Stj.mál
98 99 100 101 102 103 104 105 106 … 187 ›
Breytingar á ríkisstjórninni Jean Pierre-Raffarin, forsætisráðherra Frakklands, sagði í morgun að breytinga væri að vænta á ríkisstjórn landsins. Hann fór ekki nánar út í þau mál en fyrir kosningarnar um stjórnarskrá Evrópusambandsins var því gert skóna að Raffarin þyrfti að biðjast lausnar yrði stjórnarskráin felld, eins og nú hefur komið á daginn. Innlent 13.10.2005 19:17
Hollendingar hafni stjórnarskránni Ef fer sem horfir munu Hollendingar hafna stjórnarskrá Evrópusambandsins í kosningunum sem fram fara í landinu á miðvikudag. Ný könnun á fylgi Hollendinga við stjórnarskrána sem birt var í dag sýnir að 65 prósent landsmanna séu mótfallin skránni en aðeins 20 prósent með henni. Erlent 13.10.2005 19:17
Barist um sæti Vinstri-grænna Búist er við því að fleiri en núverandi borgarfulltrúar Vinstri-grænna í Reykjavík munu blanda sér í slaginn ef flokkurinn efnir til prófkjörs í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Innlent 13.10.2005 19:17
Ekki mikil áhrif fyrir Íslendinga Höfnun Frakka á stjórnarskrá Evrópusambandsins hefur engin sérstök áhrif fyrir Íslendinga. Þetta segir Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmálafræðingur við Háskóla Íslands. Innlent 13.10.2005 19:17
Ekki áhrif á stækkun ESB Talsmaður Evrópusambandsins segir að framkvæmdastjórnin vilji ekki að fall stjórnarskrár sambandsins í kosningunum í Frakklandi í gær hafi áhrif á stækkun þess. Jacques Chirac Frakklandsforseti hefur gefið í skyn að hann kunni að reka Jean-Pierre Raffarin forsætisráðherra í kjölfar niðurstöðunnar. Erlent 13.10.2005 19:17
S-hópurinn fékk milljarða að láni Landsbankinn lánaði félögum innan S-hópsins milljarða króna áður en bankinn var seldur Samson. Lánið var á góðum kjörum og var notað til að greiða fyrri greiðslu S-hópsins í Búnaðarbankanum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:17
Fagnar frestun ráðherra Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, fagnar því að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra fresti fyrirhugaðri styttingu stúdentsnámsins. Innlent 13.10.2005 19:17
Forsetar ræðast við A. P. J. Abdul Kalam, forseti Indlands, kom til landsins í gær í fyrstu opinberu heimsókn indversks forseta til Íslands. Kalam hittir Ólaf Ragnar Grímsson forseta á Bessastöðum fyrir hádegi í dag. Innlent 13.10.2005 19:17
Forseti Indlands kominn Dr. Abdul Kalam, forseti Indlands, er kominn til landsins en flugvél hans lenti á fjórða tímanum. Hann mun í kvöld eiga viðræður við hóp íslenskra vísinda og fræðimanna og þá mun hann einnig hitta stjórnarmenn í Íslensk-indverska verslunarráðinu. Opinber heimsókn hans hefst svo í fyrramálið með móttökuathöfn að Bessastöðum og stendur hún fram á þriðjudagskvöld. Innlent 13.10.2005 19:17
Íslenskukrafan ekki til að stjórna Björn Bjarnason dómsmálaráðherra er ósammála þeirri skoðun Guðrúnar Guðmundsdóttur mannfræðings, sem kom fram í Fréttablaðinu í gær, að krafan um íslenskukunnáttu sé leið til að hafa betri stjórn á fólki. Innlent 13.10.2005 19:17
Auglýstur að nefnd forspurðri Ríkisstjórnin ákvað að auglýsa Búnaðarbankann til sölu um leið og Landsbankann að einkavæðingarnefnd forspurðri. Þetta segir í úttekt Fréttablaðsins á sölu ríkisins á bönkunum. Formaður Vinstri grænna krefst opinberar rannsóknar. Innlent 13.10.2005 19:17
