Ferðamennska á Íslandi

Fréttamynd

Óvíst hvenær aðvörunarskilti koma upp í Reynisfjöru

Enn eru engin skilti komin í Reynisfjöru þar sem ferðamenn hafa oft verið hætt komin síðustu ár. Vinna við upplýsinga- og viðvörunarskilti er þó í bígerð að sögn Sveins Pálssonar sveitastjóra. Hann vill þó engin loforð gefa um hvenær aðvörunarskilti komi upp í fjörunni.

Innlent
Fréttamynd

Ferðamenn hætt komnir við Reynisfjöru þegar þeir reyndu að bjarga hval

Erlendir ferðamenn voru hætt komnir þegar þeir reyndu að koma hval til bjargar sem hafði rekið á land við Reynisfjöru við Vík rétt fyrir hádegið í dag. Ólafur Björnsson, bóndi á Reyni, segir að sér hafi ekkert litist á blikuna þegar hann hafi séð að fólkið hafi verið búið að vaða í fjöruna allt upp að mitti.

Innlent
Fréttamynd

Háhitasvæðin hættulegust ferðamönnum

Ferðamenn sem fara í skipulagðar ferðir hjá Kynnisferðum gera sér oft á tíðum ekki grein fyrir þeim hættum sem fylgja háhitasvæðum. „Þau þekkja ekki svæðin eins og við og hlýða ekki almennilega á fyrirmælin heldur vaða gjarnan út fyrir stíga. Þau trúa því ekki að landið geti brotnað undan sér og að vatnið sé svona heitt," segir Þórarinn Þór markaðsstjóri Kynnisferða.

Innlent
Fréttamynd

Kynnisferðir bjóðast til að borga fyrir varúðarskilti í Reynisfjöru

„Þegar þessi umræða fór sem hæst síðastliðinn föstudag þá hringdi ég í sveitastjórann í Vík og bauð honum að Kynnisferðir myndu kosta gerð og uppsetningu á upplýsinga- og varúðarskilti í Reynisfjöru," segir Þórarinn Þór markaðsstjóri fyrirtækisins. Tveir ferðamenn voru hætt komnir við Dyrhólaey í síðustu viku eftir að alda skall á þeim, og spannst mikil umræða í kjölfarið um þörf á skilti til að vara ferðamenn við hættu á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Ekki hægt að áfellast neinn

„Það er mjög varhugavert að áfellast leiðsögumanninn í máli eins og þessu. Ég veit það að leiðsögumaðurinn varaði fólkið við hættunni. Fólk ber svo ábyrgð á sjálfu sér. Það er ekki auðvelt að ferðast um landið okkar og því fögnum við öllum merkingum sem gætu orðið til að leiðbeina fólki,“ segir Ragnheiður Björnsdóttir, formaður Félags leiðsögumanna.

Innlent
Fréttamynd

Kona lét lífið þegar brimskafl tók hana

Bandarísk kona lést í fjörunni við Vík í Mýrdal eftir að alda skall á henni og hreif frá landi. Mildi þykir að dóttir konunnar hafi sloppið. Formaður björgunarsveitarinnar í Vík segir að unnið hafi verið að því að koma upp aðvörunarskilti.

Innlent