Úkraína

Gengur ekki að útgangspunkturinn verði að Rússum líði vel
Forseti Íslands segir að útgangspunktur í friðarviðræðum um Úkraínu geti ekki verið sá að láta valdhöfum í Moskvu líða vel. Rússar studdu fyrstu ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um stríðið, sem gefin var út í gær.

Vaktin: Yfirmaður CIA segir ekki mega vanmeta hættuna á notkun kjarnorkuvopna
Í nótt tilkynntu ítölsk stjórnvöld að snekkja hafi verið gerð upptæk þar í landi. Snekkjan er með tengsl við rússneska ríkið og talið er að eigandi hennar sé Vladímír Pútín, forseti Rússlands.

Guðni hrifnari af tungumálatilburðum Selenskí en sínum eigin
Volodimir Selenski Úkraínuforseti segir Íslendinga berjast við eldgos og jarðskjálfta, en Úkraínumenn við ógn innrásarhers. Hann hvatti íslenska alþingismenn í dag til að auka þrýsting á Rússland og halda áfram mannúðaraðstoðinni.

Skýr skilaboð til umheimsins: „Engin viðskipti við einræðið“
„Góðan dag, þetta er Selenskí í Kænugarði.“

Sögulegt ávarp Selenskís á Alþingi
Það var söguleg stund á Alþingi á eftir þegar Volodímir Selenskí, forseti Úkraínu ávarpaði Alþingi og íslensku þjóðina. Þetta er í fyrsta skipti í sögunni sem erlendur þjóðhöfðingi flytur ávarp á Alþingi.

Sögulegt ávarp í þingsal
Úkraínuforseti ávarpar Alþingi í dag í gegnum fjarfundarbúnað í sérstakri athöfn. Þetta er í fyrsta skipti sem slík athöfn fer fram í þingsal. Forseti Alþingis segir um sögulegan viðburð að ræða.

Vaktin: Gagnárásir Úkraínumanna við Kharkiv verða sífellt umfangsmeiri
Evrópusambandið hyggst bæta Alina Kabaevu, fyrrverandi fimleikastjörnu, á lista yfir þá einstaklinga sem sæta refsiaðgerðum en hún er sögð vera kærasta Vladimir Pútíns Rússlandsforseta.

Úkraínuforseti segir að Rússum verði refsað fyrir dómstólum og á vígvellinum
Rússar hafa haldið uppi sprengjuárásum á Azov stáliðjuverið í þrjá sólarhringa samfleytt og komið í veg fyrir að fleiri óbreyttir borgarar komist þaðan. Úkraínuforseti segir Rússa verða látna svara fyrir glæpi sína fyrir dómstólum og á vígvellinum en hann ávarpar Alþingi Íslendinga á morgun.

Selenskí ávarpar íslensku þjóðina á morgun
Volódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ávarpar alþingismenn og íslensku þjóðina á morgun klukkan 14 í gegnum fjarfundabúnað við sérstaka athöfn í þingsal Alþingis. Hægt verður að fylgjast með ávarpinu í streymi á Vísi og sömuleiðis á sjónvarpsrás og vef Alþingis.

Vaktin: Sökktu Moskvu með hjálp Bandaríkjanna
Úkraínuher hefur tekist að fella fjölda rússneskra herforingja með því að nýta upplýsingar frá öryggisyfirvöldum í Bandaríkjunum. Upplýsingarnar hafa meðal annars snúið að staðsetningu færanlegra höfuðstöðva Rússa í Úkraínu.

Vaktin: Gera enn árásir á lestarkerfi Úkraínu
Hvítrússar hófu skyndilega umfangsmiklar hernaðaræfingar í morgun sem þeir segja ætlað að prófa viðbúnað heraflans. Varnarmálaráðuneytið segir nágrannaríkjunum ekki stafa hætt af æfingunum né Evrópu yfirhöfuð.

Lýsa helvíti á jörð í Mariupol
Óbreyttir borgarar sem komust frá Mariupol um helgina lýsa aðstæðum þar sem algeru helvíti. Rússar hafa byrjað árásir á stáliðjuver borgarinnar á ný. Forsætisráðherra Bretlands sagðist sannfærður um sigur Úkraínu í stríðinu við Rússa þegar hann ávarpaði þing landsins í dag.

Tix ræður þrjá úkraínska forritara
Tix Ticketing hefur bætt við þremur forriturum í hugbúnaðarteymið sitt sem staðsettir eru á nýrri skrifstofu fyrirtækisins í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu.

Vaktin: Sagði Úkraínumenn gera Rússa að fíflum
Frans páfi segist ekki hafa í hyggju að heimsækja Kænugarð en hann sé viljugur til að hitta Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Þetta sagði hann í viðtali við dagblaðið Corriere della Sera, þar sem hann líkti átökunum í Úkraínu við þjóðarmorðið í Rúanda.

Vaktin: Rússar sóttu ekkert fram í dag
Um hundrað almennum borgurum var bjargað frá Azovstal-verksmiðjunni í Maríupól í gær. „Tveir mánuðir af myrkri. Þegar við vorum komin í rútuna sagði ég við eiginmann minn: „Vasya, þurfum við ekki lengur að nota vasaljós til að fara á klósettið?“ segir ein þeirra sem var bjargað.

Flóðið í Demydiv sem bjargaði Kænugarði
Bænum Demydiv í Úkraínu var fórnað til að stöðva för rússneskra skriðdreka. Samt sem áður eru íbúar bæjarins ánægðir og segjast hafa bjargað Kænugarði.