Frakkar sögðu nei við Chirac Kjörsókn var prýðisgóð í þjóðaratkvæðagreiðslunni í Frakklandi um stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins enda eru skoðanir fólks um plaggið afar skiptar. Andstæðingar sáttmálans átöldu ríkisstjórnina fyrir gegndarlausan áróður en stuðningsmennirnir kvörtuðu undan ómálefnalegri kosningabaráttu. Erlent 13.10.2005 19:17
Úthafskarfi í hættu vegna ofveiði Úthafskarfastofnarnir eru í hættu vegna ofveiði og ofveiðin leiðir til verðhruns á mörkuðum. Hvort tveggja er alvarlegt fyrir Íslendinga því að veiðarnar hafa skilað þjóðarbúinu þremur til fjórum milljörðum króna árlega. Á sama tíma eru sjóræningjar að útmá stofninn á Reykjaneshrygg. Innlent 13.10.2005 19:17
R-lista viðræðum verður framhaldið Vinstri hreyfingin grænt framboð vill halda áfram viðræðum um framtíð R-listans í Reykjavík. Félagsfundur hjá VG í Reykjavík samþykkti ályktun þessa efnis í gær en ljóst er að flokkurinn leggur þunga áherslu á jafna skiptingu sæta á hugsanlegum framboðslista R-listans. Innlent 13.10.2005 19:17
Sala bankanna verði rannsökuð Stjórnarandstaðan segir greinar Fréttablaðsins um sölu ríkisbankanna staðfesta vafasöm vinnubrögð ríkisstjórnarinnar í málinu. Forystumenn ríkisstjórnarinnar voru úti á landi og náðist ekki í þá. Innlent 13.10.2005 19:17
Sex daga stríðið um yfirráð í VÍS Halldór Ásgrímsson hótaði Davíð Oddssyni að hætta við einkavæðingu bankanna ef VÍS yrði selt Samson með Landsbankanum. Björgólfur Guðmundsson fundaði með S-hópnum um afdrif VÍS áður en hann keypti Landsbankann. Innlent 13.10.2005 19:17
Styttingu náms frestað um eitt ár Styttingu framhaldsskólanáms verður frestað um eitt ár. Endurskoðuð námsskrá tekur gildi árið 2009. Grunnskólar fá þannig lengri tíma til að undirbúa sig fyrir breytingarnar á framhaldsskólastigi. Menntamálaráðherra tilkynnti þetta í dag. Innlent 13.10.2005 19:16
Vilja innanflokksprófkjör Lagt verður til á félagsfundi Vinstri-grænna í Reykjavík í dag að innanflokksprófkjör verði notað til að velja sex efstu frambjóðendur flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík næsta vor. Skiptir þá engu hvort flokkurinn býður fram undir eigin nafni eða í samstarfi við hina flokkana sem í dag standa að Reykjavíkurlistanum. Innlent 13.10.2005 19:16
Gæti orðið mjótt á munum Mjög mjótt er á mununum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um stjórnarskrá Evrópusambandsins samkvæmt síðustu skoðanakönnun sem birt var í gær. Samkvæmt henni segja 52 prósent Frakka nei við stjórnarskránni en 48 prósent já. Erlent 13.10.2005 19:16
Vísar gagnrýni borgarstjóra á bug Leiðtogi sjálfstæðismanna í Reykjavík vísar alfarið á bug gagnrýni borgarstjóra á hugmyndir þeirra um framtíðarskipulag í borginni. Þær byggist hvorki á hugmyndum annarra né leiði til hærra lóðaverðs. Innlent 13.10.2005 19:16
Kosið um arfleifð Hariri Líbanar ganga í dag að kjörborðinu og kjósa sér nýtt þing í fyrsta sinn eftir að Sýrlendingar hurfu frá landinu með hermenn sína og leyniþjónustu. Erlent 13.10.2005 19:16
