Dómsmál
155 156 157 158 159 160 … 160 ›
Hasssending stíluð á föðurinn Ungur maður er ákærður fyrir að flytja inn fimmtán kíló af hassi með föður sínum og tveimur jafnöldrum sínum. Faðirinn segist ekki hafa vitað um hassið í dekkjasendingu sem hann sótti á vöruhótel Eimskips. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:05
Vilja endurgreiða í Lató-peningum Latibær ehf. hefur ekki ákveðið hvort dómi um að hann skuli endurgreiða lán frá Nýsköpunarsjóði, með hlutabréfum upp á tugi milljóna, verði áfrýjað. Talsmaður fyrirtækisins segir þó að þeir vilji helst endurgreiða með Lató-peningum. Innlent 13.10.2005 15:05
Fyrrverandi forstjóri SÍF sýknaður Gunnar Örn Kristjánsson, fyrrverandi forstjóri SÍF, var í dag sýknaður af öllum ákærum um brot í starfi sem endurskoðandi Tryggingarsjóðs lækna á síðasta áratug. Innlent 13.10.2005 15:05
Synjun gjafsóknar í bága við lög Afgreiðsla gjafsóknarnefndar og þar með dóms- og kirkjumálaráðuneytisins á gjafsóknarmáli byggðist ekki á lögmætum og málefnalegum forsendum, að áliti Umboðsmanns Alþingis. Innlent 13.10.2005 15:04
Latibær greiði í hlutabréfum Latibær ehf. var í dag dæmdur til að greiða Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins hlutabréf í fyrirtækinu að nafnvirði rúmlega 300 þúsund krónur. Sjóðurinn byggði kröfu sína á 20 milljóna króna láni til Latabæjarverkefnisins en í lánssamningnum voru ákvæði um að sjóðurinn hefði heimild til að krefjast hlutafjár í stað endurgreiðslu lánsins. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:04
Ríkið greiði miskabætur Ríkið hefur verið dæmt til að greiða konu 1,5 milljónir króna í miskabætur vegna mistaka sem urðu við brjóstaminnkunaraðgerð á Landspítalanum árið 1991. Konan fór fram á 22,6 milljónir króna í bætur. Innlent 13.10.2005 15:03
Íslenska ríkið sýknað Hæstiréttur hefur sýknað íslenska ríkið af tugmilljóna skaðabótakröfu konu sem fór í misheppnaða brjóstaminnkunaraðgerð fyrir 13 árum. Henni eru dæmdar ein og hálf milljón króna í miskabætur vegna mistaka sem lúta að útliti brjóstanna. Konan segist vera sár og hissa eftir dóminn og býst við að leita til mannréttindadómstóls Evrópu. Innlent 13.10.2005 15:03
Ríkið greiði 2,5 milljóna bætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi íslenska ríkið í dag til að greiða karlmanni á fimmtugsaldri 2,5 milljónir króna í bætur. Maðurinn var starfsmaður á Hótel Íslandi árið 1995 þegar hann lenti í miklum átökum við drukkinn gest. Í kjölfar atburðarins var maðurinn úrskurðaður 25% öryrki. Innlent 13.10.2005 15:03
Sýknaður af ákæru um hnífsstungu Hæstiréttur sýknaði í gær karlmann um fertugt fyrir að hafa stungið fyrrverandi sambýliskonu sína með hnífi eða skærum í bringu í heimahúsi í Fellahverfi í Breiðholti á aðfangadag árið 2002. Hæstiréttur sneri þar með við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem dæmdi manninn í 18 mánaða óskilorðsbundið fangelsi í mars. Innlent 13.10.2005 15:03
2 1/2 ár fyrir líkamsárás Tveir menn voru dæmdir til langrar fangelsisvistar fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Reykjvíkur í dag. Annar þeirra var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi en hinn í tveggja ára fangelsi. Í niðurstöðum dómsins segir meðal annars að árásin hafi verið hrottafengin og miskunnarlaus og valdið fórnarlambinu umtalsverðu líkamstjóni. Innlent 13.10.2005 15:01
Fangelsi fyrir umferðalagabrot Héraðsdómur Reykjaness dæmdi tuttugu og þriggja ára mann í þriggja mánaða fangelsi í gær fyrir að hafa tíu sinnum á fimm mánuðum gerst brotlegur við umferðarlög. Hann var réttindalaus í öllum tilvikum og nokkrum sinnum ók hann líka of hratt. Innlent 13.10.2005 15:00
Dæmdur fyrir umboðssvik Jón Ragnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Lykilhótela, var í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir umboðssvik. En hann tók 37 milljóna króna lán í nafni félagsins hjá Framkvæmdasjóði Íslands. Innlent 13.10.2005 15:00
Sýknaður af innbroti Hæstiréttur sýknaði síbrotamann af innbroti í verslun í Mjódd þar sem 3.000 þúsund krónum var stolið úr peningakassa verslunarinnar. Innlent 13.10.2005 14:57
Hæstiréttur lækkaði bæturnar Hæstiréttur lækkaði í dag bætur til konu sem varð fyrir slysi er hún var farþegi í bifreið með ölvuðum ökumanni. Maðurinn andaðist í slysinu. Héraðsdómur dæmdi konunni eina og hálfa milljón í bætur en Hæstiréttur lækkaði bæturnar í rúma milljón. Innlent 13.10.2005 14:57
Sýknaður á grundvelli skófars Hæstiréttur sýknaði í dag mann af ákæru fyrir að hafa stolið þrjú þúsund krónum í innbroti í verslun í Mjóddinni. Héraðsdómur hafði dæmt manninn í sex mánaða fangelsi en hann er síbrotamaður. Vafinn um sekt snerist um skófar. Innlent 13.10.2005 14:57