Vaktin: Um hundrað almennir borgarar verið fluttir úr Azovstal-stálverinu
Forseti Úkraínu, sagði í ávarpi sínu í gærkvöldi að landið yrði frjálst. Allar borgir þess sem Rússar þykist ráða ríkjum í verði frelsaðar og fáni Úkraínu verði dreginn að húni þar á ný. Borgarstjóri Mariupol tilkynnti í gær að tuttugu þúsund almennir borgarar hefðu verið drepnir frá upphafi innrásar Rússa.

Vaktin: Þorp enn á floti tveimur mánuðum eftir að flugskeyti hæfði nærliggjandi stíflu
Úkraínuforseti segir árás Rússa á Kænugarð í fyrradag vera markvissa og grimma niðurlægingu á Sameinuðu þjóðunum, en aðalritari þeirra var í heimsókn í borginni þegar Rússar gerðu loftskeytaárás.

Vaktin: Kallar Rússa hugmyndafræðilega arftaka nasista
Stjórnvöld í Úkraínu halda áfram að fordæma harðlega tímasetningu árásar Rússa á Kænugarð en tvö flugskeyti hæfðu borgina í gær, á meðan framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna var staddur þar í heimsókn.

Vaktin: Tíu slasaðir eftir eldflaugaárás í Kænugarði
Ráðamenn í borginni Kherson, sem Rússar segjast nú hafa á valdi sínu, segja að frá og með 1. maí muni yfirvöld hefja ferlið við að taka upp rússnesku rúbluna. Aðlögunartímabilið verður fjórir mánuðir en eftir það verður rúblan eini gildi gjaldmiðillinn á svæðinu.

Úkraínsku deildinni í fótbolta aflýst
Úkraínska knattspyrnusambandið lýsti því yfir í gær að deildarkeppninni í fótbolta í Úkraínu hefði verið aflýst.

Borgaryfirvöld samþykkja Kænugarð og Kýiv-torg skammt frá sendiráði Rússa
Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur samþykkti einróma á fundi í morgun að nefna torgið á horni Garðastrætis og Túngötu Kænugarð. Til að koma til móts við óskir um notkun úkraínsks heitis höfuðborgarinnar mun það einnig verða kallað Kýiv-torg.

Vaktin: Segja Rússa ætla mögulega að opna nýja víglínu í vestri
Samkvæmt Reuters hefur rússneska orkufyrirtækið Gazprom staðið við hótanir sínar frá í gær og skrúfað fyrir gasflutning til Póllands og Búlgaríu, þar sem ríkin hafa neitað að fara að kröfum Rússa og greiða fyrir gasið í rúblum.

Rússar vilja semja við Bandaríkjamenn um framtíð Úkraínu
Rússnesk stjórnvöld telja sig ekki vera í stríði við Úkraínu heldur Bandaríkin. Því sé til lítils að ræða frið við Úkraínumenn og krefjast Rússar þess vegna viðræðna við Bandaríkjamenn. Aðal framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna reyndi að miðla málum í Moskvu í dag á þriggja daga ferð sinni til Rússlands og Úkraínu.

Vaktin: Öryggisráð Moldóvu kallað saman vegna árása í Transnistríu
Fulltrúar fleiri en 40 ríkja munu funda á Ramstein herflugvellinum í Þýskalandi í dag til að ræða hvernig ríkin geta vopnað Úkraínumenn í stríðinu gegn Rússum. Tilgangur viðræðanna er að skipuleggja og samræma aðgerðir bandamanna Úkraínu.

„Á meðan rússneskur hermaður stígur fæti á úkraínska grund þá er ekkert nóg“
Sókn Rússa í austurhluta Úkraínu heldur áfram en forsetinn þar í landi segir hermenn verjast innrásarliðinu víða. Bandaríkin hafa lofað Úkraínu frekari aðstoð en utanríkisráðherrann Vestanhafs segir að Rússar séu að tapa stríðinu. Utanríkisráðherra Úkraínu segir þó ekkert duga til svo lengi sem rússneskir hermenn eru eftir í Úkraínu.

Hundruð mættu í mat þegar Flottafólk tók á móti Guðna forseta
Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson mætti í aðstöðu Flottafólk í húsakynnum Pipar\TBWA að Guðrúnartúni 8 á síðasta vetrardag en þar var á boðstólnum nýveiddur fiskur í tilefni dagsins.

Vaktin: Segir raunverulega hættu á kjarnorkustríði
Fulltrúar Bandaríkjanna og Úkraínu ræddu meðal annars leiðir fyrir Úkraínu til að vinna stríðið við Rússa og tilhögun öryggismála til framtíðar, þegar þeir funduðu í Kænugarði í gær.

Rússi og Úkraínumaður brjóta saman páskaegg
Fjöldi úkraínskra flóttamanna kom saman í Neskirkju í dag til að fagna páskunum sem eru haldnir hátíðlegir í Rétttrúnaðarkirkjunni í dag. Óttar fékk að fylgjast með og læra inn á alvöru úkraínskar páskahefðir.

Telur að stríðið muni dragast mjög á langinn
„Það sem er svo erfitt við Pútín er að hann lýgur nánast um allt. Við getum bara hugsað um vopnahléssamningana í Mariupol sem endurtekið voru sviknir en svo stundum segir hann okkur líka bara alveg hreint út hvað hann ætlar að gera og hvað hann er að hugsa,“ segir Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræði og sérfræðingur í sögu Rússlands.