Vaxtabótakerfið verði ekki afnumið Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna varar við hugmyndum um afnám vaxtabótakerfisins í ályktun sem félagið sendir frá sér í dag. Þar segir einnig að vaxtabæturnar séu eitt besta tæki sem hið opinbera hafi komið á til að hjálpa einstaklingum til að koma sér þaki yfir höfuðið og dragi þar með úr útgjöldum til húsaleigubóta til lengri tíma litið. Innlent 13.10.2005 19:16
Vissi ekki af Búnaðarbankasölu Framkvæmdanefnd um einkavæðingu hafði samið auglýsingu um sölu á ráðandi hlut í Landsbanka eftir að hafa borist bréf frá Samson í júní 2002. Ráðherranefndin, sem í sátu Davíð Oddsson, Geir H. Haarde, Halldór Ásgrímsson og Valgerður Sverrisdóttir, breytti auglýsingunni eftir fund sinn og auglýsti bankana til sölu að framkvæmdanefndinni forspurðri. Innlent 13.10.2005 19:16
Vill henda kosningakerfunum Best væri að henda rafrænum kosningakerfum sem keypt voru eftir forsetakosningarnar árið 2000 og kaupa í þeirra stað skanna sem flokka og telja atkvæðaseðla. Þetta er mat Lester Sola, yfirmanns kosningakerfisins í Miami-Dade sýslu, sem var í brennidepli vegna talningar atkvæða í kosningabaráttu George W. Bush og Al Gore. Erlent 13.10.2005 19:16
Vilja halda í vaxtabótakerfið Ungir framsóknarmenn leggjast gegn því að vaxtabótakerfið verði afnumið. Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna segir í ályktun að vaxtabætur séu eitt besta tækifæri sem stjórnvöld hafa til að hjálpa fólki við að koma sér þaki yfir höfuðið. Innlent 13.10.2005 19:16
Gleymdist að ræða verðið Ekki var rætt um verðhugmyndir bjóðenda um Landsbankann fyrr en bjóðendurnir sjálfir bentu á það undir lok söluferlisins. Gripið var til þess að setja inn í ferlið "millistig" þar sem skila ætti inn verðhugmyndum. Sigríður Dögg Auðunsdóttir segir hér frá því hvernig framkvæmdanefndin var notuð til að framkvæma vilja ráðherranna. Innlent 13.10.2005 19:16
Endurskoða lög um kynferðisbrot Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur falið Ragnheiði Bragadóttir lagaprófessor að semja drög að frumvarpi um breytingar á kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. Um er að ræða þau ákvæði sem eru um nauðgun og önnur brot gegn kynfrelsi fólks, kynferðisbrot gegn börnum og vændi. Innlent 13.10.2005 19:16
Símtal breytti bankasölunni Selja átti Landsbankann og Búnaðarbankann til almennings og tryggja dreifða eignaraðild. Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson skiptu um skoðun og ákváðu að selja bankana til eins fjárfestis hvorn um sig eftir að Björgólfur Guðmundsson hringdi í Davíð og vildi kaupa annan hvorn bankann. Innlent 13.10.2005 19:16
Tveir nýir sendiherrar Utanríkisráðherra skipaði í dag þá Helga Gíslason prótokollstjóra og Svein Á. Björnsson sendifulltrúa sendiherra í utanríkisþjónustunni frá og með 1. júní næstkomandi. Helgi Gíslason réðst til starfa í utanríkisþjónustunni árið 1970 og hefur m.a. starfað í sendiráðum Íslands í Kaupmannahöfn, Moskvu, París. Sveinn Á. Björnsson réðst til starfa í viðskiptaráðuneytinu árið 1970 og starfaði m.a. sem viðskiptafulltrúi í París á þess vegum. Innlent 13.10.2005 19:16
Skipaði tvo nýja sendiherra Davíð Oddsson utanríkisráðherra hefur skipað þá Helga Gíslason og Svein Á. Björnsson sendiherra frá og með næstu áramótum. Innlent 13.10.2005 19:16
Ragnar um biðlaun annars formanns: „Hvað gerir þessa gæðinga að svo miklu betri mönnum en okkur?“ Innlent