Ástin á götunni
Woodgate meiddur enn og aftur
Það á ekki af varnarmanninum Jonathan Woodgate að ganga. Nú hefur hann enn einu orðið fyrir meiðslum og er líklegur til að missa af fyrstu vikum komandi keppnistímabils á Spáni.
Gilardino leikur með Milan í kvöld
Markahrókurinn Alberto Gilardino sem gekk til liðs við A.C. Milan frá Parma í síðustu viku fyrir 17.2 milljónir punda leikur sinn fyrsta leik fyrir félagið í kvöld. Milan mætir Chicago Fire í kvöld vestur í Bandaríkjunum þar sem liðið er í æfingaferð.
Barton sektaður um 8 vikna laun
Joey Barton, leikmaður Manchester City, var síðdegis sektaður um samtals 8 vikna laun af félagi sínu vegna atviks sem átti sér stað í Tælandi í síðustu viku en þar var Manchester City í æfingaferð.
Venesúela svíkur KSÍ
Knattspyrnusamband Venesúela hefur aflýst vináttulandsleik við íslenska karlalandsliðið sem fram átti að fara á Laugardalsvelli 17. ágúst n.k. Þetta kom fram á heimasíðu venesúelska knattspyrnusambandsins fyrir skömmu en þar segir að settur hafi verið á vináttuleikur gegn Ekvador þennan dag í ágúst.
ÍBV komið til Færeyja
Knattspyrnulið ÍBV er mætt til Færeyja þar sem liðið leikur síðari leik sinn gegn B36 í fyrstu umferð forkeppni UEFA-bikarins í Þórshöfn á morgun. Fyrri leik liðanna lauk með 1-1 jafntefli á Hásteinsvelli í Eyjum þar sem Pétur Óskar Sigurðsson skoraði mark heimamanna. Leikurinn hefst klukkan 17:30 að íslenskum tíma á morgun.
Baptista ekki til Arsenal
Sókanarmiðjumaður spænska liðsins Sevilla, Julio Baptista hefur engan áhuga á að að ganga til liðs við enska liðið Arsenal. Baptista, sem er brasilískur vill vera kyrr á Spáni og fá spænskt vegabréf. Arsene Wenger, knattspyrnusjóri Arsenal er hins vegar sagður ekki vera búinn að gefa upp alla von.
Fimm í eins leiks bann
Fimm leikmenn í Landsbankadeildinni voru í gær dæmdir í eins leiks bann. Davíð Þór Viðarsson FH og Sölvi Sturluson úr KR voru reknir af velli en Bjarnólfur Lárusson KR fær leikbann vegna 6 gulra spjalda og Eyjamennirnir Andri Ólafsson og Heimir Snær Guðmundsson vegna fjögurra gulra spjalda.
Helgi Sig lék gegn Barcelona
Helgi Sigurðsson og félagar í danska knattspyrnuliðinu AGF Aarhus máttu þola 0-4 tap á mánudagskvöld gegn spænska stórliðinu Barcelona en leikurinn var liður í undirbúningsferð Barca í Danmörku. Helgi var ekki í byrjunarliði AGF í leiknum en kom inn á í síðari hálfleik.
Leikur við Venesúela í lausu lofti
Knattspyrnusamband Venesúela segir á heimasíðu sinni að landsleik milli Íslands og Venesúela í knattspyrnu, sem fyrirhugaður var 17. ágúst, hafi verið aflýst.Geir Þorsteinsson, framkvæmadstjóri knattspyrnusambands Íslands, segir þessa tilkynningu ótímabæra
Stuttgart í undanúrslit
Stuttgart sigraði Bayern München í undanúrslitum þýska deildarbikarsins 2-1 í kvöld í Alianz Arena nýja heimavelli Bayern München. Roy Makaay gerði mark Bayern en þeir Hitzlsperger og Stranzl mörk Stuttgart sem er stjórnað af Giovanni Trapatoni fyrrum þjálfara Bayern München.
Bjarni Þór var bestur í Svíþjóð
Mótshaldarar alþjóðlega U18 mótsins sem fram fór í Falkenberg í Svíþjóð völdu Bjarna Þór Viðarsson fyrirliða Íslenska liðsins besta leikmann mótsins. Bjarni Þór hlaut að launum veglegan bikar.
Þórður ætlar sér í landsliðið á ný
Með tilkomu nýs þjálfara hjá Stoke City, Johan Boskamp, hefur Þórður Guðjónsson fengið fleiri tækifæri með liðinu, en hann var ekki í náðinni hjá forvera Boskamp,Tony Pulis. "Ég ætla mér að vinna mér sæti í liðinu aftur og vonandi dugar frammistaða mín í vetur með Stoke City til þess að komast í hópinn á nýjan leik," segir Þórður.
Nunez kominn til Celta Vigo
Antonio Nunez hefur skrifað undir þriggja ára samning við spænska liðið Celta Vigo en hann kemur frá Evrópumeisturum Liverpool. Nunez er því aftur kominn í spænska boltann eftir misheppnaða dvöl á Anfield.
Figo til Inter?
Ítalska liðið Internazionale leiðir kapphlaupið um miðjumanninn Luis Figo hjá Real Madrid samkvæmt fréttum fjölmiðla á Ítalíu í gær. Enska liðið Liverpool er þó enn í baráttunni um leikmanninn.