5 mánaða fangelsi fyrir fjársvik Kona á fertugsaldri var dæmd til fimm mánaða fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir fjársvik. Hún sveik út vörur fyrir tæpar 260 þúsund krónur með kreditkorti í eigu fyrirtækis. Konan hefur hlotið átta dóma og margrofið skilorð. Innlent 13.10.2005 14:57
Fangelsi fyrir fjársvik Rúmlega þrítug kona var í Héraðsdómi Reykjaness dæmd í fimm mánaða fangelsi fyrir fjársvik. Konan sveik út vörur og þjónustu fyrir tæpar 260 þúsund krónur með því að gefa símleiðis upp númer á greiðslukorti sem hún átti ekki. Innlent 13.10.2005 14:58
Fær lögheimili í Bláskógabyggð Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að fimm manna fjölskylda skuli fá lögheimili í Bláskógabyggð. Fjölskyldan flutti þangað í vor en sveitarstjórnin vildi ekki samþykkja umsókn um lögheimili fyrst heimilið er á sumarhúsasvæði. Börnin fengu heldur ekki skólavist í Bláskógabyggð. Innlent 13.10.2005 14:57
Dæmdur fyrir að rífa upp klósett Maður á sextugsaldri var, í Héraðsdómi Norðurlands eystra, dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að rífa salernisskál upp úr gólfi hjá nágranna sínum. Salernisskálin eyðilagðist. Innlent 13.10.2005 14:57
Allir dæmdir í 2 1/2 árs fangelsi Sakborningarnir í líkfundarmálinu svokallaða, Grétar Sigurðarson, Jónas Ingi Ragnarsson og Thomas Malakauskas, voru dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þeir voru ákærðir fyrir að koma Litháanum Vaidas Juceviciusi ekki til hjálpar í neyð, ósæmilega meðferð á líki hans og innflutning á tæplega 224 grömmum af amfetamíni. Innlent 13.10.2005 14:56
Framburður Jónasar þótti ótrúlegur Grétar Sigurðarson, Jónas Ingi Ragnarsson og Tomas Malakauskas, þremenningarnir í líkfundarmálinu, voru í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi. Þeir voru fundnir sekir um fíkniefnabrot, fyrir að koma manni í lífshættu ekki til hjálpar og fyrir illa meðferð á líki. Innlent 13.10.2005 14:57
Fyrrum forstjóri SÍF fyrir dómi Gunnar Örn Kristjánsson, fyrrverandi endurskoðandi Tryggingasjóðs lækna og fyrrum forstjóri SÍF, stóð í ströngu í gær þegar mál ákæruvaldsins gegn honum var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hann er ákærður fyrir alvarlega vanrækslu í endurskoðendastarfi sínu. Innlent 13.10.2005 14:57
Saksóknari þarf leyfi Hæstaréttar Ríkissaksóknari hefur lagt fram beiðni til Hæstaréttar um áfrýjun vegna dóms Héraðsdóms Reykjaness þar sem frestað var refsingu manns sem beitti eiginkonu sína ofbeldi. Innlent 13.10.2005 14:56
Maitsland-bræður dæmdir í fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Rúnar Ben Maitsland í fimm ára fangelsi og tvíburabróður hans, Davíð Ben Maitsland, í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir að smygla tuttugu og sjö kílóum af hassi til landsins. Innlent 13.10.2005 14:55
5 mánaða fangelsi fyrir fjársvik Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í morgun liðlega tvítugan karlmann í fimm mánaða fangelsi fyrir fjársvik. Maðurinn var sakfelldur fyrir að svíkja út bensín fyrir tæpar 400 þúsund krónur á bensínstöðvum í Reykjavík. Innlent 13.10.2005 14:55
Rannsókn á láti Sri lokið Lögreglan í Reykjavík lauk í dag rannsókn á láti Sri Rhamawati sem myrt var í júlí síðastliðnum. Barnsfaðir hennar og fyrrverandi sambýlismaður, Hákon Eydal, sem hefur játað að hafa orðið henni að bana og komið líkinu fyrir í gjótu í hrauninu sunnan við Hafnarfjörð, var í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Innlent 13.10.2005 14:54
Héraðsdómur fjallar um kröfuna Héraðsdómur Reykjavíkur er nú að fjalla um kröfu lögreglunnar í Reykjavík um að karlmaður verði úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald vegna hnífstungumáls í húsi við Hverfisgötu síðustu nótt. Fórnarlambið fannst í nótt á Laugavegi, nær dauða en lífi. Innlent 13.10.2005 14:54
Gagnrýnir dóminn harðlega Jafnréttisnefnd Reykjavíkur gagnrýnir harðlega nýgenginn dóm Héraðsdóms Reykjaness í máli þar sem refsingu yfir karlmanni í líkamsárásarmáli gegn konu hans var frestað, þar sem konan hefði átt sök á ofbeldinu. Í ályktun frá jafnréttisnefndinni segir að að látið sé að sök konunnar liggja í dómnum þar sem hún hafi reitt mann sinn til reiði. Innlent 13.10.2005 14:54
Tvö ár í fangelsi fyrir bankarán Bryngeir Sigurðsson var í gær dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar fyrir að ræna Landsbanka Íslands við Gullinbrú í Reykjavík vopnaður öxi sem hann ógnaði gjaldkera og braut glerskilrúm með. Frá refsingunni dregst sá tími sem hann hefur verið í gæsluvarðhaldi. Innlent 13.10.2005 14:54
55 milljón króna sekt Maður á fimmtugsaldri var, í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag, dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skattsvik. Þá er hann dæmdur til að greiða 55 milljónir króna í sekt og verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna kemur hennar í stað eins árs fangelsi. Innlent 13.10.2005 14:54