Stj.mál
110 111 112 113 114 115 116 117 118 … 187 ›
Hrikalega óréttlátur skattur Pétur Blöndal, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, ætlar að ná samstöðu meðal þingflokka um að frumvarp Margrét Frímannsdóttur um afnám stimpilgjalds við endurfjármögnun lána verði lögfest fyrir sumarfrí Alþingis, eins og sagt var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Innlent 13.10.2005 19:08
Sagði nýtt þrælahald hér á landi Óprúttnir atvinnurekendur og glæpamenn reka nýja tegund þrælahalds á Íslandi í dag og vitað er um nokkur hundruð erlenda starfsmenn hér á landi sem ekki njóta lágmarksréttinda, segir fyrsti varaformaður Eflingar. Formaður BSRB segir íslenskt samfélag standa á tímamótum og formenn stjórnarflokkanna hafi ekki minnst á atvinnuleysi og slíka hluti þegar þeir voteygir mærðu hvor annan á tíu ára afmæli ríkisstjórnarinnar. Innlent 13.10.2005 19:08
Ríkisstjórnin missir meirihluta Ríkisstjórnin missir meirihlutafylgi samkvæmt nýrri könnun IMG Gallup sem sagt er frá á heimasíðu Ríkisútvarpsins, ruv.is, en stuðningur við stjórnina mælist 49 prósent. Innlent 13.10.2005 19:08
Hefðir og reglur hafa mikil áhrif Kosningabaráttan í Bretlandi er í fullum gangi og lokaspretturinn hafinn. Bresk pólitík byggist á hefðum og reglum sem hafa mikil áhrif á niðurstöður kosninganna. Erlent 13.10.2005 19:08
Undrast synjun Húnvetninga Bæjarstjórinn á Akureyri lýsir undrun yfir synjun Austur-Húnvetninga á ósk Vegagerðar um styttingu hringvegarins fram hjá Blönduósi. Krafa samfélagsins sé að stytta leiðir sem mest, ekki síst til að lækka flutningskostnað. Innlent 13.10.2005 19:08
Vilja ekki styttingu hjá Blönduósi Austur-Húnvetningar hafa synjað Vegagerðinni um að stytta hringveginn um fimmtán kílómetra fram hjá Blönduósi. Ástæðan er sú að þeir telja farsælast fyrir héraðið að vegfarendur aki áfram um Blönduós. Umhverfisráðherra mun hins vegar eiga lokaorðið. Innlent 13.10.2005 19:08
Áform FL Group hafi mikla þýðingu Það hefði gríðarlega þýðingu fyrir atvinnustarfsemi á Suðurnesjum og framtíð alþjóðaflugvallarins í Keflavík ef FL Group lætur verða af áformum um eigin innflutning á flugvélaeldsneyti, segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Innlent 13.10.2005 19:08
Vatnið verði í eigu þjóðarinnar Stjórn BSRB ætlar að leggja til við stjórnarskrárnefnd að það verði bundið í stjórnarskrá lýðveldisins að vatnið í landinu verði í eigu þjóðarinnar og að aðgangur að drykkjarvatni verði talinn mannréttindi. Stjórnin hefur sent stjórnarskrárnefndinni tillögu að stjórnarskrárbreytingu þar sem kveðið er á um þetta. Innlent 13.10.2005 19:08
Stjórnvöld endurskoði afstöðu sína Stjórn BSRB hefur sent frá sér ályktun um málefni Mannréttindaskrifstofu Íslands, en henni var synjað um fjárstuðning frá utanríkisráðuneytinu í vikunni. Í ályktuninni hvetur stjórn BRSB stjórnvöld til að endurskoða afstöðu sína um fjárstuðning við Mannréttindaskrifstofuna og tryggja henni traustan starfsgrundvöll. Erlent 13.10.2005 19:08
Þrír eiga hlutabréf Þingmenn Vinstri-grænna hafa birt lista yfir eignir sínar á heimasíðu sinni. Þrír þeirra eiga hlutabréf. Innlent 13.10.2005 19:08