Stelpurnar steinlágu gegn Finnum
Íslenska landsliðið í knattspyrnu kvenna 21 árs og yngri tapaði fyrir Finnum 4-1 í leik um 5. sætið á Norðurlandamótinu í Svíþjóð í dag. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði mark Íslands.
Bolton að styrkja sig
Enska úrvalsdeildarliðið Bolton Wanderes heldur áfram að styrkja sig með nýjum leikmönnum og nú hefur liðið fengið til sín Abdoulaye Diagne-Faye frá Lens í Frakklandi á lánssamningi til eins árs.
Anderlecht burstaði Nefchi
FH banarnir í Nefchi fengu slæman skell í Belgíu í kvöld er liðið tapaði 5-0 fyrir Anderlecht í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Seinni leikur liðanna verður í Azerbadjan eftir rúma viku. Þá sigruðu Árni Gautur Arason og félagar hans í norska liðinu Valerenga lið Haka frá Finnlandi 1-0 en leikurinn fór fram í Noregi.
Davids til Tottenham
Hollendingurinn Edgar Davids, sem er á mála hjá Inter Milan gengur að öllum líkindum til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Tottenham síðar í vikunni. "Hann er mjög fjölhæfur miðjumaður, hann vinnur boltann, hann getur stjórna spili liðs, með frábært úthald og magnað persónuleika," sagði Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham um Davids.
Anderlecht 2-0 yfir gegn Neftchi
Anderlecht frá Belgíu er komið 2-0 yfir eftir aðeins 23 mínútna leik gegn FK Neftchi frá Aserbaídjan í forkeppni Meistaradeildar Evrópu en það var einmitt FK Neftchi sem sló út FH-liðið 4-1 samanlagt í fyrstu umferðinni. Mörkin skoruðu Tihinen á 20. mínútu og Jestrovic á 23. mínútu.
Liverpool yfir í hálfleik
Liverpool er yfir í hálfleik gegn Kaunas í Litháen 2-1 í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Baravicius kom Kaunas yfir en þeir Cisse og Carrager gerðu mörk Liverpool.
Inzaghi ætlar að hjálpa Gilardino
Filippo Inzaghi, sóknarmaður AC Milan, segist ekki geta beðið eftir því að fá að spila við hlið Alberto Gilardino sem nýgenginn er í raðir félagsins. Gilardino var keyptur frá Parma fyrir 17,2 milljónir punda en hann er 23 ára. Inzaghi segist vera rétti maðurinn til að kenn honum enn meira.
Nýliðar Wigan fá Henchoz
Wigan Athletic, nýliðarnir í ensku úrvalsdeildinni, hafa náð samkomulagi við svissneska landsliðsmanninn Stephane Henchoz. Þessi fyrrum varnarmaður Liverpool hefur undanfarna viku æft með Wigan og náði að sannfæra knattspyrnustjórann Paul Jewell um að hann sé vænlegur kostur.
Man Utd sigraði Peking
Manchester United sigraði Peking Hyundai 3-0 í hádeginu í dag í Kína en liðið er statt þar í æfingaferð. Paul Scholes gerði tvö marka United en nýji maðurinn Park ji-sung frá Suður Kóreu gerði þriðja markið en það var hans fyrsta í United búningi.
Liverpool sigraði 3-1
Liverpool sigraði lið Kaunas frá Litháen 3-1 í Litháen í annarri umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Kaunas komst yfir með marki frá Baravicius en þeir Cisse, Carrager og Gerrard úr víti svöruðu fyrir Liverpool.
Hlutbréf í Newcastle rjúka upp
Hlutabréf í enska úrvalsdeildarliðinu Newcastle hækkuðu um tæp 18% í dag eftir að orðrómur komst á kreik um að tveir fjárfestar hefðu hug á að kaupa 28,5% hlut Sir John Hall, eins aðaleigenda félagsins og fyrrverandi stjórnarformanns.
Liverpool gegn Kaunas í kvöld
Allt bendir til þess að miðjumaðurinn Steven Gerrard verði orðinn klár fyrir Evrópuleik Liverpool gegn Kaunas í kvöld. Hann þurfti að hætta á æfingu á mánudagskvöld vegna meiðsla á ökkla en er líklegast klár fyrir leik kvöldsins.
Vassel til Man. City
Darius Vassell, landsliðsmaður Englands í knatttspyrnu er genginn til liðs við Manchester City frá Aston Villa. Kaupverðið á kappanum sem er 25 ára gamall er um 2,5 milljónir punda. Vassell hefur gert 6 mörk í 22 landsleikjum fyrir England.
Eiður Smári góður gegn AC Milan
Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Chelsesa, sem vann 1-0 sigur á AC Milan í æfingaleik í Bandaríkjunum í gærkvöldi.
Rætt við Essien í þessari viku
Peter, Kenyon, stjórnarformaður Chelsea, segir að félagið muni ræða við Mickael Essien, leikmann Lyon, síðar í þessari viku með hugsanleg félagsskipti í huga.
Öruggur sigur Arsenal
Arsenal burstaði austuríska liðið Ritzing í æfingaleik ytra í gær, 2-5. Það voru þeir Thierry Henry, Dennis Bergkamp, Jose Reyes, Alexander Hleb og Sebastian Larson sem skoruðu mörk Arsenal í leiknum.