Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar
21 22 23 24 25 26 27 28 29 … 37 ›
Þakklát eftir fund með „viljugum“ Bjarna Sylvía Briem Friðjónsdóttir, sem síðustu daga hefur vakið athygli bágri stöðu nýbakaðra foreldra í tengslum við leiksólapláss og fæðingarorlof, átti fund með forsætisráðherra í dag og fór yfir stöðuna. Innlent 24.6.2024 16:58
FA gagnrýnir reglugerð Willums Þórs harðlega Ljóst er að þeir hjá Félagi atvinnurekenda vita vart hvort þeir eiga að hlæja eða gráta vegna ákvæðis í drögum að reglugerð Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra þess efnis að pakka beri inn öllu tóbaki í einsleitar umbúðir. Innlent 24.6.2024 16:34
Sterkari grunnskóli með gjaldfrjálsum skólamáltíðum Samkvæmt upplýsingum frá umboðsmanni barna hefur töluvert verið rætt um skólamál og skólamáltíðir á barnaþingum liðinna ára. Áhersla barnanna sjálfra hefur þar verið lögð á að hollur og góður matur eigi að vera ódýrari og að boðið sé upp á fjölbreyttara og betra fæði í skólanum. Skoðun 24.6.2024 14:31
Forsætisráðherra vill ekki víkja fyrir forsetanum á 17. júní Bjarni Benediktsson telur ekki tímabært að breyta þeirri hefð að forsætisráðherra flytji ávarp við hátíðarhöld á Austurvelli hinn 17. júní og í hans stað flytji forsetinn ávarp eins og Guðni Th. Jóhannesson lagði til við frestun þingfunda. Hins vegar komi til álita að útbúa aðstöðu fyrir forsetann á Þingvöllum eins og Guðni lagði til. Innlent 24.6.2024 14:20
Gefa út kynjað skuldabréf Ríkissjóður Íslands hefur gefið út kynjað skuldabréf að fjárhæð fimmtíu milljónir evra, jafnvirði um 7,5 milljarða króna. Íslands er með útgáfunni orðið fyrsta þjóðríki heimsins sem gefur út kynjað skuldabréf. Viðskipti innlent 24.6.2024 12:25
Vandar um við Sigmund Davíð Henry Alexander Henrysson heimspekingur hefur áhyggjur af því að ný Mannréttindastofnun Íslands, verði flokkspólitískum deilum og glósum að bráð. Innlent 24.6.2024 10:08
Mótmæla brottvísun Yazans á Austurvelli Fjöldi fólks kom saman á Austurvelli í dag til að mótmæla brottvísun Yazans Tamimi, ellefu ára palestínsks drengs með vöðvarýrnunarsjúkdóm. Innlent 23.6.2024 18:13
Andrúmsloftið í ríkisstjórninni hafi lagast eftir að Katrín hætti Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins segir Bjarna Benediktsson eiga mjög mikið undir við að halda ríkisstjórnarsamstarfinu gangandi fram yfir næsta vor. Það sé augljós djúpstæður ágreiningur innan þess en þau fái núna, við þinglok, nokkrar vikur til að jafna sig á því. Hann muni þó taka sig aftur upp þegar þing kemur aftur saman í ágúst. Innlent 23.6.2024 16:00
Rektor HR segir mikilvægt að verja valfrelsi nemenda Alls útskrifuðust 692 nemendur frá Háskólanum í Reykjavík í gær með alls 701 prófgráðu. Í ræðu sinni ræddi Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, meðal annars þá ákvörðun HR fyrr á árinu að afnema ekki skólagjöld, í kjölfar tilboðs frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu um fulla fjármögnun ríkisins gegn afnámi skólagjalda. Innlent 23.6.2024 13:11
Fann í hjarta sér að baráttan væri fullreynd Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna til fjölda ára hefur yfirgefið flokkinn, vegna þess sem hún kallar svik flokksins við eigin stefnu. Hún segist hafa fundið að fullreynt væri að berjast fyrir hugsjón sinni innan flokksins. Þrátt fyrir úrsögn sína úr flokknum sé hún ekki hætt afskiptum af stjórnmálum. Innlent 23.6.2024 11:52
