenal í dag. Ljungberg sem er 28 ára hefur nú þegar verið hjá Arsenal í sjö ár og ef hann klárar samning sinn verður hann hjá bikarmeisturnum til ársins 2009. Sport 13.10.2005 19:35
Lyn býður í Garðar Jóhannson Norska úrvalsdeildarliðið Lyn hefur sent KR-ingum tilboð í sóknarmanninn Garðar Jóhannsson. Garðar fór til Noregs fyrr í þessari viku og náði að heilla forystumenn norska liðsins. Sport 13.10.2005 19:35
Lyon - Auxerre 4-1 Lyon sigraði Auxerre í gærkvöldi 4-1 í árlegum leik deildar- og bikarmeistaranna í franska fótboltanum. Norðmaðurinn John Carew skoraði þrjú marka Lyon en liðinu stýrir núna Gerard Houllier fyrrverandi knattspyrnustjóri Liverpool. Sport 13.10.2005 19:35
Hefur verið orðaður við Stoke Indriði Sigurðsson hefur verið sterklega orðaður við Stoke City að undanförnu en hefur samt ekki hugmynd um hvort Stoke vilji sig. Fréttablaðið heyrði í honum í gær til þess að kanna stöðu mála. Sport 13.10.2005 19:35
Baptista ekki til Arsenal Sókanarmiðjumaður spænska liðsins Sevilla, Julio Baptista hefur engan áhuga á að að ganga til liðs við enska liðið Arsenal. Baptista, sem er brasilískur vill vera kyrr á Spáni og fá spænskt vegabréf. Arsene Wenger, knattspyrnusjóri Arsenal er hins vegar sagður ekki vera búinn að gefa upp alla von. Sport 13.10.2005 19:35
Fimm í eins leiks bann Fimm leikmenn í Landsbankadeildinni voru í gær dæmdir í eins leiks bann. Davíð Þór Viðarsson FH og Sölvi Sturluson úr KR voru reknir af velli en Bjarnólfur Lárusson KR fær leikbann vegna 6 gulra spjalda og Eyjamennirnir Andri Ólafsson og Heimir Snær Guðmundsson vegna fjögurra gulra spjalda. Sport 13.10.2005 19:35
Helgi Sig lék gegn Barcelona Helgi Sigurðsson og félagar í danska knattspyrnuliðinu AGF Aarhus máttu þola 0-4 tap á mánudagskvöld gegn spænska stórliðinu Barcelona en leikurinn var liður í undirbúningsferð Barca í Danmörku. Helgi var ekki í byrjunarliði AGF í leiknum en kom inn á í síðari hálfleik. Sport 13.10.2005 19:35
Leikur við Venesúela í lausu lofti Knattspyrnusamband Venesúela segir á heimasíðu sinni að landsleik milli Íslands og Venesúela í knattspyrnu, sem fyrirhugaður var 17. ágúst, hafi verið aflýst.Geir Þorsteinsson, framkvæmadstjóri knattspyrnusambands Íslands, segir þessa tilkynningu ótímabæra Sport 13.10.2005 19:35
Kristinn dæmir í Meistaradeildinni Knattspyrnudómarinn Kristinn Jakobsson dæmir í kvöld leik í annarri umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn er heimaleikur albanska liðsins KF Tirana og CSKA Sofia frá Búlgaríu og hefst hann kl. 18:30 að íslenskum tíma. Aðstoðardómarar í leiknum verða Pjetur Sigurðsson og Sigurður Óli Þorleifson. Eigill Már Markússon er eftirlitsdómari. Sport 13.10.2005 19:35
Toppliðin unnu í 1. & 2. deild Breiðablik heldur áfram sigurgöngu sinni í fyrstu deild karla í knattspyrnu. Blikar lögðu Fjölni 2-3 á útivelli eftir að hafa komist 0-2 yfir og eru með 35 stig á toppi deildarinnar, 10 stigum á undan Víkingi R sem vann mikilvægan 0-4 útisigur á nöfnum sínum frá Ólafsvík. Toppliðin tvö í 2. deild karla unnu bæði leiki sína í kvöld. Sport 13.10.2005 19:35