Ríkið standi aðeins að Rás 1 Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra og fyrrverandi menntamálaráðherra, kemst ansi nálægt því að taka undir með þeim félögum sínum í Sjálfstæðisflokknum sem vilja selja Ríkisútvarpið í pistli á heimasíðu sinni í dag. „Þróunin á fjölmiðlamarkaði og sérstaklega innan ríkisútvarpsins er smátt og smátt að sannfæra mig um, að ríkið eigi í mesta lagi að láta við það eitt sitja að standa fjárhagslega (með framlagi á fjárlögum) að baki rás 1.“ Innlent 13.10.2005 19:08
Ný samkeppnislög fyrir þinghlé Ný samkeppnislög verða keyrð í gegn og lögfest fyrir sumarfrí Alþingis. Þetta varð ljóst í dag þegar stjórnarmeirihlutinn afgreiddi frumvarpið úr þingnefnd. Innlent 13.10.2005 19:08
Friðargæsluliðar aldrei í fríi Friðargæsluliðar eru aldrei í fríi, segir Davíð Oddsson utanríkisráðherra, í tengslum við umræðu um tryggingarmál þeirra sem særðust í árásinni á Kjúklingastræti í Kabúl í fyrra. Innlent 13.10.2005 19:08
Fóru yfir skiptingu vegafjár Áhugi þingmanna höfuðborgarsvæðisins á vegamálum virðist hafa vaknað. Fimm ráðherrar ríkisstjórnarinnar, þeirra á meðal forsætis- og fjármálaráðherra, svo og leiðtogi stærsta stjórnarandstöðuflokksins, mættu allir á skrifstofu vegamálastjóra í dag til að fara yfir skiptingu vegafjár á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 13.10.2005 19:08
Vill að ákvörðun verði endurskoðuð Friðargæsluliðar eru aldrei í fríi, segir utanríkisráðherra, og hvetur til þess að hrundið verði þeirri ákvörðun að synja þeim sem særðust í sjálfsmorðsárásinni í Kabúl um bætur frá Tryggingastofnun. Innlent 13.10.2005 19:08
Norðmönnum hótað málshöfðun Norðmenn verða dregnir fyrir Alþjóðadómsstólinn í Haag vegna Svalbarða. Þessu hótar Davíð Oddsson utanríkisráðherra sem sakar þá um ítrekuð brot og misbeitingu meintra réttinda sinna á svæðinu. Innlent 13.10.2005 19:08
Keppast við að mæra frambjóðendur Stuðningsfylkingum þeirra Össurar Skarphéðinssonar og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur er hlaupið kapp í kinn og seilast þær æ lengra í samlíkingum sinna frambjóðenda við göfuga menn og málefni. Innlent 13.10.2005 19:08
Veltir fyrir sér framboðskostnaði Áleitnar spurningar hafa komið upp í huga Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra varðandi kostnað við framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Davíð upplýsti um þetta á Alþingi í morgun þegar hann flutti munnlega skýrslu um utanríkismál. Innlent 13.10.2005 19:08
Friðargæslumenn aldrei í fríi Davíð Oddsson utanríkisráðherra telur að íslensku friðargæsluliðarnir, sem slösuðust í sprengjuárás í Kabúl í Afganistan í fyrra, eigi rétt á bótum. <font face="Helv"></font> Innlent 13.10.2005 19:08
Vanskil minnka hjá Félagsbústöðum Vanskil skjólstæðinga Félagsbústaða hafa minnkað um rúm tuttugu prósent frá árinu 1997. Framkvæmdastjóri Félagsbústaða telur ástæðuna vera betri innheimtu og að skjólstæðingar sjái sér ekki annað stætt en að standa í skilum. Innlent 13.10.2005 19:08