Ráðherra ber mikla ábyrgð Það er mikil andstaða við sjókvíaeldi í Seyðisfirði. 75% íbúa eru andvíg því og það er staðfest í skoðanakönnun Múlaþings. Skoðun 23.6.2024 11:00
Umfangsmiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu samþykktar Alþingi samþykkti í gærkvöldi frumvarp félags- og vinnumarkaðsráðherra um umfangsmiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu. Alls munu 95 prósent örorkulífeyrisþega fá hærri greiðslur í nýja kerfinu. Innlent 23.6.2024 09:54
Lilja Rafney segir sig úr VG vegna svika flokksins Lilja Rafney Magnúsdóttir varaþingmaður Vinstri grænna hefur sagt sig úr flokknum. Það gerði Lilja Rafney eftir að samþykkt var á þingi frumvarp um kvótasetningu grásleppu. Í aðsendri grein segir Lilja Rafney að hún segi sig úr flokknum vegna svika hans við eigin sjávarútvegsstefnu. Innlent 23.6.2024 07:32
Lagði til breytingar á ræðuhöldum á sautjánda júní Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands lagði til að forsetinn héldi ræðu á Austurvelli á þjóðhátíðardaginn í stað forsætisráðherra eins og tíðkast hefur. Þetta sagði hann þegar hann frestaði þingfundum 154. löggjafarþings á fyrsta tímanum í nótt. Fundum Alþingis verður fram haldið þann tíunda september. Innlent 23.6.2024 00:29
Ríkisstjórnin hafi séð um það sjálf að stúta eigin málum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar segir stjórnarandstöðuna hafa fengið verulega samkeppni í stjórnarandstöðu frá þingliði ríkisstjórnarflokkanna. Hún segir ljóst að ríkisstjórnin hefði ekki getað klárað mörg mál án aðstoðar stjórnarandstöðunnar. Innlent 22.6.2024 19:44
Auka við listamannalaun í fyrsta sinn í fimmtán ár Alþingi samþykkti í dag breytingu á lögum um listamannalaun sem fela í sér fjölgun launasjóða sem starfslaun eru veitt úr og umtalsverða fjölgun árlegra úthlutunarmánaða. Fjöldi starfslauna hefur verið óbreyttur í fimmtán ár frá því að lögin tóku gildi árið 2009. Innlent 22.6.2024 14:43
Langur dagur í vændum á þinginu en líklega sá síðasti Forseti Alþingis á von á því að þingið geti lokið störfum sínum fyrir sumarhlé í dag. Þó sé viðbúið að umræður vari langt fram á kvöld, og þingmenn séu meðvitaðir um að sú staða geti komið upp að þing þurfi að koma saman eftir helgi. Innlent 22.6.2024 10:14
„Veit ekki hvað þeim gengur til með þessu“ Fulltrúi Flokks fólksins í velferðarnefnd lagði í kvöld fram breytingartillögur við frumvarp um öryrkjulífeyriskerfi almannatrygginga. Tillögurnar eru ekki hluti af samkomulagi stjórnarandstöðu og stjórnarflokka sem gert var til að ljúka þingstörfum. Þingmaður Vinstri grænna segir að líta megi á tillögurnar sem rof á samkomulagi en Inga Sæland segir það af og frá og segir að ekki standi til að tefja þingstörf. Innlent 21.6.2024 23:58
Segja lögreglu hafa gætt stillingar við mótmælin í Skuggasundi Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu telur engar vísbendingar uppi um mögulega refsiverða eða ámælisverða háttsemi starfsmanna lögreglu við mótmælin í Skuggasundi í síðasta mánuði. Lögregla er sögð hafa gætt meðalhófs í aðgerðum sínum. Innlent 21.6.2024 17:50
Sigmundur Davíð furðu lostinn yfir nýrri mannréttindastofnun Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins er furðu lostinn vegna mannréttindastofnunar sem samþykkt var í dag á þinginu að koma á koppinn. Innlent 21.6.2024 14:32
