Gjaldþrot Skagans 3X
Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember
Hópur fjárfesta hefur náð samkomulagi um kaup á öllum búnaði og lausafé þrotabús Skagans 3X á Akranesi. Auk þess munu þeir taka á leigu mikið af þeim húsakosti sem fyrirtækið bjó yfir í því skyni að hefja þar aftur rekstur. Þetta kemur fram í tilkynningu um kaupin, en það er nýtt félag, KAPP Skaginn ehf., sem er kaupandi.
Sýna áhuga á eignum Skagans 3X
Blandaður hópur fjárfesta og sérfræðinga hefur sýnt áhuga á að kaupa eignir Skagans 3X á Akranesi úr þrotabúi og hefja aftur starfsemi í bænum.
Kröfur upp á um 13 milljarða í þrotabú Skagans 3X
Gerðar hafa verið kröfur í þrotabú Skagans 3X sem nema um þrettán milljörðum króna. Fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota í júlí. Stærstu kröfurnar í búið eru almennar kröfur sem nema um níu milljörðum. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag. Frestur til að lýsa kröfu í búið rann út á mánudag í þessari viku.
Tilboð berast í eignir þrotabúsins: „Alltaf með símann opinn ef menn hafa áhuga“
Borist hafa nokkur tilboð í ýmsar eignir þrotabús Skagans 3X á Akranesi sem verið er að yfirfara og bera saman. Ekkert nýtt tilboð hefur borist í allar eignir þrotabúsins í heilu lagi síðan ljóst varð að slíkt tilboð sem var til skoðunar næði ekki fram að ganga. Skiptastjóri segir fasteignirnar sem hýst hafi starfsemi fyrirtækisins vera þrotabúinu óviðkomandi þótt þær hafi verið forsenda í tilboðinu sem ekki varð að veruleika.
Bæjarstjórn hefur ekki gefið upp von um endurreisn Skagans 3X
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar lýsir yfir miklum harmi yfir þeirri stöðu sem upp er komin í máli Skagans 3X en hún hefur þó ekki gefið upp alla von um endurreista starfsemi fyrirtækisins á Akranesi.
Enginn byggi upp fyrirtæki til að standa í veg fyrir endurreisn þess
Grenjar ehf., sem er eigandi fasteigna á Akranesi sem félagið Skaginn 3X leigði fyrir starfsemi sína, hafna því að endurreisn síðarnefnda félagsins hafi ekki náð fram að ganga vegna þess að ekki náðist samkomulag við félagið. Sárt sé að sitja undir „uppspuna og óhróðri“ um slíkt.
„Þetta var bara okkar líf og nú er það farið“
Starfsfólk Skagans 3X er í áfalli þar sem tilraunir til að selja fyrirtækið í heilu lagi hafa ekki gengið eftir. Útlit er fyrir að starfsemin verði seld í bútum.
Ósáttur við að fyrrum eigandi Skagans 3X standi í vegi endurreisnar
Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir fyrrum eigendur fyrirtækisins Skagans 3X skulda Skagamönnum skýringar á því hvað hafi komið í veg fyrir að hægt væri að semja um sölu á eignum til aðila sem voru áhugasamir um að halda starfseminni áfram.
Gríðarlegir hagsmunir í húfi fyrir sjávarútveg að Skaginn 3X lifi
Gjaldþrot Skagans 3X á Akranesi hefur gríðarleg áhrif á sjávarútveg hér á landi og mikilvægt að fyrirtækið verði endurreist að sögn fyrrverandi verkstjóra. Það þurfi að hafa hraðar hendur svo sérhæfing glutrist ekki niður. Skiptastjóri segir horft til tilboðs sem feli það í sér en fleiri en hann þurfi að samþykkja það.
Laðar fjárfesta að til að halda Skaganum á Skaganum
Bæjarstjóri Akraness segir bæjarstjórn gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að halda Skaganum 3X í bænum.
Annað tilboð borist í Skagann 3X
Tvö tilboð hafa nú borist í rekstur og eignir úr þrotabúi Skagans 3X á Akranesi, samkvæmt heimildum fréttastofu. Helgi Jóhannesson skiptastjóri fundaði með Íslandsbanka í gær varðandi áður komið tilboð.
Búið að bjóða í Skagann 3X
Formlegt tilboð barst í þrotibú Skagans 3X í gærkvöldi. Þetta staðfestir Helgi Jóhannesson skiptastjóri í þrotabúsins í samtali við fréttastofu, en Skessuhorn greindi fyrst frá.
Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X
Helgi Jóhannesson, skiptastjóri þrotabúsins Skagans 3X, segir að mikill áhugi sé á fyrirtækinu. Margir hafi sett sig í samband við hann og viðrað verðhugmyndir og önnur tilboð. Tilboð hafa borist í hluta eignanna, en ekki hefur borist heildartilboð í allar eignirnar og reksturinn.
Segir Akranes verða svefnbæ
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir nánast alla atvinnustarfsemi á Akranesi vera farna og að stefni í að bærinn verði aðeins náttstaður íbúa. Rúmur fjórðungur Skagamanna sæki þegar atvinnu til Reykjavíkur og þörf sé á aðgerðum til að sporna við þessari þróun.
Vaknaði með tíu ósvöruð símtöl og frétti svo af uppsögninni
Næstum hundrað og þrjátíu manns misstu vinnuna hjá fyrirtækinu Skaganum 3x, sem óskaði eftir gjaldþrotaskiptum í dag. Uppsagnirnar eru áfall fyrir Akranesbæ segir bæjarstjórinn en starfsmaður segir fréttirnar hafa komið flatt upp á sig þegar hann vaknaði í morgun.
Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg
Haraldur Benediktsson segir gjaldþrot Skagans 3X sem sagði upp öllum 128 starfsmönnum sínum í morgun vera mikið áfall, ekki bara fyrir bæinn heldur íslenskan sjávarútveg í heild sinni.
Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota
Öllum 128 starfsmönnum Skagans 3x var sagt upp í dag. Skaginn 3x er hátæknifyrirtæki sem framleiðir tæki fyrir matvælaframleiðslu aðallega í sjávarútvegi. Vilhjálmur Birgisson formaður verkalýðsfélags Akraness, segir ekkert sveitarfélag hafa orðið fyrir jafnmiklum hamförum í atvinnumálum undanfarið, að Grindvíkingum undanskildum.