Fótbolti á Norðurlöndum

Fréttamynd

Tímabilinu lokið hjá Ólafi Inga

Íslenski landsliðsmaðurinn Ólafur Ingi Skúlason þarf að fara í aðgerð vegna hnémeiðsla. Það er því ljóst að hann mun ekki spila meira á þessari leiktíð með Helsingborg í sænsku deildinni.

Fótbolti
Fréttamynd

Meistararnir unnu

IFK Gautaborg vann 2-0 sigur á AIK í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld en Djurgården gerði markalaust jafntefli við GAIS í Íslendaslag.

Fótbolti
Fréttamynd

Theodór Elmar skoraði og sá rautt

Theodór Elmar Bjarnason skoraði sitt fyrsta mark í norsku úrvalsdeildinni er hann kom sínum mönnum í 1-0 forystu gegn Strömsgodset sem vann þó leikinn á endanum, 2-1.

Fótbolti
Fréttamynd

Bröndby í úrslitin

Bröndby tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik dönsku bikarkeppninnar þegar liðið vann 2-0 sigur á Midtjylland í síðari viðureign liðanna í undanúrslitum. Stefán Gíslason var að venju í liði Bröndby í kvöld og mætir liðið Esbjerg í úrslitum keppninnar.

Fótbolti
Fréttamynd

Djurgården á toppinn

Sigurður Jónsson og lærisveinar hans í sænska liðinu Djurgården skutust í kvöld á topp úrvalsdeildarinnar þegar þeir gerðu 1-1 jafntefli við Örebro á útivelli. Sölvi Geir Ottesen var í byrjunarliði Djurgården.

Fótbolti
Fréttamynd

Brann gerði jafntefli

Brann og Strömsgodset gerðu 1-1 jafntefli í norsku úrvalsdeildinni í kvöld. Ólafur Örn Bjarnason lék allan leikinn fyrir Brann en Kristján Örn Sigurðsson tók út leikbann.

Fótbolti
Fréttamynd

Hannes skoraði í fyrsta sigri GIF Sundsvall

GIF Sundsvall og Ljungskile mættust í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Bæði lið voru án stiga eftir fyrstu þrjár umferðirnar. Íslendingaliðið Sundsvall var mun sterkara í kvöld og vann 4-0 sigur.

Fótbolti
Fréttamynd

Sölvi tryggði Djurgarden sigur

Djurgarden komst í dag á toppinn í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið lagði Halmstad 2-1. Sölvi Geir Ottesen kom inn sem varamaður hjá Djurgarden og skoraði sigurmarkið í leiknum.

Fótbolti
Fréttamynd

Stefán skoraði í sigri Bröndby

Stefán Gíslason skoraði annað marka Bröndby í dag þegar liðið vann nauman 2-1 sigur á Esjberg í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Liðið er í sjöunda sæti deildarinnar.

Fótbolti
Fréttamynd

Meistararnir á toppnum

Meistarar Gautaborgar unnu í dag 4-0 sigur á Norrköping í upphafsleik 4. umferðar sænsku úrvalsdeildarinnar. Hjálmar Jónsson og Ragnar Sigurðsson voru báðir í byrjunarliði Gautaborgar í leiknum. Gunnar Þór Gunnarsson kom inn sem varamaður hjá Norrköping þegar skammt var til leiksloka en Garðar Gunnlaugsson sat allan tímann á bekknum.

Fótbolti
Fréttamynd

Bröndby í góðum málum

Stefán Gíslason og félagar í danska liðinu Bröndby standa vel að vígi í undanúrslitaeinvíginu í bikarkeppninni eftir 3-0 sigur á Midtjylland í fyrri leik liðanna í gærkvöld. Stefán lék allan leikinn með Bröndby. Í hinum undanúrslitaleiknum tapaði FCK óvænt fyrir Esbjerg á heimavelli 1-0 í fyrri leik liðanna.

Fótbolti
Fréttamynd

Rúrik verður frá í þrjár vikur

Rúrik Gíslason, leikmaður Viborg í Danmörku, verður frá keppni í þrjár vikur vegna ökklameiðsla sem hann varð fyrir í markalausu jafntefli liðsins við AGF í gær.

Fótbolti
Fréttamynd

Hannes skoraði tvö í tapi Sundsvall

Hannes Þ. Sigurðsson hefur opnað markareikning sinn fyrir sænska liðið GIF Sundsvall. Hann skoraði tvö af mörkum liðsins þegar það tapaði 5-3 fyrir Hammarby í kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

Birkir skoraði í tapleik Bodö/Glimt

Birkir Bjarnason skoraði fyrir Bodö/Glimt sem tapaði fyrir Lyn í norska boltanum í dag. Lyn vann 3-1 en Birkir kom inn sem varamaður í leiknum og minnkaði muninn með eina marki Bodö/Glimt.

Fótbolti
Fréttamynd

Ragnar kom Gautaborg á bragðið

Landsliðsmaðurinn Ragnar Sigurðsson skoraði fyrsta mark Gautaborgar sem vann Örebro 4-1 í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Gautaborg hefur fjögur stig að loknum tveimur leikjum.

Fótbolti
Fréttamynd

Kristján sá rautt í tapi Brann

Kristján Örn Sigurðsson fékk að líta rauða spjaldið er leikmenn Álasunds skoruðu öll sex mörkin í 4-2 sigri liðsins á Brann í norsku úrvalsdeildinni.

Fótbolti