Vísar á heilbrigðisráðherra að borga bílastæðagjöldin Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra vísar því til Willums Þór Þórssonar heilbrigðisráðherra að skoða hvort Sjúkratryggingar geti mætt þeim aukna kostnaði sem ný bílastæðagjöld á innanlandsflugvöllum valda landsbyggðarfólki á leið í læknisheimsóknir. Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Þorgríms Sigmundssonar, varaþingmanns Miðflokksins úr Norðausturkjördæmi, á Alþingi í gær. Innlent 21.6.2024 11:11
Þinglokasamningar í höfn: Lögreglulögin fljúga í gegn með breyttum örorkulífeyri Formenn þingflokkanna náðu rétt fyrir miðnætti í gær saman um afgreiðslumála fyrir frestun funda Alþingis. Stefnt er að þingfrestun á morgun. Samkvæmt upphaflegri starfsáætlun Alþingis átti þingfrestun að vera fyrir viku síðan. Innlent 21.6.2024 10:21
Stærstu mál þingsins munu rata í ruslið Margir eru hugsi eftir vantrauststillögu sem lögð var fram á hendur Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur í gær. Bjarkey sat rjóð í kinnum, en hún sat fast og taldi sig eiga inni það að stjórnarflokkarnir myndu verja hana. Sem þeir og gerðu, allir nema einn. Jón Gunnarsson sat hjá og þung orð féllu. Innlent 21.6.2024 09:31
Lögreglustjórar og dómarar mótmæla launafrumvarpi Bjarna Lögreglustjórafélag Íslands og Dómstólasýslan mótmæla harðlega frumvarpi forsætisráðherra um laun æðstu embættismanna landsins og segja ótækt að sömu reglur gildi um lögreglustjóra og dómara og gilda um kjörna fulltrúa. Innlent 21.6.2024 06:51
Stjórnarflokkarnir séu farnir að stilla sér upp fyrir kosningabaráttu Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði segir að, þó að Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir hafi varist vantrausti með talsverðum meirihluta, varpi atkvæðagreiðslan enn skærara ljósi á þá úlfúð og óeiningu sem ríkir í ríkisstjórnarsamstarfinu. Innlent 20.6.2024 21:15
Formanni VG ekki skemmt yfir ræðu Jóns á þingi í dag Jón Gunnarsson sat einn stjórnarþingmanna hjá í atkvæðagreiðslu um vantraust á matvælaráðherra og sagði þingflokk Vinstri Grænna varla hæfan til þingsetu. Heimir Már Pétursson, fréttamaður, ræddi við Jón og Guðmund Inga á Alþingi í Kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Innlent 20.6.2024 20:01
Jón hafi fengið leyfi til að hrauna yfir Bjarkeyju og VG Oddný G. Harðardóttir þingkona Samfylkingarinnar furðar sig á stórum orðum Jóns Gunnarssonar í umræðum um vantraust á hendur matvælaráðherra, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, í dag. Jón sat hjá í atkvæðagreiðslu um vantraust einn stjórnarliða. Innlent 20.6.2024 18:58
„Ég er mjög ósátt við það að hann kjósi að sitja hjá” Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra og þingkona Vinstri grænna er ekki sátt við Jón Gunnarsson þingmann Sjálfstæðisflokksins og hjásetu hans í atkvæðagreiðslu um vantrauststillögu á hendur henni sem greitt var atkvæði um á þingi í dag. Innlent 20.6.2024 17:22
Landsmenn fái að skila umsögnum um þá sem vilja ríkisborgararétt Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir að sér þætti eðlilegt ef landsmönnum gæfist kostur á að senda umsagnir um þá einstaklinga sem Alþingi greiðir atkvæði um hvort fái ríkisborgararétt hér á landi. Innlent 20.6.2024 16:58
Loks eignast Ísland mannréttindastofnun Nú hillir undir samþykkt Alþingis á frumvarpi okkar Vinstri grænna um að setja á fót Mannréttindastofnun Íslands. Um er að ræða nýja stofnun sem heyrir undir Alþingi sem verður sjálfstæð og óháð stofnun með sambærilegum hætti og umboðsmaður Alþingis og ríkisendurskoðandi. Ísland er eitt örfárra ríkja í Evrópu sem ekki hefur sjálfstæða mannréttindastofnun. Nú breytist það sem er mikið fagnaðarefni. Skoðun 20.6.2024 14:31