

Jarðskjálfti að stærð 3,0 mældist sex kílómetrum suðaustan af Flatey á Skjálfanda á um 12km dýpi.
Jarðeðlisfræðingur segir andvaraleysi hafa ríkt í skipulagsmálum með tilliti til náttúruvár. Til að mynda hefði verið hægt að koma í veg fyrir tjón í Grindavík.
Heitt vatn rennur nú um kerfi einhverra húsa í Reykjanesbæ. Lögreglan á Suðurnesjum segir vatnið alls ekki vera til notkunar íbúa.
Framkvæmdir næturinnar við hjáveitulögn Njarðvíkuræðar gengu vel og örugglega fyrir sig samkvæmt HS Orku. Vegur liggur nú yfir heitt hraunið. Þjónusta á Suðurnesjum verður skert næstu daga en fyrirkomulag skólahalds er til skoðunar.
Ung hjón af Suðurnesjum flúðu heimili sitt á dögunum með tvö ung börn, þar af annað fimm daga gamalt. Þau eru á leið í sumarbústað sem þau fengu lánaðan hjá ókunnugri konu, en vita ekki hvenær þau geta snúið aftur heim.
Veðurstofan hefur lýst því yfir að eldgosinu sem hófst við Sundhnúksgíg morguninn áttunda febrúar sé lokið.
Margra daga heitavatnsleysi blasir við íbúum Suðurnesja. Grafalvarleg staða er komin upp að sögn samskiptastjóra almannavarna sem segir nú reyna á samtakamátt íbúa sem aldrei fyrr. Boðað hefur verið til upplýsingafundar almannavarna klukkan 17.
Hjáveitulögn meðfram Njarðvíkuræðinni fór í sundur undir miðju hrauni um klukkan 22:30 í kvöld. Vegna þessa berst ekki lengur heitt vatn til Reykjanesbæjar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HS Orku.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir ástandið á Suðurnesjum ekki vera gott vegna heitavatnsleysis en dómsmálaráðherra vill meina að þarna hafi verið unnið kraftaverk.
Minningarathöfn um Lúðvík Pétursson var haldin í Langholtskirkju í dag, föstudaginn 9. febrúar, en hann týndist í Grindavík 10. janúar sl. þegar hann var að vinna við að fylla sprungur fyrir Náttúruhamfaratryggingar Íslands.
Ríkissjóður mun bjóðast til að kaupa íbúðarhúsnæði í eigu einstaklinga í Grindavík og taka yfir þau íbúðalán sem á því hvíla. Umfang aðgerðarinnar er metið allt að 61 milljarði króna. Frumvarp þessa efnis var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í dag og hefur verið birt í samráðsgátt.
Engin gosvirkni sást á gossvæðinu á Reykjanesi í drónaflugi á vegum sérsveitarinnar sem flaug yfir svæðið fyrir skömmu. Þetta bendir til þess að gosinu sé að ljúka.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir vinnu ganga vel við að tengja Njarðvíkurlögnina, heitavatnslögnina sem skemmdist þegar hraun rann yfir hana nærri Svartsengi í gær. Reiknað er með því að vatni verði hleypt á kerfið á miðnætti. Tvo sólarhringa tekur að ná fullum þrýstingi á kerfið.
„Það virðist vera sem svo að þetta sé nú eiginlega bara dottið niður. Við höfum ekki séð neina kvikustrókavirkni síðan á milli 8 og 9 í morgun,“ segir Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvásérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.
Tugir starfsmanna HS Orku og verktaka unnu í alla nótt að því að tengja nýja hjáveitulögn til að sjá íbúum Suðurnesja fyrir heitu vatni. Forstjóri HS Veitna segir mögulegt að lögnin komist í gagnið síðdegis en lengri tíma tekur að koma þrýstingi inn á kerfið.
Búið er að loka nokkrum klósettkjörnum í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli vegna bilunar sem kom upp í kaldavatnslögn. Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir að samkvæmt upplýsingum frá HS Veitum sé von á því að vatn komist aftur á um hádegisbil.
Starfsmenn HS Orku auk verktaka eru komnir langleiðina með að tengja nýju hjáveitulögnina við Njarðvíkurlögnina sunnanmegin við varnargarðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HS Orku.
Björgunarsveitir á Reykjanesi fóru ekki í útköll í nótt vegna kulda þar og skorts á heituvatni. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir nóttina hafa verið rólega.
„Þetta gekk vel. Það var tíðindalítið þegar kemur að eldgosinu en það hefur mikil vinna farið fram í nótt,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Almannavarna, um fregnir næturinnar.
Eldgosið sem braust út í Sundhnúksgígaröðinni í gærmorgun virðist í andarslitrunum. Íbúar á Suðurnesjum verða að líkindum án heits vatns í húsum til sunnudags.
Náttúrufræðistofnun Íslands og Landmælingar Íslands hafa birt þrívíddarlíkan af gosstöðvunum sem urðu til í dag við Sundhnúksgíga.
Gunnar Ágúst Halldórsson starfsmaður Ellerts Skúlasonar ehf. var einn þeirra sem vann við að moka yfir nýja hjáveitulögn HS Veitna við hraunjaðarinn í dag. Hann og félagar hans voru aðeins örfáum metrum frá hraunrennslinu.
Víðir Reynisson, sviðstjóri almannavarna segir aðgerðir almannavarna hafa gengið vel. Hann hvetur fólk til að sýna nágrannakærleik og segir ömurlegt að fólk nýti sér neyð annarra með því að hamstra hitablásara.
Grípa þurfti til fjölmargra aðgerða á Keflavíkurflugvelli í dag þegar heitavatnslaust varð á vellinum. Ferðamenn sögðust flestir hafa vitað af því að það gæti gosið meðan þeir væru staddir á landinu. Langar biðraðir mynduðust í verslunum sem seldu hitara, rafmagnsofna og gaskúta í Reykjanesbæ í dag.
Stefnt er á að koma heitu vatni aftur á á morgun. Kristinn Harðarson framkvæmdastjóri HS Orku segist vera bjartsýnn á að það gangi eftir í Reykjavík síðdegis í dag.
Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari liðs Hattar í Subway deild karla í körfubolta, hefði viljað sjá leik liðsins gegn Keflavík færðan til Reykjavíkur eða spilaðan í Keflavík fremur en að honum hafi verið frestað líkt og nú er raunin. Lið Hattar lenti í Reykjavík í morgun en nokkrum klukkustundum síðar var leiknum frestað um óákveðinn tíma.
Talsvert hefur dregið úr eldgosinu á Reykjanesskaga. Um eitt í dag afmarkaðist virknin við norður og suðurenda gossprungunnar.
Búið er að slökkva á loftræstingu á Keflavíkurflugvelli til að halda hita á byggingunni. Allt flugvallarsvæðið verður brátt án alls heits vatns.
Varabirgðir af heitu vatni í tönkum á Fitjum klárast á næstu klukkustundum. Þá tekur við heitavatnsleysi í Reykjanesbæ, á Suðurnesjum og í Vogum. Unnið er hörðum höndum við að tengja varalögn, en ef hún fer einnig undir hraun gæti heitavatnsleysi varað í margar vikur.
Grípa þarf til lokana víða í starfsemi Reykjanesbæjar vegna skorts á heitu vatni. Skóla- og leikskólastarf fellur niður á morgun og öll íþróttamannvirki verða lokuð.