Mótmælir sköttum á orkufyrirtæki Fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um að fara að leggja tekju- og eignaskatt á orkufyrirtæki, eins og nú liggja fyrir í stjórnarfrumvarpi, myndu leiða til hækkunar á raforkuverði, heitu vatni og vatnsgjaldi til almennings, að mati borgarráðs. Ráðið mótmælti þessum fyrirætlunum ríkisins einróma á fundi sínum í gær og benti meðal annars á að skipulagsbreytingar stjórnvalda á raforkumarkaði hafi nú þegar leitt til hækkunar á raforkuverði. Innlent 13.10.2005 19:08
Orkuskattur leiði til hækkana Fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um að leggja tekju- og eignaskatt á orkufyrirtæki, eins og nú liggja fyrir í stjórnarfrumvarpi, myndu leiða til hækkunar á raforkuverði, heitu vatni og vatnsgjaldi til almennings, að mati borgarráðs. Innlent 13.10.2005 19:08
Skaðleg áhrif á fataiðnaðinn? Evrópusambandið hyggst athuga hvort aukinn innflutningur á klæðnaði sem framleiddur er í Kína skaði evrópskan fataiðnað, að beiðni Frakklands, Ítalíu og Grikklands. Spánverjar hafa auk þess gagnrýnt mikinn innflutning á ákveðnum tegundum fatnaðar. Erlent 13.10.2005 19:08
Fjárhættuspil verði undanskilin Menningar- og menntamálanefnd Norðurlandaráðs leggur til að norrænu ríkin þrýsti á Evrópusambandið að undanþiggja fjárhættuspil þjónustutilskipun sinni. Tilgangurinn er að tryggja að löndin geti hér eftir sem hingað til sett lög um fjárhættuspil og happdrætti. Erlent 13.10.2005 19:07
Siglingaverndarreglur of strangar Samtök atvinnulífsins telja að reglur um svonefnda siglingavernd, sem innleiddar voru hér á landi í kjölfar hryðjuverkaárasanna í Bandaríkjunum árið 2001, séu mun strangari hér á landi en víðast annars staðar og sömuleiðis kostnaður við að framfylgja þeim. Innlent 13.10.2005 19:07
Blair laug og laug Blair laug, og laug svo aftur, segir á forsíðu breska dagblaðsins <em>Daily Mail</em> í dag. <em>Guardian</em> segir að svo virðist sem bæði þing og ríkisstjórn hafi verið blekkt í aðdraganda stríðsins í Írak. Ástæða gagnrýninnar eru leyniskjöl sem lekið hefur verið í fjölmiðla. Erlent 13.10.2005 19:07
Ríkisendurskoðandi á fund Halldórs Ríkisendurskoðandi var kallaður fyrir fjárlaganefnd í dag til ræða einkavæðingu stjórnvalda, þar á meðal á Búnaðarbankanum. Einróma niðurstaða fundarins var að kalla þyrfti fleiri fyrir nefndina, svo sem einkavæðingarnefnd, þar sem ýmsu væri ósvarað. Fyrir fundinn átti ríkisendurskoðandi fund með forsætisráðherra en neitar að upplýsa um efni hans. Innlent 13.10.2005 19:08
Leyniskýrsla lak í Bretlandi Trúverðugleiki Tonys Blairs beið enn á ný hnekki þegar leyniskýrsla um Íraksstríðið var birt í fjölmiðlum í dag. Pólitískir keppinautar stukku á málið en Blair segist ekkert rangt hafa gert. Erlent 13.10.2005 19:08
Rifist um lykilráðuneyti Ný ríkisstjórn hefur verið mynduð í Írak eftir þriggja mánaða þref. Enn er þó rifist um nokkur lykilráðuneyti. Erlent 13.10.2005 19:07
Segja spurningum ekki svarað Fjárlaganefnd Alþingis ákvað á fundi sínum í gær að Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi hefði ekki gefið fullnægjandi svör við spurningum nefndarmanna um einkavæðingu á Búnaðarbanka og Landsbanka á árunum 2002 til 2003. Því var fallist á að kalla framkvæmdanefnd um einkavæðingu, og fyrrum nefndarmenn hennar, á fund nefndarinnar að tíu dögum liðnum. Innlent 13.10.2005 19:08