Ronaldo með tvö fyrir Real Madrid Brasilíski sóknarmaðurinn Ronaldo skoraði tvö mörk fyrir Real Madrid sem vann 3-1 sigur á japanska liðinu Jubilo Iwata í æfingaleik í kvöld en spænska liðið er nú í æfingaferð niðri í Asíu. Fyrirliðinn Raul skoraði eitt mark þegar hann kom Real í 1-0 áður en heimaliðið náði að jafna. Sport 13.10.2005 19:35
Benitez sæmilega sáttur Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur lýst frammistöðu sinna manna gegn Kaunas frá Litháen í Meistaradeildinni í gær sem "ágætri." Sport 13.10.2005 19:35
Forkeppni Meistaradeildar Evrópu Evrópumeistarar Liverpool áttu ekki í miklum vandræðum með að leggja Kaunas frá Litháen að velli í fyrri leik liðanna í 2. umferð forkeppni meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gærkvöldi. Kaunas skoraði fyrsta markið á heimavelli en Liverpool skoraði þrívegis og vann 3-1. Djibril Cisse, Jaime Carragher og Steven Gerard skoruðu mörkin. Sport 13.10.2005 19:35
Keane spilaði einn hálfleik Roy Keane, fyrirliði Man. Utd, spilaði í 45 mínútur með C-liði liðsins í æfingaleik gegn utanddeildarliðinu Rossendale í gær, þrátt fyrir að vera sagður meiddur og þess vegna ófær um að fylgja aðalliðinu í æfingaferð til Asíu. Sport 13.10.2005 19:35
Woodgate meiddur enn og aftur Það á ekki af varnarmanninum Jonathan Woodgate að ganga. Nú hefur hann enn einu orðið fyrir meiðslum og er líklegur til að missa af fyrstu vikum komandi keppnistímabils á Spáni. Sport 13.10.2005 19:35
Gilardino leikur með Milan í kvöld Markahrókurinn Alberto Gilardino sem gekk til liðs við A.C. Milan frá Parma í síðustu viku fyrir 17.2 milljónir punda leikur sinn fyrsta leik fyrir félagið í kvöld. Milan mætir Chicago Fire í kvöld vestur í Bandaríkjunum þar sem liðið er í æfingaferð. Sport 13.10.2005 19:35
Barton sektaður um 8 vikna laun Joey Barton, leikmaður Manchester City, var síðdegis sektaður um samtals 8 vikna laun af félagi sínu vegna atviks sem átti sér stað í Tælandi í síðustu viku en þar var Manchester City í æfingaferð. Sport 13.10.2005 19:35
Venesúela svíkur KSÍ Knattspyrnusamband Venesúela hefur aflýst vináttulandsleik við íslenska karlalandsliðið sem fram átti að fara á Laugardalsvelli 17. ágúst n.k. Þetta kom fram á heimasíðu venesúelska knattspyrnusambandsins fyrir skömmu en þar segir að settur hafi verið á vináttuleikur gegn Ekvador þennan dag í ágúst. Sport 13.10.2005 19:35
ÍBV komið til Færeyja Knattspyrnulið ÍBV er mætt til Færeyja þar sem liðið leikur síðari leik sinn gegn B36 í fyrstu umferð forkeppni UEFA-bikarins í Þórshöfn á morgun. Fyrri leik liðanna lauk með 1-1 jafntefli á Hásteinsvelli í Eyjum þar sem Pétur Óskar Sigurðsson skoraði mark heimamanna. Leikurinn hefst klukkan 17:30 að íslenskum tíma á morgun. Sport 13.10.2005 19:35
Stuttgart í undanúrslit Stuttgart sigraði Bayern München í undanúrslitum þýska deildarbikarsins 2-1 í kvöld í Alianz Arena nýja heimavelli Bayern München. Roy Makaay gerði mark Bayern en þeir Hitzlsperger og Stranzl mörk Stuttgart sem er stjórnað af Giovanni Trapatoni fyrrum þjálfara Bayern München. Sport 13.10.2005 19:35